Fréttablaðið - 23.05.2013, Side 37
„Ég kynntist túrmerik-drykknum fyrst þegar ég var
að berjast við fylgigigt sem ég fékk í kjölfar
salmonellu-sýkingar. Þá drakk ég 2-3 glös á dag af
þessum bragðgóða drykk. Ég sigraðist á
veikindunum á mjög stuttum tíma og tel að
túrmerik-drykkurinn hafi klárlega gert sitt í þeim
skjóta bata. Ég hef haldið áfram að drekka drykkinn
eftir veikindin og hann verður bara betri með
hverjum deginum. Ég get í raun vart verið án hans.“
Nú hafa orðið heilmiklar breytingar hjá My Secret.
Við fengum hönnuðinn Bjarneyju Hinriksdóttur
(www.baddydesign.is) til þess að hanna nýtt útlit á
vörumerkið og nýjar umbúðir fyrir drykkina og þykir
okkur henni hafa tekist virkilega vel til.
Nú eru drykkirnir fáanlegir í 330 ml glerflöskum í
stað 300 ml plastflaskna. Auk þess hafa 2ja lítra
flöskurnar fengið yfirhalningu. Þá höfum við nú
loksins tekið í notkun nýja verksmiðju í Hveragerði
þar sem við nýtum jarðgufuna við framleiðsluferlið.
Engiferdrykkirnir okkar, sem hlotið hafa alþjóðleg
verðlaun, eru hugsaðir sem heilsubætandi drykkir
þar sem grunnefnið er hið sígilda og sívinsæla
engifer.
My Secret-drykkirnir eru eingöngu unnir úr
náttúrulegum hráefnum og innihalda engin gervi-,
litar- eða rotvarnarefni.
Gamla góða leyndarmálið varðveitt í nýjum umbúðum
Sigraðist á veikindum
með hjálp túrmerik-
drykkjarins
Björgvin Páll Gústafsson
www.mysecret.is
„Ég vil þakka My Secret bætta heilsu mína. Mér var
bent á að My Secret vörurnar gætu hjálpað mér með
að verja magann vegna inntöku háskammta af
sterum í æð og annarra aukaverkana sem eru
afleiðingar af MS kasti.
Ég byrjaði því í október 2011 að drekka My Secret
engiferdrykkina, eitt til tvö glös á dag, og fann strax
mun á meltingunni og líðan almennt. Snemma árs
2012 prófaði ég svo My Secret túrmerik-drykkinn,
þótt hann væri ekki kominn á almennan markað. Og
það var heldur betur eitthvað sem „kikkaði“ inn, strax
á fyrstu dögunum. Eftir að hafa prófað þennan drykk
vil ég ekkert annað, það er ekki flóknara en svo.
Heilsan er öll miklu betri og allt í rétta átt, kraftur og
úthald skila sér smám saman til baka, minni spasmi
í fótleggjum og líffærum, s.s. blöðru, einbeiting er
meiri, hlýrra almennt í líkamanum, sætindaþörf og
svengdartilfinning mun minni, orka meiri og þannig
má áfram telja. Ég fæ ekki umgangspestir sem eru í
kringum mig, sef mun betur á nóttunni – en ég hafði
ekki sofið heila nótt í tíu mánuði samfleytt áður en
ég byrjaði á þessum drykk og varð því virkilega sátt
þegar ég náði loks heilli nótt. Ég hef meira jafnvægi
og er fljótari að jafna mig eftir áreynslu og er með
snöggtum meira af jákvæðri orku.
Ég ákaflega þakklát fyrir þennan nýja túrmerik-
drykk, hann veitir mér meiri von og það besta er að
hann er 100% náttúrlegur og án allra aukaefna,
sem er mér afar mikilvægt.
Það er von mín að fleiri geti notið góðs af þessum
heilsubætandi drykk sem er unninn úr okkar frábæra
íslenska hreina vatni.“