Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 30
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 26MENNING
SPRUNGIN
HIMNA
Æfingar
hófust í gær á
gjörningnum
Sprengd hljóð-
himna vinstra
megin.
Sömu leik-
arar taka þátt
í gjörningnum.
Frá vinstri:
Edda Arnljóts-
dóttir, Stefán
Jónsson,
Guðrún S.
Gísladóttir,
Arnar Jónsson,
Kristbjörg
Kjeld, Guðný
Helgadóttir og
John Speight.
Stjórnandi er
Þórunn S. Þor-
grímsdóttir.
Magnús Pálsson er einn áhrifa-
mesti listamaður síðustu sex ára-
tuga á Íslandi. Hann hefur alla
tíð starfað á mörkum leikhúss,
tónlistar og myndlistar og er
þekktastur fyrir gjörningahverfa
skúlptúra á 8. áratug síðustu aldar
og gjörninga síðustu þriggja ára-
tuga.
Sýningin Lúðurhljómur í skó-
kassa verður smám saman til
fyrir augum áhorfenda í Hafn-
arhúsinu vikuna 18. til 25. maí
í Listasafni Reykjavíkur, þar
sem fimm gjörningar Magnúsar
verða endurfluttir í nýrri mynd
og einn frumfluttur. Sýningin
er hluti af Listahátíð í Reykja-
vík en Hanna Styrmisdóttir, list-
rænn stjórnandi hátíðarinnar, er
jafnframt sýningarstjóri Lúður-
hljóms í skókassa, ásamt Jóni
Proppé listfræðingi.
„Við Magnús höfum spjallað um
ýmislegt í gegnum í gegnum tíð-
ina,“ segir Hanna. „Í febrúar 2011
bað hann mig um að vinna með
sér að sýningu í Kling og Bang
2012. Ég hafði gengið með hug-
mynd að yfirlitssýningu á verk-
um hans í maganum og ámálgaði
hana við hann. Honum leist vel á
og við fórum að þróa þetta nánar
saman í ársbyrjun 2012 í sam-
starfi við Listahátíð í Reykjavík,
Listasafn Reykjavíkur og á tíma-
bili Borgarleikhúsið, auk þess sem
ég fékk Jón Proppé til liðs við mig
við sýningarstjórnina.“
Hanna segir að það kunni að
hljóma mótsagnakennt að setja
upp yfirlitssýningu á gjörning-
um, sem eru í eðli sínu einstakur
viðburður sem verður til í augna-
blikinu.
„Það er því ekki hægt að draga
fram gömul verk og raða þeim
saman, því þau eru einfaldlega
ekki til.“ Hins vegar eru til mjög
útfærð handrit að gjörningunum,
sem hægt er að hafa til hliðsjónar
við endurflutningin.
„Magnús hefur hins vegar
engan áhuga á því að endurtaka
gjörning eins og hann hefur verið
gerður áður. Ef við ætluðum á
annað borð að endurgera nokkra
af hans stærri gjörningum vildi
hann nota tækifærið til að fara
nánar í saumana á þeim og velta
upp nýjum hliðum. Þess vegna
fengum við listamenn úr öllum
greinum til að taka þátt í endur-
gerðinni,“ segir Hanna en alls
taka um 150 manns þátt í sýn-
ingunni.
Eftir Magnús liggja sautján
stórir gjörningar frá 1980. Af
þeim verðar fimm endurfluttir
á sýningunni og einn nýr, Stuna,
frumflutt. Hanna segir ýmsar
leiðir farnar í endurgerð verk-
anna. Í einu þeirra er brot úr
sviðsverki sett fram sem sjálf-
stæður gjörningur; annað bygg-
ir á skúlptúr frá 1980 og verður
sett fram sem gjörningur og af
honum mun leiða nýr skúlptúr.
„Verkin sem urðu fyrir valinu
eiga það sameiginlegt að gefa
innsýn í hina gífurlega miklu
breidd sem einkennir lifandi verk
Magnúsar.“ bergsteinn@frettabladid.is
Litið yfi r verk sem eru ekki til
Lúðurhljómur í skókassa nefnist yfi rlitssýning á gjörningum Magnúsar Pálssonar á Listahátíð í Reykjavík. Fimm af sautján gjörningum
Magnúsar 1980 til 2013 verða endurgerðir og nýtt verk frumfl utt. Áherslan lögð á að velta upp nýjum hliðum á gömlum verkum.
Á námskeiðinu lærir þú:
• Hvað eru blómadropar og hvernig getum við notað þá?
• Hvernig eru blómadropar búnir til?
• Hvaðan kemur þekkingin?
• Hvaða árangurs er að vænta með notkun þeirra?
• Hverjir geta notað blómadropa?
• Jákvæðir eiginleikar þeirra og virkni
Staður & stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.19:30 - 22:30
Verð kr. 5.900.-
Skránig í síma 8682880
og nyjaland@gmail.com
www.heilsuhusid.is
Nýtt námskeið á vegum Heilunarskóla Nýjalands
Fimmtudaginn 16. maí
STEFANÍA S. ÓLAFSDÓTTIR græðari kennir hvernig nota
má blómadropa til að styðja við flest það sem við
gerum dags daglega og hvernig þeir hjálpa okkur að
ná árangri með andlega og líkamlega líðan okkar.
SPRENGD HLJÓÐHIMNA VINSTRA MEGIN Fyrst flutt á Litla sviði Þjóðleikhússins í samstarfi við Alþýðuleikhúsið árið 1991.
HANNA STYRMISDÓTTIR Er sýningarstjóri ásamt
Jóni Proppé.
MAGNÚS
PÁLSSON Reynir
að finna nýja
fleti á gömlum
gjörningum.