Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 42
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 38 FÓTBOLTI K nattspyrnuheimur- inn tók andköf í gærmorgun þegar Manchester United tilkynnti að Sir Alex Ferguson ætti tvo leiki eftir í starfi hjá félaginu. Hinn 71 árs Skoti hafði margoft lýst því yfir í vetur að hungrið væri enn til staðar. Því benti fátt til annars en Ferguson yrði í brúnni hjá Englandsmeisturunum á næstu leiktíð. „Það skipti mig miklu máli að skilja við félagið í sem bestu ástandi og ég tel mig hafa gert það,“ segir Ferguson, sem ætlaði að hætta vorið 2002 en hélt áfram þegar til kastanna kom. „Ég hef velt ákvörðuninni fyrir mér lengi. Nú er rétti tíminn.“ Ferguson stýrir United í síðasta skipti í lokaumferðinni gegn West Brom þann 19. maí. Leikurinn verður sá 1.500. sem þeir rauðu og hvítu spila í stjóratíð Ferguson. kolbeinntumi@365.is Uppbótartímanum lokið Sir Alex Ferguson lætur af starfi knattspyrnustjóra Manchester United í lok leiktíðar eft ir rúm 26 ár í starfi . 1 Spilaði sem framherji og skoraði 171 mark í 317 leikjum frá 1957 til 1974. 2 Fyrsti stjóri mánaðarins í ágúst 1993. 3 Fagnar fyrsta titlinum þegar United vann enska bikarinn vorið 1991. 4 Með Cristiano Ronaldo. 5 Hefur unnið í tvo áratugi með þeim Paul Scholes og Ryan Giggs. ÞRETTÁN SINNUM ENGLANDSMEISTARI Steve McClaren krýnir hér kónginn á Old Trafford með viðeigandi og táknrænum hætti. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY FJÖLDI STJÓRA STÓRU FÉLAGANNA FRÁ 1986 Real Madrid 24 Inter Milan 19 Chelsea 18 Bayern München 14 Juventus 14 Manchester City 14 AC Milan 13 GULLKORN FERGIE Þetta er ekki starf heldur verk- efni. Við munum klára það. Trúið mér. Þegar það gerist mun líf Liver- pool breytast á dramatískan hátt. Um slakt gengi liðsins árið 1988 Ef hann væri tommu hærri þá væri hann besti miðvörðurinn í Bretlandi. Faðir hans er næstum tveir metrar á hæð. Spurning hvort mjólkurpósturinn hafi komið eitt- hvað við sögu. Um Gary Neville Ég sagði alltaf að þegar leik- maður væri á hátindi ferilsins liði honum eins og hann gæti klifið Everest í inniskóm. Þannig var hann. Um Paul Ince Þetta var fáránleg tilviljun. Ef ég myndi reyna þetta hundrað sinnum eða milljón sinnum aftur tækist það ekki. Ef svo væri hefði ég haldið áfram ferli mínum sem leikmaður. Þegar hann sparkaði skó í andlit Davids Beckham í klefanum árið 2003 Þeir segja að hann sé gáfaður maður, er það ekki? Talar fimm tungumál. Ég er með 15 ára strák frá Fílabeinsströndinni sem talar fimm tungumál! Um Arsene Wenger Hraði leiksins í dag þýðir að dómarar verða að vera í standi. Þetta er ljóður á leiknum hér í landi. Ytra sérðu dómara í jafngóðu formi og hundur slátrarans. Nokkrir í úrvals- deildinni eru í góðu formi. Ekki hann. Það tók hann 30 sekúndur að áminna leikmann. Hann þurfti að pústa. Þetta var fáránlegt. Um dómarann Alan Wiley UM TÍÐINDIN Enginn mun fara í skóna hans Ferguson. Þetta eru sorgleg tíðindi fyrir ensku knatt- spyrnuna. Roy Hodgson, landsliðs- þjálfari Englands Ég er ekki að meðtaka fréttirnar. Manchester United án Sir Alex gengur ekki upp. Michael Owen, fyrrver- andi leikmaður United Félagið stendur frammi fyrir miklum vanda– að fylla í skarð hans. Ég tel samt að búið sé að ganga frá því. Ole Gunnar Solskjær, fyrr- verandi leikmaður United Enginn mun leika afrek hans eftir. Fyrir tveimur vikum talaði hann um að vera í tvö ár til viðbótar. Þetta er mikið áfall. Paul Ince, fyrrverandi leikmaður United 2 3 4 5 1 ÁTTA FRÁBÆR KAUP FERGUSON Leikmaður Lið Upphæð (milljónir punda) Gary Pallister Middlesbrough 2,3 Roy Keane Nottingham Forest 3,75 Denis Irwin Oldham 0,625 Eric Cantona Leeds 1,2 Ole Gunnar Solskjær Molde 1,5 Peter Schmeichel Bröndby 0,5 Nemanja Vidic Spartak Moskva 7,0 Cristiano Ronaldo Sporting Lissabon 12,2 FÓTBOLTI Elín Metta Jensen skor- aði fernu í 7-0 stórsigri Vals á Aftureldingu í 1. umferð Pepsi- deildar kvenna og varð þar með fyrsta konan í átta ár til þess að byrja Íslandsmótið á því að skora fjögur mörk. Því hafði engin náð síðan Eyja- konurnar Bryndís Jóhannes- dóttir og Elín Anna Steinars- dóttir skoruðu báðar fjögur mörk í 12-2 sigri ÍBV á ÍA í fyrstu umferð 2005. Elín Metta skoraði ekki bara þessi fjögur mörk því hún átti einnig tvær stoðsendingar á félaga sína. Elín Metta var markadrottning deildarinnar í fyrra en þessi 17 ára gamla stelpa hefur nú skorað 24 mörk í fyrstu 27 leikjum sínum í deild- inni. - óój Besta byrjun konu í átta ár ELÍN METTA Óstöðvandi í fyrsta leik á þriðjudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður og tryggði Tottenham 2-2 jafntefli á móti Chelsea á Stamford Bridge í gærkvöldi í gríðarlega mikilvægum leik í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Jöfnunarmark Gylfa kom tíu mínútum fyrir leikslok. Tottenham er í 5. sætinu, einu stigi á eftir Arsenal og þremur stigum á eftir Chelsea, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. Fjögur efstu sætin gefa sæti í Meistaradeildinni. Chelsea komst tvisvar sinnum yfir í fyrri hálfleik en Emmanuel Adebayor hafði í millitíðinni jafnað metin með frábæru marki. Brasilíumennirnir Oscar og Ramires skoruðu mörk Chelsea. Gylfi Þór hefur þar með skorað fjögur deildarmörk á tímabilinu og hafa þau öll komið á síðustu rúmum tveimur mánuðum. Gylfi hefur skorað 4 mörk í síðustu tíu leikjum þrátt fyrir að hafa byrjað fjóra þeirra á bekknum. - óój Afar mikilvægt mark hjá Gylfa GYLFI FAGNAR Þetta var 7. mark hans fyrir Tottenham á tímabilinu. MYND/AP SPORT HANDBOLTI Esther Viktoría Ragnarsdóttir stóð sig frábærlega með Stjörnunni í úrslitakeppni N1 deildar kvenna og svo vel að hún spilaði sig inn í íslenska A-landsliðið. Ester er eini nýliðinn í 22 manna æfingarhópi Ágústs Jóhannssonar sem tilkynntur var í gær. Ágúst valdi þennan hóp sem tekur þátt í undirbúningi fyrir umspilsleikina við Tékka sem fara fram í byrjun júní. Liðið fer á Netbuss Open í Svíþjóð dagana 23.-27. maí þar sem íslensku stelpurnar mæta Noregi, Svíþjóð og Serbíu, en mótið er liður í undirbúningi fyrir leikina í júní. Esther skoraði 37 mörk í 11 leikjum Stjörnunnar í úrslitakeppninni, þar af 20 mörk í lokaúrslitunum á móti Fram. Hún vakti ekki síst athygli fyrir að taka oft af skarið í leikjunum, ekki síst þar sem hún var með mikla reynslu- bolta sér við hlið. Valskonan Þorgerður Anna Atladóttir gefur ekki kost á sér vegna meiðsla en hún hefur verið í landsliðinu síðan í september í fyrra og forfallast í síðustu verkefni vegna bæði meiðsla og anna í skóla. - óój Esther eini nýliðinn í æfi ngahópi Ágústs ESTHER VIKTORÍA Stjörnustelpan spilaði sig inn í landsliðið í úrslita- keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Íslenski bardagamaðurinn Gunnar Nelson er einn af tuttugu framtíðarmönnum UFC ef marka má umfjöllun eins stærsta íþróttavefs heims, bleacherreport.com. Þar tekur vefurinn fyrir þá tuttugu bardaga- íþróttamenn sem UFC-deildin eigi að veðja á í framtíðinni. Í umfjölluninni er farið lofsamlegum orðum um Gunnar og þar segir að hann sé eitt allra mesta efnið í UFC í dag enda enn bara 24 ára gamall. Gunnar þykir svalur, yfir- vegaður og góður á fótunum og á að mati þeirra möguleika á því að eiga tíu ár eftir í sportinu haldi hann heilsu. Gunnar er enn ósigraður í hringnum. Gunnar einn af tuttugu framtíðarmönnum UFC

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.