Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 22
23. maí 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Halla Hrund Pétursdóttir, landslagsarkitekt FILA, hjálpar þér við að skipuleggja draumagarðinn þinn. Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina. Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífs- hættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og niðurgangi. Hjá öðrum var ekki nóg til að borða á heimilinu. Sum komu í kjölfar þess að hafa fengið malaríu eða aðra sjúkdóma. Á einum slíkum spítala horfir áhyggju- full amma fast á mig. Ég brosi skakkt á móti, stödd í Búrkína Fasó sem ég hafði grínast með að kalla Fjarskanistan þar sem fæstir vissu hvar það væri. Höfuð- borgin héti í ofanálag Ouagadougou, sem ég hafði gert fimm tilraunir til að læra að stafsetja. En hér er ég nú, stödd á sjúkra- húsi sem heimsforeldrar UNICEF styðja og fyrir framan mig er hlýleg kona að slig- ast af áhyggjum. Ömmubarnið hennar, lítil stúlka, er skelfilega vannært. Ljóst er að hún á ekki mikið eftir. Sem betur fer eru börnin í kring öll að braggast. Um kvöldið á ég erfitt með að sofna. Hvað verður um þá litlu? Og hvernig á ég að miðla því til fólks heima að það sem gerist hér komi því við? Að þökk sé mánaðar legu framlagi almennings megi gera hluti sem annars hefði ekki verið hægt að gera, til dæmis hjálpa börnunum á sjúkrahúsinu? Ouagadougou heimsins eru mörg: Staðir sem vekja upp framandleika og virðast í órafjarlægð en eru oft miklu nær en við höldum. Staðir þar sem bæði glatt og leitt fólk býr; fólk sem þarf að borða og sofa og verður áhyggjufullt þegar börn þess veikj- ast. Á endanum er þetta ekki flókið: Öll erum við eins inni við beinið og hvert upp á annað komið. Sum okkar eru aflögufær, önnur ekki. Það hlýtur að teljast skynsam- legt að þau sem geta deilt með sér komi öðrum til aðstoðar. Á hverjum degi eru kraftaverk unnin víða um heim. Baráttan gegn barnadauða hefur sem dæmi skilað ótrúlegum árangri og barnadauði minnkað um þriðjung á sl. 10 árum. Viti menn, litla stúlkan sem var í lífshættu á spítalanum braggaðist á end- anum og fékk að fara heim til sín. Meðferð hennar kostaði 12.500 krónur. Ouagadougou HJÁLPARSTARF Sigríður Víðis Jónsdóttir upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi ➜ Um kvöldið á ég erfi tt með að sofna. Hvað verður um þá litlu? Og hvernig á ég að miðla því til fólks heima að það sem gerist hér komi því við? M argt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja „nýja sókn í þágu lands og þjóðar“. Nýja stjórnin boðar lækkun skatta á fólk og fyr- irtæki og einfaldara skattkerfi sem letur fólk ekki til að bjarga sér. Hún ætlar að vinda ofan af misráðnum breyt- ingum á fiskveiðistjórnarkerfinu og endurskoða ramma áætlun um virkjanir og náttúruvernd þannig að mat sérfræðinga en ekki pólitík ráði virkjana kostum. Hún boðar víðtækt samráð og sátt við aðila vinnumarkaðarins, pólitískan stöðugleika í fjár- festingarumhverfinu, afnám gjaldeyrishaftanna og að íslenzkt efnahagslíf njóti trausts á ný, bæði innanlands og erlendis. Allt ætti þetta að geta stuðlað að því að koma hjólum atvinnulífsins í hraðari snúning á ný. Ef ríkisstjórnin ætlar að ná árangri þarf hún að opna íslenzkt efnahagslíf upp á gátt og tryggja samkeppnishæfni þess á alþjóð- legum vettvangi. Um slíka stefnu eru höfð falleg orð í kaflanum um utanríkismál. Ýmislegt í stefnuyfirlýsingunni er hins vegar alls ekki í þeim anda, heldur frekar þeirra „þjóðmenningarlegu“ hughrifa frá Hriflu-Jónasi sem óneitanlega svifu yfir vötnum á fundarstað verðandi landsfeðra á Laugarvatni í gær. Þeir stefna til dæmis ekki að því að Ísland eignist stöðugan, alþjóðlegan gjaldmiðil. Gera á hlé á viðræðum um raunhæfasta möguleikann á slíku, aðild að Evrópusambandinu, og ekkert kemur í staðinn. Án markmiðs um nýjan gjaldmiðil verður erfið- ara að komast út úr höftunum. Þó má segja að það sé jákvætt að í stefnuyfirlýsingunni sé dyrunum í Evrópumálunum ekki skellt alveg í lás, heldur skilin eftir ofurlítil rifa. Ríkisstjórnin ætlar heldur ekki að gera neitt til að efla sam- keppni í landbúnaðinum og lækka þannig matarverð. Í upp- talningu um skatta og gjöld sem á að lækka er ekkert talað um ofurtollana á búvörur. Það á að halda áfram að moka peningum almennings í óhagkvæmt landbúnaðarkerfi og framsóknarmaður í landbúnaðarráðuneytinu mun passa gamla kerfið eins og margir aðrir á undan honum. Svo er mikið vafamál að markmið stjórnarinnar um að ná peningum út úr erlendum kröfuhöfum þjóni markmiðinu um aukið traust íslenzks efnahagslífs á alþjóðavettvangi. Kröfuhafarnir eru nefnilega fjárfestar líka, þótt hræfuglsstimplinum hafi verið klínt á þá, og vilja ekki láta fara illa með sig frekar en aðrir fjárfestar. Hætt er við að margir sem létu loforð um skuldaleiðréttingu ráða atkvæði sínu í kosningunum verði fyrir vonbrigðum með stjórnarsáttmálann. Skuldaleiðréttingin er ekki í hendi, óútfærð og ótímasett. Ef peningarnir frá kröfuhöfum skila sér ekki á að stofna sérlegan leiðréttingarsjóð, en ekki hefur verið útskýrt hvaðan peningarnir í honum eiga að koma. Miklar vonir eru bundnar við nýja ríkisstjórn, ekki sízt hjá fólki sem er athafnasinnað og vill nýta tækifærin í íslenzku efnahags- lífi. Af þeim sökum er talað fullmikið um starfshópa og nefndir í stefnuyfirlýsingunni; það ætti að vera meiri áherzla á skjótar aðgerðir. Og nýir húsbændur í stjórnarráðinu ættu fremur að beina augum út í heim en heim að Hriflu. Ný ríkisstjórn vill blása til sóknar: Hrifla og heimurinn Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Engar nefndir, enga starfshópa Oft hefur verið rætt um mikilvægi þess að stjórnmálamenn mæli skýrt og standi við orð sín. Hið fyrra hefur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, ábyggilega haft í huga þegar hann hélt ræðu á lands- fundi flokksins í febrúar. Þar sagði hann eftirfarandi um það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að taka á stjórn landsins ef hann kæmist til valda: „Eng- ar nefndir, enga starfshópa, engar tafir, aðeins aðgerðir í þágu heimilanna.“ Trauðla verður þó lesið út úr stjórnar- sáttmálanum að Bjarna sé hitt ofarlega í huga, þetta með efndirnar. Þar er að finna fyrirheit um stofnun sex starfshópa og aragrúa nefnda. Og aðgerðirnar í þágu heimilanna eru settar í nefnd. Og verðtryggingin líka. Og ýmislegt fleira. Engar nefndir, enga starfshópa varð því að fullt af nefndum og nokkrum starfshópum. Kannski málamiðlun Nú gæti einhver bent á það að stjórnarsáttmáli sé málamiðlun tveggja flokka og þess vegna sé ekki endilega hægt að tala um að svíkja gefna stefnu þótt allt úr henni fari ekki inn í stefnu ríkisstjórnar. En mikil hlýtur þá krafa Fram- sóknar- flokks- ins að hafa verið um margar nefndir og starfs- hópa fyrst þetta varð málamiðlunin. Eða ekki. Athyglisverður fundur Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar laugardaginn 1. júní. Þar á meðal annars að leggja línurnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar að ári. Ljóst er hins vegar að nokkru púðri verður eytt í að gera upp nýyfirstaðnar kosningar. Mesta fylgistap Íslandssögunnar mun ábyggilega kalla á eina eða tvær ræður og þeir sem gagnrýndu formanninn, Árna Pál Árnason, í kjölfar þeirra, hafa þarna tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.