Fréttablaðið - 09.05.2013, Page 46

Fréttablaðið - 09.05.2013, Page 46
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 „Ég veit ekki hvað verður úr þessu. Hvort við sendum þetta í næstu Eurovision eða sönglagakeppnina á Suðureyri,“ segir Mugison, sem er staddur í sumarhúsi í Súðavík ásamt KK og Magga Eiríks. Til- efnið er tónleikar þeirra á laugardags- kvöld í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. „Við höfum oft hist á góðgerðartón- leikum og afmælistónleikum og oft djók- að með að við þyrftum að hittast og grilla saman. Svo stóðu þeir við stóðu orðin og bókuðu sumarhús í Súðavík og mættu. Það er ekkert smá töff,“ segir Mugison. Spurður hvort ný lög eða plata sé á leið- inni segir hann það óljóst. „Kannski kemur engin plata, kannski tuttugu. Við erum bara búnir að djamma í nokkra daga en ég myndi gefa þetta út ef ég fengi að ráða. Ég myndi líka gefa út raunveru- leikaþættina KK, Maggi og Mugi Live á netinu,“ segir hann og bætir við að mögu- legt sé að nýtt efni með þeim verði spilað. „Við erum ekkert búnir að kíkja á lög hver hjá öðrum. Við erum bara búnir að djamma eitthvað nýtt. Ætli það verði ekki hittaramessa og kannski eitthvað nýtt ef við þorum.“ - fb ➜ London er uppáhalds- borgin mín og ég vil helst aldrei fara þaðan. ➜ Fyrsta lagið sem Mugison lærði á kassagítar var Hudson Bay eftir Magga Eiríks. „Myndirnar voru teknar í París í janúar eða febrúar. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og fólkið sem kom að því var frábært. Pin Up Studios, þar sem verkefnið fór fram, er þekkt fyrir „brownies“ kökurnar sínar og ég fæ alltaf fiðring í magann þegar ég sé að ég er bókuð hjá þeim því þá veit ég að ég fæ „brownies“ og góðan mat,“ segir fyrirsætan Edda Ósk- arsdóttir, sem sat fyrir á mynda- syrpu sem birtist í franska tíma- ritinu Madame Figaro. Edda þykir efnileg fyrirsæta og hefur starfað sem slík á vegum Eskimo umboðs- skrifstofunnar í rúm tvö ár. Myndirnar fyrir Madame Figaro tók sænski ljósmyndar- inn Jimmy Backius og var þetta stærsta verkefni Eddu fyrir tíma- rit fram að þessu. Áður hafði hún setið fyrir á auglýsingum fyrir fyrirtæki á borð við Aber crombie & Fitch, Benetton og Harvey Nichols. Edda segist kunna vel við sig í fyrirsætustarfinu enda sé það fjölbreytt og skemmtilegt. „Ég bjó í London í hálft ár og það var virki- lega skemmtilegt. London er uppá- haldsborgin mín og ég vil helst aldrei fara þaðan. Starfið er líka mjög fjölbreytt og skemmtilegt og þó ferðalögin geti verið þreyt- andi þá er líka ómetanlegt að fá að ferðast heiminn og kynnast nýju fólki og menningu,“ segir hún. Utan fyrirsætustarfsins stundar Edda fjarnám á náttúrufræðibraut við Fjölbrautaskólann í Ármúla. „Mig langar í læknisfræði eftir stúdentinn, en ætli ég taki ekki tvö ár í að vinna og ferðast áður en ég fer í háskólann, læknisfræðinámið er svo ofsalega langt.“ Aðspurð segist Edda ekki hafa mikinn áhuga á tísku og hönnun en viðurkennir að henni þyki ljós- myndun heillandi. „Ég hef áhuga á tónlist og spila á klarinett, en ég hef aldrei haft mikinn áhuga á tísku. Ljósmyndun heillar mig meira en tíska.“ sara@frettabladid.is Tískuáhuginn lítill Edda Óskarsdóttir situr fyrir í myndaþætti í franska tímaritinu Madame Figaro. Hún segir fyrirsætustarfi ð skemmtilegt en hyggur á læknisnám í framtíðinni. „Við erum bæði alveg rosalega spennt fyrir þessu ævintýri,“ segir Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en hún og eigin maður hennar, Hilm- ir Jensson, hafa skrifað undir árs samning við Leikfélag Akureyrar. Ingibjörg útskrifaðist úr fræð- um og framkvæmd við Lista- háskóla Íslands árið 2011 og sest í leikstjórastólinn norðan heiða. Hilmir er leikari hjá Þjóð- leikhúsinu. „Við erum bæði frá höfuðborgar svæðinu en höfum alltaf talað um að það væri gaman að flytja út á land í einhvern tíma. Það verður spennandi að taka þátt í uppbyggingunni hjá leikfélag- inu,“ segir Ingibjörg, sem leik- stýrir verkinu, Sek eftir Hrafn- hildi Hagalín, hjá leikfélaginu í haust ásamt því að verða aðstoðar- leikstjóri í Gullna hliðinu eftir áramót. Þau Ingibjörg og Hilm- ir þekkja vel þau Hannes Óla Ágústsson og Aðalbjörgu Árna- dóttir, sem nú þegar eru hjá leik- félaginu. „Það verður bara frábært að vera með þeim. Ég kem full af orku úr fæðingarorlofi og hlakka til vetrarins.“ - áp Ný andlit hjá Leikfélagi Akureyrar Leikarahjónin Ingibjörg Huld Haraldsdóttir og Hilmir Jensson eru spennt fyrir því að fl ytja norður. Djamma saman í sumarhúsi Mugison, KK og Magnús Eiríksson með tónleika á Ísafi rði á laugardagskvöld. ➜ Leikara parið Anna Gunn- dís Guðmunds- dóttir og Einar Aðalsteinsson hefur einnig verið á Akureyri í vetur. SPENNANDI Hjónin Ingibjörg Huld Haraldsdóttir og Hilmir Jensson eru spennt fyrir vetrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í SUMARHÚSI Mugison, KK og Maggi Eiríks djamma í sumarhúsi fyrir tónleika á Ísafirði. GENGUR VEL Edda Óskarsdóttir hefur starfað sem fyrirsæta í rúm tvö ár. Hún sat fyrir í myndaþætti fyrir franska tímaritið Madame Figaro. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það er spínatsjeikinn sem ég fæ mér á morgnana. Hann inniheldur spínat, appelsínusafa, mangó og kirsuberjatómata. Einfalt og gott.“ Harpa Þorsteinsdóttir, knattspyrnukona í Stjörnunni. DRYKKURINN SPENNANDI KÓSÍKRIMMI! Fimm gamlingjar komast að því að það er miklu betri aðbúnaður í fangelsum en á elliheimilum og grípa til sinna ráða. En leiðin á bak við rimlana reynist þyrnum stráð ... Steinþór Guðbjartsson Morgunblaðinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.