Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 23. maí 2013 | MENNING | 45 Þeir sem sækja veislur á heim- ili ungstirnisins Justins Bieber þurfa að skrifa undir samning þess efnis að tjá sig ekki um það sem þar fer fram. Þeir sem fara ekki eftir reglum Biebers gætu átt á hættu að söngvarinn krefð- ist fimm milljóna Bandaríkja- dollara, um 615 milljóna króna, í skaðabætur. Slúðursíðan TMZ birti í gær innihald slíks samnings sem henni hefur áskotn- ast. Þar kemur fram að þeim sem skrifa undir samninginn sé óheimilt að tjá sig á nokk- urn hátt um það sem fram fer á heimili stjörnunnar, hvort sem er í einkasam- tölum eða á sam- félagsmiðlum. Slíkir samningar munu ekki vera óalgengir í Holly- wood. Mega ekki tjá sig um Bieber JUSTIN BIEBER Vill ekki að gestir tali um veislurnar sínar. Kíktu á midi.is til að sjá framboðið af tónleikum, kvikmynda -og leiksýningum og íþróttaviðburðum. HVERNIG VÆRI AÐ KÍKJA ÚT Í KVÖLD? Keith Richards, gítarleikari Roll- ing Stones, hefur greint frá því að hann skuldi bókasafnssektir hálfa öld aftur í tímann. Í viðtali við The Sun segist Richards hafa eytt mörgum góðum stundum á bóka- safninu í heimabæ sínum, Dart- ford, þegar hann var barn og þótt sumar bækurnar sem hann fékk lánaðar svo góðar að hann hafi ekki fengið af sér að skila þeim. Samkvæmt The Sun er líklegt að bókasafnsskuld Richards nemi í dag um fjórum milljónum íslenskra króna. Keith skuldar bókasafninu KEITH RICHARDS Skilaði ekki bókasafns bókum fyrir fimmtíu árum. Madonna vill ekki að dóttir sín, hin sextán ára gamla Lourdes Leon, fari á stefnumót án umsjónarmanns. Kærasti Leon er Homeland-leikarinn Timothee Chalame og stunda þau bæði nám við menntaskólann LaGuardia Performing Arts. Madonna sagði í viðtali við Extra að henni þætti kærasti dóttur sinnar „mjög viðkunnan- legur“. Söngkonan vill þó ekki að dóttirin og kærasti hennar sæki veislur án þess að vera í fylgd með fullorðnum. Ströng móðir ÁBYRG Madonna vill ekki að dóttir sín fari í veislur án fylgdar. NORDICPHOTOS/GETTY Leikarinn Will Smith fór nýlega í hljóðver með rapparanum Kanye West. „Ég hef verið að leika mér með Kanye. Við fórum tvisvar í hljóðver saman,“ sagði Smith í viðtali við Hip Hollywood. Hann sló fyrst í gegn sem rappari áður en hann sneri sér að leiklistinni með góðum árangri. „Kannski fæ ég bakteríuna. Mig langar ekki að snúa aftur nema ég fái mikinn innblástur en hann hefur ýtt dálítið við mér,“ sagði hann um samstarfið við Kanye West. Orðrómur hafði verið uppi um að Smith og Kanye hefðu farið saman í hljóðver í Brasilíu og hann átti við rök að styðjast. Ekki er vitað hvað þeir voru nákvæmlega að bralla en samstarfið er engu að síður áhugavert. Smith hefur ekki gefið út plötu síðan 2005 þegar Lost and Found kom út. Hún komst á topp tíu á bandaríska Billboard-listanum. Vinsælasta plata leikarans er Big Willie Style frá árinu 1997 sem náði nífaldri platínusölu í Bandaríkjunum. SAMSTARF Will Smith og Kanye West fóru saman í hljóðver á dögunum. Smith og Kanye saman í hljóðver Leikarinn Will Smith og rapparinn Kanye West fóru saman í hljóðver.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.