Fréttablaðið - 09.05.2013, Page 24

Fréttablaðið - 09.05.2013, Page 24
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Boudoir-myndatökur hafa lengi verið vinsælar erlendis en ís-lenskar konur hafa verið að taka við sér síðustu ár. Nú eru svona mynda- tökur orðnar nokkuð algengar hjá mér,“ segir Anna Ellen Douglas ljósmyndari, sem rekur Stúdíó Douglas og hefur sérhæft sig í að taka kynþokkafullar myndir af konum. Ekkert gott íslenskt orð er til yfir boudoir að sögn Önnu en bein þýðing er dyngja. „Boudoir-myndir eru rómantískar og kynþokkafullar,“ útskýrir Anna, en slíkar myndir segir hún konur gefa unnustum sínum og eiginmönnum í morgungjöf, afmælisgjöf eða á brúðkaupsafmælum. Einnig eru sumar sem láta taka myndir bara fyrir sjálfar sig. En hvernig kom það til að Anna fór að taka slíkar myndir? „Ég byrjaði á því að taka listrænar nektarmyndir og hugsaði þær fyrir sýningar. Síðan fór ég að fá fyrirspurnir frá konum sem vildu fá slíkar myndir af sér og komu þá með undirföt í myndatökur, oft brúðarnær- föt,“ svarar Anna, sem hefur tekið slíkar myndir í brátt sjö ár. Og hvernig taka eiginmennirnir slíkum gjöfum? „Ég fæ að heyra að þeim þyki gjöfin æðisleg. Stundum hafi þeir beinlínis tárast. Sumir verða líka mjög hissa,“ segir Anna glaðlega. Innt eftir því hvort enginn þeirra verði feiminn við að fá svo persónulega gjöf svarar Anna því neitandi. „Stundum hefur komið fyrir að þeir hafi spurt út í ljósmyndarann, hvort hann hafi verið karl eða kona,“ segir hún og hlær. Anna segir al- gengt að mynd- irnar séu hengdar upp fyrir ofan hjónarúmið. „Þetta eru það smekklegar myndir að þær gætu alveg hangið frammi í stofu,“ segir Anna, en algengara er að listrænni og ópersónulegri myndirnar endi þar. „Konurnar fá síðan albúm með fleiri myndunum úr tökunni. Sumar þeirra eru mjög persónulegar og eru meira ætlaðar fyrir pörin sjálf.“ En eru konurnar ekkert feimnar í myndatökunni? „Þær eru oft stressaðar fyrir myndatökuna en þegar þær eru mættar á staðinn og ég er byrjuð að mynda hverfur stressið. Oft fara kon- urnar líka í hárgreiðslu og förðun, sem fer fram á stofunni og tekur klukkutíma. Þá hefur maður tíma til að spjalla og kynnast. Þetta verður oft mjög skemmtilegt.“ Anna tekur að sjálf- sögðu að sér annars konar myndatök- ur, barna-, fjölskyldu- og brúðar- myndir. „Stundum hef ég tekið myndir í brúðkaupum kvennanna sem ég hef tekið myndir af fyrir morgungjöfina. Þá þykist ég ekkert þekkja brúðina,“ segir hún glað- lega. ■ solveig@365.is NEKTARMYND Í MORGUNGJÖF LJÓSMYNDUN Anna Ellen Douglas ljósmyndari segir æ algengara að konur láti taka af sér svokallaðar „boudoir“-myndir og gefi unnustum og eigin- mönnum. Myndirnar eru síðan oft hengdar fyrir ofan hjónarúmið. LJÓSMYNDARI Anna Ellen Douglas, ljósmyndari hjá Studíó Douglas. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Flott föt fyrir flottar konur Stærðir 38-58 Belladonna á Facebook SUNNUDAG KL. 11:30 Misstu ekki af æsispennandi kappakstri í Formúlu 1. Allt í beinni útsendingu frá Katalóníu í leiftrandi háskerpu. KRAFTUR Í KATALÓNÍU Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is Í OPINNI DAGSKRÁ.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.