Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 58
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
„Þetta er bæði flóa- og hönnunar-
markaður. Fólk getur annaðhvort
selt eitthvað sem það býr til eða
hluti sem það vill losa sig við eftir
vorhreingerningarnar,“ segir
Alma Geirdal um flóamarkað
sem haldinn verður í húsnæði við
Dalshraun 5 í Hafnarfirði þann 1.
júní. Alma skipuleggur markaðinn
ásamt Jóni Arnari Guðbrandssyni,
veitingamanni á Lemon.
Um tuttugu básar eru til útleigu
og hefur meirihluti þeirra þegar
verið leigður út fyrir opnunarhelg-
ina. „Hafnfirðingar eru svo mikil
krútt og flestir vilja helst ekki
sækja þjónustu út fyrir bæinn. Hér
verða alltaf mikil fagnaðarlæti
þegar bætist við verslunar flóruna
í bænum og bæjarbúar hafa því
tekið vel í hugmyndina um að hér
verði opnaður flóamarkaður,“
segir Alma. „Ég held að það séu
bara fjórir básar enn óútleigðir.“
Alma verður sjálf með bás á
markaðnum og mun selja fatnað
á börn og konur. „Ég er týpískur
fatasankari og ætla að nýta tæki-
færið og létta aðeins á fatastafl-
anum. Ég veit að nokkrar þekktar
skvísur úr Hafnarfirðinum verða
með bás umrædda helgi og fólk
ætti því að geta gert góð kaup.“
Markaðurinn verður opinn frá
klukkan 12 til 18 helgina 1. til 2.
júní. Eftir það verður markaður-
inn opinn fimmtudag til sunnu-
dags. Hægt er að panta bás með
því að senda Ölmu póst á netfangið
almageirdal@gmail.com.
sara@frettabladid.is
„Það er ekki að sjá á þér að þú sért
ólétt, ekkert nema kúlan bara.“
Þetta er eitt æðsta hrós sem lík-
ami verðandi móður getur hlotið.
Þessu fylgir iðulega smá hring-
snúningur svo viðkomandi geti
metið bjúg, bólgur, fitukíló á móti
meðgöngutengdum kílóum og
hvort kúlan sjáist aftan frá. Áður
en allt þetta á sér stað er auðvitað
búið að lesa í lögun kúlunnar og
spá fyrir um kyn og hvort stærð
hennar samsvari meðgöngulengd.
Þetta er allt hægt að gera án þess
að snerta. Það er nefnilega svo í
dag að flest fólk veit að bumbu
skuli ekki strjúka nema með leyfi,
fáðu já virðist hafa borað sig inn í
undirmeðvitundina og nú er bara
skoðað og strokið með orðum.
Ég veit að þessi pistill mun stuða
suma og það verður bara að hafa
það. Kannski myndi ég ekki skrifa
hann nema af því ég virðist vera
í hópi þeirra kvenna sem „er bara
kúlan“. Ég er alls ekki að kvarta
undan þessu hrósi, en í samfélagi
þar sem endalaust er pælt í líkama
konunnar þá þykir mér þetta sér-
lega áhugavert, sérstaklega þar
sem athugasemdirnar koma oftast
frá öðrum konum. Karlar hafa
sagt mér að ég sé alveg að springa,
hvort þarna inni leynist nokkuð
tvö börn því ég sé svo risastór.
Konur fussa og sveia yfir slíku og
biðja mig um að snúa mér annan
hring. Hvað vita karlar um óléttan
líkama þegar þeirra eigin fitu-
söfnun svipar skuggalega mikið til
fyrrgreinds ferlis án kraftaverks-
ins að geta af sér nýtt líf?
Það fyndna við þetta allt saman
er að það svæði sem ég er hvað
viðkvæmust fyrir og fæ sjaldan
eða aldrei hrós fyrir, er nú í sviðs-
ljósinu og hyllt af ókunnugum. Svo
tölum við „bumburnar“ saman og
endurtökum kvakið. Hrósum útliti
hver annarrar (sem reyndar við
stelpur eigum almennt til að gera
þegar við hittumst), spyrjum jafn-
vel út í hversu mörg kíló viðkom-
andi sé búinn að bæta á sig, hvaða
hreyfingu hún sinni og vorkennum
aumingja konunum með bjúginn.
Greyið Kim …
Skjótt skipast svo veður í lofti
því um leið og barninu er skotið út
þá eigum við að skreppa saman.
Þá segja þær: „það er ekki að sjá
á þér að þú hafir eignast barn.“
Það er platínuhrós. Bumban og
bjúgurinn horfinn, brjóstin stór og
stinn, barnið bundið utan um þig
er þú splæsir loksins í mímósu í
dögurð með stelpunum. Af hverju
er áherslan á líkama konunnar
alltaf svona mikil? Við fáum aldrei
frí, eða gefum hverri annarri frí,
frá ítarlegri úttekt á líkamsvexti.
Getum við hætt að tala saman út
á við og farið inn á við? Það má
alveg spyrja bara út í það hvernig
meðgangan gengur eða ef þú vilt
hrósa útliti þá er „ofsalega ertu nú
falleg“ alveg feikinóg.
Hrós handa ófrískum konum
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst
og segðu henni frá vanda-
máli úr bólinu. Lausnin
gæti birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Alma er uppalin í
Kópavogi en hefur búið
í Hafnarfirði frá því hún
var sautján ára gömul og
segist líta á sig sem Hafn-
firðing. „Það er dásam-
legt að búa í Hafnarfirði.
Það sem gerir bæinn svo
sérstakan er bæjarbragur-
inn sem ríkir hér. Hér er
öll þjónusta og maður
þarf ekki að sækja margt
inn til Reykjavíkur. Svo er
Hafnarfjörðurinn bæði
barnvænn og kósí.“
Kósí bæjarbragur í Hafnarfirði
Krúttlegir Hafnfi rðingar
taka vel í markað
Alma Geirdal skipuleggur hönnunar- og fl óamarkað í Hafnarfi rði. Hún segir
Hafn fi rðinga helst sækja þjónustu innan bæjarmarkanna og taka nýjungum vel.
MARKAÐUR Í HAFNARFIRÐI Alma Geirdal skipuleggur markað í Hafnarfirði helgina 1. til 2. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Límonaði er dásamlegur sumar-
drykkur, enda frískandi og sval-
andi. Límonaði, og þá helst heima-
gert, hefur lengi verið vinsæll
svaladrykkur í Bandaríkjunum,
Kanada, Bretlandi og Írlandi.
Limonana, svaladrykkur úr sítrón-
um og myntu, er jafnframt gríðar-
lega vinsæll í löndum á borð við
Jórdaníu, Líbanon og Sýrland.
Yfirleitt er drykkurinn búinn
til úr sítrónum, vatni og sykri
og oft liggja fjölskyldur á upp-
skriftum sínum eins og ormar á
gulli. Límon aðið þykir einnig hafa
heilsusamleg áhrif vegna sítrón-
unnar og er talið að dagleg neysla
drykkjarins komi í veg fyrir
myndun nýrnasteina.
Hollur og svalandi
sumardrykkur
Límonaði er dásamlegur drykkur fyrir sumarið.
SVALADRYKKUR Límonaði borið fram
á skemmtilegan máta. NORDICPHOTOS/GETTY
2 bollar sykur
1 bolli heitt vatn
2 bollar nýkreistur sítrónusafi
1 sítróna, skorin
mynta til skreytingar
Klassísk uppskrift
Setjið sykur og heitt vatn í stóra könnu og
hrærið þar til sykurinn leysist upp. Bætið við
sítrónusafanum og fyllið könnuna af köldu
vatni. Hrærið vel. Hellið drykknum í glös og
skreytið með sítrónusneiðum og myntu.
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur, perur og fleiri góðir
ávextir. 4 tegundir af ávöxtum eru á bakkanum – við veljum
það sem er best hverju sinni eftir árstíðum og framboði.
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
TORTILLA
OSTABAKKI
Fyrir 10 manns
1.990 kr.