Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 9. maí 2013 | SKOÐUN | 19 Nú þegar úrslit alþingiskosninga liggja fyrir er ljóst að þau fyrirtæki sem gerðu kannanir og birtu niður- stöður þeirra í aðdraganda kosninga geta öll verið sátt við frammistöðu sína enda voru niðurstöður kann- ana í vikunni fyrir kosningar mjög nálægt hinum endanlegu úrslit- um. Könnun Capacent sem birt var föstudaginn 26. apríl var til dæmis mjög nærri úrslitum kosninganna og var frávik könnunarinnar að meðaltali aðeins 0,7 prósentu stigum frá úrslitunum. Sama sáum við í for- setakosningum á síðasta ári þar sem að niðurstaða mælinga Capacent var mjög nærri hinum endanlegu úrslitum. Skoðanakannanir spila mikilvægt hlutverk í lýðræðissamfélagi. Líkt og George Gallup, upphafsmaður þeirrar aðferðafræði sem enn er notuð við kannanir, benti á sínum tíma á, þá eru kannanir fyrst og fremst „rödd fólksins“, tækifæri almennings til að koma skoðunum sínum á framfæri til stjórnvalda og fyrirtækja. Án þátttöku fólks- ins eru engar kannanir mögulegar og erum við hjá Capacent þakklát þeim rúmlega 9.200 Íslendingum sem tóku þátt í okkar könnunum í aðdraganda kosninga og lögðu þann- ig sitt af mörkum til að koma rödd þjóðarinnar á framfæri. Fyrir tíma George Gallups reyndu þeir sem framkvæmdu skoðanakannanir að ná til sem flestra svarenda á meðan niðurstöð- ur Gallups byggðu á slembi úrtaki sem var lýsandi fyrir þýðið. Það vakti mikla athygli þegar Gallup spáði rétt fyrir um úrslit banda- rísku forsetakosninganna með sinni aðferð árið 1936. Tímaritið Liter- ary Digest, sem þá var eitt virtasta tímarit landsins, spáði hins vegar rangt fyrir um úrslitin þrátt fyrir að hafa fengið svör frá rúmlega tveimur milljónum svarenda. Eitt af því sem hefur verið nokk- uð til umræðu fyrir þessar kosn- ingar er hvort netkannanir séu jafn áreiðanlegar og kannanir í gegnum síma. Gagnaöflun vegna skoðana- og markaðskannana á sér í aukn- um mæli stað í gegnum netið þótt símakannanir, heimsóknarkannanir og póstkannanir séu jafnframt not- aðar. Það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er ekki aðferðin við öflun gagnanna heldur það að vera annars vegar með slembiúrtak sem endurspeglar þýðið og hins vegar eins gott svarhlutfall og kostur er. Gagna öflun í gegnum netið hefur ýmsa kosti umfram hefð bundnar símakannanir. Má þar nefna að svarandi getur svarað þegar honum hentar, gefið sér meiri tíma til að íhuga svör og áhrif spyrils eru ekki til staðar. Í umræðunni hefur borið á því að ruglað sé saman könnunum þar sem fagfyrirtæki nota netið við gagna- öflun og könnunum þar sem spurn- ingar eru lagðar fyrir óskilgreindan hóp á heimasíðum fyrirtækja. Hér er í raun um að ræða svipað dæmi og í bandarísku forsetakosningun- um árið 1936. Þó svo að þúsundir sjálfvaldra svarenda myndu svara könnun á heimasíðu fyrirtækis er ekki hægt að alhæfa út frá slíkri niðurstöðu um þjóðina almennt. Capacent gerir reglulega mæl- ingar á málefnum líðandi stundar og birtir þjóðinni. Eitt af því sem er mælt og birt mánaðarlega eru væntingar fólks til framtíðarinn- ar, eða svokölluð Væntingavísitala Capacent Gallup. Í gegnum árin hefur það sýnt sig að væntingar fólks hafa risið í kosningamánuði en við sáum þá þróun fyrir kosn- ingarnar 2003, 2007 og 2009. Það er hins vegar athyglisvert að fyrir þessar kosningar lækkar Væntinga- vísitalan lítillega í kosningamánuð- inum, sem gæti bent til þess að fólk hafi dregið úr væntingum sínum til nýrra valdhafa. Í árlegum mæl- ingum okkar á trausti til stofnana í íslensku samfélagi merktum við dvínandi traust til lykilstofnana eftir hrun, þ.m.t. til alþingis, en traust til þess hefur síðan haldist svo til óbreytt sl. fjögur ár. Athygl- isvert verður að sjá hvort ný ríkis- stjórn og nýtt þing nær að byggja upp traust gagnvart almenningi. Áframhald á almennri og góðri þátt- töku landsmanna í skoðanakönnun- um gerir okkur meðal annars kleift að fylgjast með því en, Capacent lítur á það sem mikilvægt hlutverk í íslensku samfélagi að koma skoð- unum þjóðarinnar á framfæri. KANNANIR Einar Einarsson framkvæmdastjóri rannsóknasviðs Capacent dr. Tomas Bjarnason rannsóknarstjóri Capacent ➜ Það er hins vegar at- hyglisvert að fyrir þessar kosningar lækkar Væntinga- vísitalan lítillega ... Rödd þjóðarinnar ÞRÓUN VÆNTINGAVÍSITÖLU CAPACENT GALLUP FRÁ 2003 TIL 2013 160 140 120 100 80 60 40 20 0 feb . ‘0 3 ma r. ‘ 03 ap r. ‘ 03 ma í ‘0 3 jún . ‘0 3 júl . ‘0 3 ág . ‘0 3 sep t. ‘ 03 ok t. ‘ 03 nó v. ‘ 03 de s. ‘ 03 jan . ‘0 4 feb . ‘0 4 ma r. ‘ 04 ap r. ‘ 04 ma í ‘0 4 jún . ‘0 4 júl . ‘0 4 ág . ‘0 4 sep t. ‘ 04 ok t. ‘ 04 nó v. ‘ 04 de s. ‘ 04 jan . ‘0 5 feb . ‘0 5 ma r. ‘ 05 ap r. ‘ 05 ma í ‘0 5 jún . ‘0 5 júl . ‘0 5 ág . ‘0 5 sep t. ‘ 05 ok t. ‘ 05 nó v. ‘ 05 de s. ‘ 05 jan . ‘0 6 feb . ‘0 6 ma r. ‘ 06 ap r. ‘ 06 ma í ‘0 6 jún . ‘0 6 júl . ‘0 6 ág . ‘0 6 sep t. ‘ 06 ok t. ‘ 06 nó v. ‘ 06 de s. ‘ 06 jan . ‘0 7 feb . ‘0 7 ma r. ‘ 07 ap r. ‘ 07 ma í ‘0 7 jún . ‘0 7 júl . ‘0 7 ág . ‘0 7 sep t. ‘ 07 ok t. ‘ 07 nó v. ‘ 07 de s. ‘ 07 jan . ‘0 8 feb . ‘0 8 ma r. ‘ 08 ap r. ‘ 08 ma í ‘0 8 jún . ‘0 8 júl . ‘0 8 ág . ‘0 8 sep t. ‘ 08 ok t. ‘ 08 nó v. ‘ 08 de s. ‘ 08 jan . ‘0 9 feb . ‘0 9 ma r. ‘ 09 ap r. ‘ 09 ma í ‘0 9 jún . ‘0 9 júl . ‘0 9 ág . ‘0 9 sep t. ‘ 09 ok t. ‘ 09 nó v. ‘ 09 de s. ‘ 09 jan . ‘1 0 feb . ‘1 0 ma r. ‘ 10 ap r. ‘ 10 ma í ‘1 0 jún . ‘1 0 júl . ‘1 0 ág . ‘1 0 sep t. ‘ 10 ok t. ‘ 10 nó v. ‘ 10 de s. ‘ 10 jan . ‘1 1 feb . ‘1 1 ma r. ‘ 11 ap r. ‘ 11 ma í ‘1 1 jún . ‘1 1 júl . ‘1 1 ág . ‘1 1 sep t. ‘ 11 ok t. ‘ 11 nó v. ‘ 11 de s. ‘ 11 jan . ‘1 2 feb . ‘1 2 ap r. ‘ 12 ma í ‘1 2 jún . ‘1 2 júl . ‘1 2 ág . ‘1 2 sep t. ‘ 12 ok t. ‘ 12 nó v. ‘ 12 de s. ‘ 12 jan . ‘1 3 feb . ‘1 3 ma r. ‘ 13 ap r. ‘ 13 Kosningar Kosningar Kosningar Kosningar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.