Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 12
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 12 ÓTÍÐ Á NORÐUR- OG AUSTURLANDI Heimsókn forsvarsmanna bænda- samtaka í lok síðustu viku leiddi í ljós að bændur á stóru svæði á Norður- og Austurlandi gætu átt erfiðar vikur og kannski mán- uði fram undan vegna tíðarfars- ins. Snjóalög gera mönnum erfitt fyrir en svellbunkar valda mönn- um jafnvel frekar áhyggjum vegna fyrirsjáan legs kals. Uppskeru- brestur bænda og tekjutap er raun- verulegur möguleiki, en margvís- legar hugmyndir um úrlausnir eru ræddar. Bændur funda Bændasamtökin og Lands samband sauðfjárbænda (LS) skoðuðu aðstæður víða á Norður- og Austur- landi í lok síðustu viku. Bændur voru heimsóttir frá Akureyri allt austur í Jökulsárhlíð og Hjalta- staðaþinghá. Var fundað með bændum á völdum bæjum og víða hittust margir bændur af viðkom- andi svæði. Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri LS, var með í för og segir að snjór sé áberandi mestur í Fljótum, Bárðardal og Svarfaðar dal. Víða annars staðar er þó fannfergi mikið. Hann segir að á öðrum svæðum sem heim- sótt voru sé minni snjór en mikil svellalög á túnum á köflum. Í ferð- inni kom fram í máli bænda að langir vetur væru auðvitað engin nýlunda norðan- og austanlands og var vísað til áranna 1979, 1989 og nú síðast 1995. „Hins vegar leggst margt saman; mikið kal 2011, vor- hret 2012, þurrkasumar og minni uppskera 2012, óveðrið í septem- ber 2012 og nánast óslitin snjóalög síðan þá. Það að allt þetta leggist saman er óvenjulegt og bændur langþreyttir nú í upphafi sauð- burðar. Svigrúmið er ekki mikið,“ segir Sigurður. Kal er áhyggjuefni númer eitt Sigurður segir að snjór í þessu magni þegar sauðburður er hafinn sé vissulega áhyggjuefni, en svella- lög og kal séu það enn frekar. „Það hefur miklu víðtækari afleiðingar. Sé mikið kalið undir svellinu hefur það mikil áhrif fyrir sumarið og spurning hvað menn fá langan tíma til að endurrækta og ná einhverri uppskeru. Vegna þess sem á undan er gengið, frá 2011, hafa menn mikla þörf fyrir að ná almenni- legri uppskeru í sumar.“ Þegar litið er til heybirgða til skamms tíma litið er það mat manna að þær dugi út maí, en ekki mikið lengur. Nokk- uð hefur verið keypt af heyi inn á svæðið, mest úr Borgar- firði en einnig af Suðurlandi. Fara þarf yfir opin- ber gögn um fóðurbirgðir á svæð- inu og skrá og birta upplýsingar um hvaðan má flytja fóður norður og austur, að sögn Sigurðar og verður farið í þá vinnu á næstu dögum. Stefna vinnuvélum norður Sú hugmynd hefur komið upp í samtali bænda og samtaka þeirra að ef kal verður mjög mikið þá sé hætt við því að jarðvinnslutæki á svæðinu ráði einfaldlega ekki við að sinna eftirspurninni. „Við höfum velt því fyrir okkur hvort ekki ætti að ræða við jarðvinnsluverktaka á Suðurlandi. Þar er tíð miklu betri og öll jarðvinnsla á Suðurlandi verður búin áður en langt um líður. Það mætti undirstinga þá um að fara norður með skömmum fyrir- vara þegar tekur upp. Ástæðan er sú að menn hafa ekki langan tíma til að plægja túnin og sá í þau. Því er fyrirséð að vaxtartíminn skerð- ist og nýtist ekki sem best. Jarð- vinnslutæki bænda á svæðinu eru gjarnan minni tæki sem menn eiga kannski í sameiningu í sveitunum og þau ráða ekki við gríðarlega vinnslu á skömmum tíma,“ segir Sigurður. Tölur yfir þá bændur sem eiga í vandræðum, eða gætu lent í vanda, liggja ekki fyrir. Slík samantekt var ekki á verkefnalista forsvars- manna BÍ og LS. Hins vegar er fundur í atvinnuvegaráðuneytinu á morgun þar sem slíkur gagna- banki liggur fyrir, en kallað hefur verið eftir upplýsingum frá Mat- vælastofnun um bústofn á svæð- inu sem um ræðir. Eins gögn um heybirgðir. Ónýtar girðingar eru annað En fleira kemur til. Menn hafa verulegar áhyggjur af því að tjón á girðingum sé gríðarlegt á stóru svæði. Í fersku minni eru fregn- ir af tjóni eftir septemberóveðrið sem á eftir að bæta, en það mun ekki ná yfir allar þær girðingar sem þarf að endurnýja eftir vetur- inn. „Við sjáum einfaldlega að girð- ingar eru víða á kafi í snjó; það sést best á því að menn hafa tekið hross í hús á fulla gjöf vegna þess að það eru engar girðingar sem héldu þeim. Þegar snjó tekur upp þá mun Kvíða fyrirsjáanlegu kali í túnum Talsvert margir bændur á Norður- og Austurlandi eiga í vændum erfiðar vikur og jafnvel mánuði vegna ótíðar. Snjór veldur enn vandræðum en sauðburður er hafinn. Menn kvíða því þó frekar að kal í túnum geti valdið skakkaföllum. Ljóst er að girðingar eru ónýtar í stórum stíl. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is SIGURÐUR EYÞÓRSSON Trausti Þórisson, bóndi á Hofsá í Svarfaðardal, segir málið einfalt spurður um aðstæður í Svarfaðar- dal. „Það er glórulaust að stefna að því að sá korni hér. Miðað við hvernig staðan er í dag þá yrði það ekki fyrr en í júní í fyrsta lagi. Og það er einfaldlega of seint,“ segir Trausti. Trausti segir að þetta eigi við um aðra kornbændur í Dalvíkurbyggð en allt annað sé uppi á teningnum inn í Eyjafirði. „Þar held ég að ein- hverjir séu í startholunum að sá þar. Það eru miklir öfgar í þessu því við þurfum ekki nema 20 kílómetra nær Akureyri og þá er snjólaust. Hér er aftur allt á kafi,“ segir Trausti og bætir við að sveitungar hans lendi ekki eins illa í því og Hörgdælingar þar sem er minni snjór. Þar blotnaði í snjó og allt breyttist í klaka. „Við höldum í vonina um að það sé ekki dautt undir snjónum hjá okkur. En það kemur ekki í ljós fyrr en snjóa leysir.“ Trausti hefur nýtt sitt korn sjálfur í fóður. Ef allt fer sem horfir er ljóst að fóðurbætiskaup aukast verulega og það er ekki gefið. Kílóið af fóðurbæti fer á um 100 krónur, heimfluttur, en ræktað kíló af korni leggur sig á 30 til 35 krónur kílóið. Trausti víkur að því að miklir heyflutningar séu í gangi norður, aðallega frá Suðurlandi. Hann tekur sérstaklega til þess að sunnlenskir bændur hafi verið mjög liðlegir og sanngjarnir í verðlagningu. „Menn hafa ekki verið að okra þó að að- stæður bjóði klárlega upp á það,“ segir Trausti. Útséð með kornrækt í Svarfaðardal í sumar Akureyri Svarf- aðar- dalur Fljótin Aðaldalur Bárðardalur EYJA FJÖ R Ð U R VOPNA- FJÖRÐUR Húsavík Jökuldalur Bakkagerði Hjaltastaðaþinghá Ljósavatnsskarð Ég tel að stjórnvöld þurfi að leggja Bjarg- ráðasjóði til fjármagn vegna þessa verkefnis. Hvað varðar kal í túnum er ekki spurning um tjón, heldur hversu alvarlegt það verður. Sama á við um girðingar sem vitað er að hafa farið illa. Sindri Sigurgeirsson koma í ljós gríðarlegt tjón með til- heyrandi kostnaði vegna viðgerða og endurnýjunar á girðingum, um það er ég viss. Umfangið er þó engin leið að meta núna, því snjó hefur einfaldlega ekki tekið upp síðan í september á vissum svæð- um. Hvað hver bóndi þarf að gera er því óvissu háð því menn hafa ekki komist í að gera við neitt enn þá þar sem girðingar eru á kafi,“ segir Sigurður. Eitt ofan á annað Í hugmyndabanka bænda bættust ýmsar pælingar sem menn hafa á bak við eyrað, og munu moða úr á komandi vikum. Athuga þarf birgðir sáðvöru. Þegar vorar getur orðið mikil eftirspurn á skömmum tíma. Vonir standa til að birgjar hafi pantað í samræmi við reynslu undanfarinna missera. Fram kom á fundum með bændum að menn hafa sent eða vilja senda unga nautgripi eða hross í slátrun, til að létta á fóðrum. Hins vegar er sex vikna bið eftir þeirri þjónustu í sláturhúsum. Rætt er því að ræða við sláturleyfishafa um hvort eitt- hvað sé hægt að gera. Fleira kemur til; rætt er um að starfskrafta gæti vantað í sauðburð og eins er rætt um aðrar lausnir sem létt gætu undir. Þar má nefna hvort hægt sé að veita sameiginlega þjónustu fyrir bændur með mat, til dæmis í félagsheimilum í sveitum. Þar er vísað til góðrar reynslu á Heima- landi undir Eyjafjöllum vegna erfið leika vegna eldsumbrota þar. Þá er ótalið að menn hafa áhyggjur af kornrækt. „Á Norðurlandi er töluverð korn- rækt, sem bændur hafa ekki síst nýtt sem fóður fyrir nautgripi og svín. Ef menn geta ekki ræktað í sumar, og þurfa að kaupa fóður í staðinn næsta vetur þá bætist það ofan á allt annað,“ segir Sigurður. Forystumenn Bændasamtakanna heimsóttu fjölmarga bændur á stóru svæði daganna 2.-3. maí. Snjór er áberandi mestur í Fljótum, Bárðardal og Svarfaðardal. Á öðrum svæðum er minni snjór, en þar eru mikil svellalög á túnum. Meðal bæja sem voru sóttir heim voru Búgarður á Akureyri, Brúnastaðir í Fljótum, Steindyr í Svarfaðardal, Stóru-Tjarnir í Ljósavatnsskarði, Sandhaugar í Bárðardal, Búvellir í Aðaldal, Ysti-Hvammur í Jökuldal, Bakkagerði í Jökulsárhlíð og Hjartarstaðir í Hjalta- staðaþinghá. VORVERKIN Hér er fjórtán tonna beltagrafa að hreinsa í kringum fjárhúsin á Brúnastöðum í Fljótum. MYND/SIGURÐUR EYÞÓRSSON Í SVARFAÐARDAL Kornakur Trausta á Hofsá 8. maí. Girðingarstaurarnir segja heimamönnum að snjófargrið á landinu er jafnfallið yfir metri á dýpt. MYND/TRAUSTI Þ Frá kr. 99.900 Ótrúleg kjör! Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Bajondillo íbúðarhótelinu þann 28. maí í 13 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Ath. mjög takmarkaður íbúða í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Costa del Sol 28. maí í 13 nætur Bajondillo *** Kr. 99.900 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð 13 nætur. Verð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð kr. 109.600.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.