Fréttablaðið - 09.05.2013, Síða 39

Fréttablaðið - 09.05.2013, Síða 39
FIMMTUDAGUR 9. maí 2013 | MENNING | 35 Bandaríska índírokksveitin Yo La Tengo hefur bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem verður haldin í fimmtánda sinn í haust. Önnur ný erlend nöfn á hátíð- inni eru Tape og El Rojo Adios frá Svíþjóð, Carmen Villain frá Noregi, Moon King frá Kanada og Jakob Juhkam Bänd frá Eist- landi. Á meðal nýrra íslenskra flytjenda eru Ólafur Arnalds, Sól- stafir, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Prins Póló og Samaris. Miðasalan er í fullum gangi á heimasíðu Ice- land Airwaves. Yo La Tengo á Airwaves Á AIRWAVES Yo La Tengo spilar á Iceland Airwaves. Dionne Warwick stígur á svið í Eldborgarsal Hörpu 19. júní. Hún er ein þekktasta söngkona popp- tónlistarsögunnar. Hún hefur unnið fimm Grammy-verðlaun, gefið út 35 breiðskífur sem hafa selst í yfir eitt hundrað milljón- um eintaka og hefur átt 85 lög á topp 100 í Bandaríkjunum, fleiri en nokkur önnur söngkona. Warwick er líklega þekktust fyrir samstarf sitt við tónskáldið Burt Bacharach og félaga hans, Hal David. Hún flutti lög þeirra á borð við I Say a Little Prayer for You og Do You Know the Way to San Jose. Miðasala á tónleikana hefst á Harpa.is og Midi.is á föstudaginn. Warwick með tónleika í júní DIONNE WARWICK Bandaríska söng- konan mætir í Hörpu 19. júní. Barnahjálp SÁÁ verður stofnuð í dag. Henni er ætlað að verða bak- hjarl úrræða fyrir börn alkóhól- ista. „Börn alkóhólista eru ótrú- lega mörg. Það er talið að það séu sex þúsund börn sem þjást vegna áfengis- og vímuefnafíknar for- eldra sinna í dag á Íslandi,“ segir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason. SÁÁ hefur boðið upp á sálfræði- viðtöl fyrir börn áfengis- og vímu- efnasjúklinga síðustu fimm ár og hafa um 600 börn átta til átján ára nýtt sér þessa þjónustu. SÁÁ leitar nú til almennings um stuðning til að geta haldið þessari þjónustu úti. „Þrír sálfræðingar hafa verið að sinna þessu og þeir anna ekki eftirspurn,“ segir Rúnar Freyr. „Barnahjálpin er upphafið í sókn á þessu sviði.“ Í tilefni af stofnun Barna- hjálpar SÁÁ verður haldin barnahátíð SÁÁ í dag klukkan 15 í Efstaleiti 7 þar sem Pollapönk, Mikki refur, Lilli klifurmús og íþróttaálfurinn koma fram. Í kvöld verður uppistand í Gamla bíói þar sem landslið grínista stígur á svið. Miðaverð er 1.500 krónur og renn- ur óskert til Barnahjálparinnar. Fjölskyldum í landinu verður einnig boðið að gerast stuðnings- foreldrar Barnahjálpar SÁÁ, auk þess sem hin árlega álfasala er í fullum gangi. „Við hvetjum alla til að taka sölufólkinu vel því mál- efnið er brýnt.“ - fb Ætlað að verða bakhjarl úrræða fyrir börn alkóhólista Barnahjálp SÁÁ verður stofnuð í dag. Samtökin leita til almennings um stuðning og halda barnahátíð í Efstaleiti í dag. POLLAPÖNK Hljómsveitin Pollapönk kemur fram á barnahátíð SÁÁ í dag. ➜ Fólk getur farið inn á vef- inn Saa.is og lagt Barnahjálp SÁÁ lið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.