Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 70
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54 „Það er náttúrulega íslenska vatnið sem er í uppáhaldi. Ég leyfi mér samt stundum Egils Appelsín, sá drykkur er mjög góður með grillinu á sumrin.“ Sandra Sigurðardóttir, markvörður meistara- flokks Stjörnunnar í knattspyrnu og íslenska landsliðsins. DRYKKURINN Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunn- arsson heldur ferilstónleika í Eld- borgarsal Hörpu 7. september. Þar fer hann yfir söngferil sinn sem telur fleiri áratugi og fjölda smella. „Það verður gaman að slá í góða veislu og safna saman góðum tón- listarmönnum sem maður fílar og hafa spilað með manni í gegnum tíðina,“ segir Pálmi, sem hefur sungið með Mannakornum, Bruna- liðinu og fleiri hljómsveitum. Sérstakir gestir á tónleikun- um verða Maggi Eiríks og Ellen Kristjánsdóttir sem hafa unnið með honum í Mannakornum. „Það kom ekkert annað til greina. Þetta hefur verið samstarfsfólk mitt alveg frá ´74 eða ´75 og það er æðislegt að fá þau til að kíkja á mig.“ Tónlistarstjóri verður Þórir Úlf- arsson, auk þess sem tvær dætur Pálma og sonur hans koma fram. Hann er ánægður að njóta liðsinn- is barnanna sinna. „Þetta er allt saman þrælmúsíkalskt fólk sem hefur komið nálægt tónlist hvert á sinn hátt.“ Aðspurður segir hann að tími hafi verið kominn á tónleika sem þessa. „Þetta er hell- ingur af árum og það er fullt af músík sem ég er búinn að koma nálægt. Ég lít á þetta sem flotta veislu sem er verið að bjóða upp á og ég ætla að sjá til þess að hún verði það.“ - fb Lítur á þetta sem fl otta veislu Ferilstónleikar Pálma Gunnarssonar verða í Eldborgarsalnum í Hörpu í september. ➜ Pálmi söng Gleðibankann, fyrsta lag Íslands í Eurovision. Hann lék einnig í fyrstu uppfærslu Jesus Christ Superstar á Íslandi hjá Leikfélagi Reykjavíkur. „Það er mjög gaman að vera að gera nýja bók en þessi hefur verið í undirbúningi síðan í janúar,“ segir hárgreiðslukonan Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack, sem er þessa dagana í myndatökum fyrir nýja bók sem er tileinkuð hári og hár- greiðslum. Það er danska hárfyrirtækið HH Simonsen sem gefur bókina út en eigendur þess heilluðust af fyrri bók Theodóru, Hárið, sem sló í gegn á Íslandi fyrir jólin. „Þeir sáu bókina mína er þeir voru hér á landi og höfðu samband við mig. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir mig og gaman að vera fengin til verksins. Smá meiri pressa að vera að vinna fyrir einhvern annan en sjálfan sig eins og þegar ég gerði Hárið,“ segir Theodóra en bókin er ætluð fyrir Norðurlandamarkað og skartar um tuttugu hárgreiðslum af ýmsum toga. Þessa dagana er Theodóra í stúdíói ásamt ljósmyndaranum Sögu Sigurðardóttur, sminkunni Fríðu Maríu Harðardóttur og stíl- istanum Hildi Sumarliðadóttur. „Saga tók allar myndirnar fyrir síðustu bók og hún flaug sérstak- lega heim frá London til að gera þetta verkefni með mér. Það skiptir miklu máli að vera með gott teymi á bak við sig. Auk bókarinnar er hér tökulið að taka upp myndbönd sem verða líklega aðgengileg á net- inu samhliða útgáfu bókarinnar.“ Velgengni bókarinnar Hárið hefur verið mikil en bókin hefur verið á topp 20 á metsölulistum síðan í janúar. Theodóra sér þó ekki fram á aðra bók í bráð því hún er einnig í námi í vöru hönnun hjá Listaháskóla Íslands. Hún er frekar með á bak við eyrað að gefa Hárið út erlendis. „Það er á lang- tímaplaninu en maður þarf að fara í gegnum mikinn frumskóg til að það geti orðið að veruleika. Það tekur tíma en væri mjög gaman ef af yrði.“ alfrun@frettabladid.is Undirbýr bók um hár fyrir Norðurlöndin Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack er þessa dagana að undirbúa nýja hárbók fyrir Norðurlandamarkað. Theodóra Mjöll sló rækilega í gegn með bók sinni Hárið sem kom út fyrir jól í fyrra og gerði það að verkum að ákveðið háræði greip þjóðina. NÝ BÓK Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack , lengst til hægri, var fengin til að gera hárbók fyrir danska fyrirtækið HH Simonsen sem er ætluð fyrir Norðurlandamarkað. Hér er hún ásamt sminkunni Fríðu Maríu í myndatökum fyrir nýju bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI ➜ Bókin Hárið hefur selst í 13 þúsund eintökum frá því að hún kom út í desember í fyrra. „Ég sinni mjög mörgum börnum á heilsugæslunni þar sem ég er að vinna og þau eru oft að spyrja um hitt og þetta,“ segir Haukur Heið- ar Hauksson, söngvari í Diktu. Hann hefur gefið út bókina Viltu vita meira um líkamann? Henni er ætlað að fræða börn um manns- líkamann og er frumraun hans í bókaútgáfu. „Hún er stíluð inn á krakka sem eru að byrja að lesa og alveg upp í tólf ára og eldri,“ segir Hauk- ur Heiðar. „Þetta er mjög gagn- virk bók með endalausum flipum sem krakkarnir fletta fram og til baka.“ Hann segir að þörf hafi verið á bók sem þessari. „Í starfi mínu sem læknir og sem foreldri hefur mér fundist vanta bók á markað- inn sem útskýrir líkamann fyrir krökkum á skemmtilegan en samt fræðandi máta. Þess vegna fór ég að litast um eftir erlendum bókum og datt niður á þessa bresku bók,“ segir hann. Söngvarinn sá einnig um graf- ísku vinnuna í kringum bókina og hafði mjög gaman af öllu ferlinu, sem hefur tekið marga mánuði. Bókina gefur hann út í samstarfi við Rósakot, sem er ný íslensk bókaútgáfa sem sérhæfir sig í barnabókum. - fb Söngvari Diktu gefur út barnabók Læknirinn Haukur Heiðar Hauksson hefur þýtt barnabók um mannslíkamann. GEFUR ÚT BARNABÓK Popparinn Haukur Heiðar Hauksson með syni sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ➜ Útgáfuteiti verður í Máli og menningu á Laugavegi á laugardaginn kl. 15 og að sjálf- sögðu mætir Haukur Heiðar með gítarinn og tekur lagið. PÁLMI GUNNARSSON Ferilstón- leikar Pálma verða í Eldborgarsal Hörpu 7. september. HÚN ER HORFIN EFTIR GILLIAN FLYNN ÞÝÐANDI: BJARNI JÓNSSON D YN A M O R E YK JA VÍ K 1. SÆTI BEINT Á TOPPINN! Mest selda bókin í öllum flokkum í verslunum Eymundsson vikuna 15.05.13 - 21.05.13 „Sagan hreinlegahrífur lesandannmeð sér, þetta erhrein og klár fíkn.“WASHINGTON POST ER ÞAÐ EKKI ALLTAF EIGINMAÐURINN? www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | HERBAMARE FÆST Í NETTÓ Kræsingar & kostakjör Herbamare er blanda lífrænna jurta og grænmetis með hreinu sjávarsalti. Einstök bragðgæði Herbamare draga fram góða bragðið í hverjum rétti á náttúrulegan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.