Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 52
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 BÆKUR ★★★ ★★ Börnin í Dimmuvík Jón Atli Jónasson JPV-ÚTGÁFA Bókin Börnin í Dimmu- vík eftir Jón Atla Jónas- son lætur ekki mikið yfir sér. 83 síður í örsmáu broti og ekki mikill texti á hverri síðu. Sagan er þó stór og víðfeðm, spannar 80 ár í tíma og óravíddir í huga söguhetjunn- ar nafnlausu sem fædd er 1918 og rifjar upp æskuárin sitjandi á kirkjubekk við jarðarför síns eina bróður. Uppistaða sögunnar er frá árinu 1930 þegar sögukona er tólf ára gömul og býr í nafnlausri vík, sem hún kallar Dimmuvík til þess að kalla hana eitthvað, á ótilgreind- um stað á landinu með foreldr- um sínum og tveimur systkinum. Það sem kemur atburðarásinni af stað er fæðing sem um leið er dauði og setur líf fjölskyldunn- ar í enn meira uppnám en harðri lífs baráttunni hefur nokkru sinni tekist. Þetta andvana barn verður táknmynd fyrir lífið sem Dimmu- víkin býður upp á þar sem hung- ur, myrkur, sorg og skortur á tján- ingu reisir veggi milli fólks og allar útgöngudyr virðast lokað- ar. Þegar ærnar síðan veikjast af óskilgreindum sjúkdómi og þarf að skera þær allar virðist enda fátt bíða nema hungurdauðinn. Frásögnin er látlaus og einföld í öllum sínum hryllingi. Við sjáum þessa eymdarvík og líf fjölskyld- unnar þar með augum hinnar tólf ára stúlku sem reynir hvað hún getur að bjarga því sem bjargað verður en getur auðvitað engu bjargað nema sjálfri sér. Það er barnsdauði sem startar sögunni og hálft í hvoru á lesandinn von á að það sé upphafið að drauga- sögu en hér er ekki beitt neinum ódýrum trixum af yfirnáttúru- legum toga, lífsbaráttan sjálf er nógu mikill hryllingur, þarf ekki draugagang til. Óhugnaðurinn er þó alltaf kraumandi undir í text- anum og í draumum sínum upplif- ir sögustúlkan ýmislegt sem ekki þolir dagsljósið. Martraðirnar eru þó nánast barnaleikur miðað við raunveruleikann og á köflum liggur við að lesandinn óski eftir aðeins minna raunsæi, raunveru- legur hryllingur er svo margfalt harðari undir tönn en sá ímyndaði. Sagan er ágætlega skrifuð og ógnin sem alltaf vakir rétt undir yfirborði textans er nánast áþreif- anleg. Myndirnar sterkar og sann- færandi og vísa aftur til skálda á borð við Jón Trausta sem manna best skrifaði um harðræðið sem íslensk alþýða bjó við til skamms tíma. Það vantar þó einhvern herslumun til að sagan nái að hrífa mann alveg með sér. Persónurnar eru hálfgerðar skuggamyndir og eins og eðlilegt er í frásögn barns er framferði foreldranna illskilj- anlegt, sem truflar heildarmynd- ina af þessu hokurlífi og ástæð- unum fyrir ráðaleysi fullorðna fólksins. Engu að síður er hér á ferðinni athyglisverð saga sem hollt er fyrir okkur að lesa og hugsa um á þessum svokölluðu krepputímum nútímans. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Sterk saga þar sem lífsbarátta forfeðranna er í brenni- depli. Vel dregnar myndir sem lifa lengi í huga lesandans en þokukennd persónusköpun dregur nokkuð úr áhrifunum. Hungurleikar hinir meiriHVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2013 Heimildarmyndir 20.00 Heimildarmyndin „Do the math“ verður sýnd í Sláturhúsinu á Egils- stöðum. Myndin fjallar um vaxandi hreyfingu fólks sem vill snúa við neikvæðri þróun loftslagsbreytinga og berjast gegn jarðefnaeldsneytisiðnaði sem þau telja megin orsök vandans. Aðgangur er ókeypis. Málþing 09.00 Nordens Välfärdscenter NVC og Norræna félagið á Íslandi bjóða til málþings um stöðu ungs fólks á vinnu- markaði og brottfall úr skóla í Norræna húsinu. Meginþema málþingsins verður nýútkomin skýrsla „Unge på kanten“ sem unnin var fyrir Norrænu ráðherra- nefndina. Bjørn Halvorsen verkefna- stjóri skýrslunnar kynnir niðurstöður hennar ásamt Jenny Tägtström. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á norden.is. Tónlist 20.00 Drengjakór Reykjavíkur heldur vortónleika í Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson og orgelleikari Lenka Mátéová. 21.00 Jazzsöngkonan Auður Guðjohn- sen heldur tónleika á Café Rosenberg. Á dagskránni eru þekktir og vinsælir jazzslagarar. 21.00 Tómas Magnús Tómasson fagnar 59 ára afmæli sínu með tónleikum á Ob-La-Dí Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Meðal þeirra sem fram koma eru Andrea Gylfa og Bíóbandið,Gunnar Þórðarson,Egill Ólafsson, Ásgeir Jónsson og Bítladreng- irnir blíðu. 22.00 Tónleikar Málmsmíðafélagsins verða haldnir á Gamla Gauknum. Leikin verða þekkt þjóðlög kennd við málm, frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Listamannaspjall 12.15 Björn Roth tekur þátt í hádegis- spjalli í tengslum við yfirlitssýningu Magnúsar Pálssonar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þar rifjar hann upp samstarf föður síns, Dieter Roth, og Magnúsar. Fyrirlestrar 12.05 Inga Lára Baldvinsdóttir, fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands, flytur erindi sitt Myndsýn Íslendinga? Hugleiðingar um myndnotkun opinberra aðila, mynd- birtingu sjálfsmyndar þjóðarinnar og stöðu íslenskrar samtímaljósmyndunar. Fyrirlesturinn verður í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands fimmtudaginn 23. maí kl. 12.05. Fyrirlesturinn er frír og öllum opin. Myndlist 17.00 Torfi Ásgeirsson myndlistar- maður opnar sýningu á verkum sínum í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga í Bókasafni Seltjarnarness við Eiðistorg. Myndirnar eru málaðar með olíulitum á striga. Þær eru nostursamlega unnar og bera vitni um öguð og nákvæm vinnu- brögð sem krefjast bæði þekkingar á málaralistinni og úthaldi til að ná fram settu marki. Allir eru velkomnir. 18.00 Gjörningur Magnúsar Pálssonar Ævintýr/ Þrígaldur þursavænn verður fluttur í Hafnarhúsinu. Gjörningurinn er hluti af yfirlitssýningunni Lúðrahljómur í skókassa. Ævintýr er byggt á ítalskri þjóðsögu í endursögn Italo Calvino. Tónskáldin Atli Ingólfsson og Þráinn Hjálmarsson nálgast hér verkið út frá sjónarhóli tónlistarinnar sem fólgin er í tungumálinu og sem er rauður þráður í gjörningum Magnúsar. Þrígaldur þursavænn í útfærslu nemenda Lista- háskóla Íslands. Verð kr. 2.000. Miðasala fer fram á midi.is Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is 28. maí og 20. júní – síðustu sæti Ótrúleg kjör! Costa del Sol E N N E M M / S IA • N M 57 86 7 Frá 85.900 kr. Aguamarina Kr. 85.900 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi í 13 nætur. Verð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð kr. 99.900 í 13 nætur. Sértilboð 28. maí. Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu þann 28. maí í 13 nætur og 20. júní í 11 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Sterkir litir einkenna verk mynd- listarmannsins Torfa Ásgeirs- sonar sem opnar sýningu í dag í Bókasafni Seltjarnarness. Þar eru íslensk náttúra og birta algeng grunnstef, einnig kyrrð og tíma- leysi. Myndir Torfa eru málaðar með olíulitum á striga. Torfi er fæddur á Húsavík 1960. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1981 og útskrifaðist frá málara- deild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988. Hann hefur sýnt víða, meðal annars í Ásmundar- sal og Safnahúsinu á Húsavík. Þá hefur hann tekið þátt í samsýning- um, meðal annars í Hafnarhúsinu í Reykjavík árið 1995. Allir eru velkomnir á opnun sýn- ingarinnar, hún er opin alla virka daga milli klukkan 10 og 19, nema föstudaga frá 10 til 17. Aðgangur er ókeypis. Íslensk náttúra og birta algeng grunnstef Torfi Ásgeirsson myndlistarmaður opnar sýningu í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga í Bókasafni Seltjarnar ness við Eiðistorg, í dag klukkan 17. Þar eru olíumálverk á striga. OLÍA Á STRIGA Ein myndanna á sýningunni í Bókasafni Seltjarnarness. Staður og stund nefnast nýir þættir sem eru á dagskrá Rásar 1 á föstudögum klukkan 15.25. Umsjónarmaður þáttanna er Svavar Jónatansson ljósmyndari en hann hefur áður stýrt þátt- unum Vestur um haf, Liðast um landið, Við frostmark og nú síðast Leitinni, sem lýkur göngu sinni í lok maí. Í Stað og stund verða fjöl- breyttar frásagnir, þar sem til- viljanir augnablika blandast for- tíð og sögu í gegnum upplifun umsjónarmannsins og viðmæl- enda hans. Meðal efnis má nefna Flugvallar útópíu í Berlín, fiðlu- leik í lest meðfram Balaton-vatni, hættuför Rússa á Vatnajökli og útlaga í Utah. Staður og stund á Rás 1 SVAVAR JÓNATANSSON Stýrir nýjum þáttum á Rás 1. JÓN ATLI JÓNASSON Frásögnin er látlaus og einföld í öllum sínum hryllingi, segir í dómi, myndirnar sterkar og sannfærandi og vísa aftur til skálda á borð við Jón Trausta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.