Fréttablaðið - 23.05.2013, Page 64
23. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
Vítanýting í Pepsi-deildinni í fyrstu fjórum umferðunum
PEPSI DEILDIN 2013
ÚRSLIT
Þór/KA - Valur 2-2
1-0 Embla Grétarsdóttir, sjm (14.), 2-0 Katrín
Ásbjörnsdóttir (29.), 2-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir
(33.), 2-2 Svava Rós Guðmundsdóttir (76.).
ÍBV - Þróttur 4-0
1-0 Bryndís Jóhannesdóttir, víti (34.), 2-0 Vesna
Smiljkovic (40.), 3-0 Sigríður Lára Guðnadóttir
(84.), 4-0 Bryndís Jóhannesdóttir, víti (88.).
FH - Afturelding 4-1
1-0 Ashlee Hincks (22.), 2-0 Teresa Marie Rynier
(28.), 3-0 Ashlee Hincks (32.), 3-1 Sigríður Birgis-
dóttir (72.), 4-1 Guðrún Höskuldsdóttir (91.).
Breiðablik - Selfoss 4-1
1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (8.), 2-0
Rakel Hönnudóttir (11.), 2-1 Guðmunda Brynja
Óladóttir (32.), 3-1 Björk Gunnarsdóttir (52.), 4-1
Hlín Gunnlaugsdóttir (68.)
Stjarnan - HK/Víkingur 6-0
1-0 Danka Podovac (17.), 2-0 Danka Podovac
(42.), 3-0 Danka Podovac (46.), 4-0 Megan
Manthey (52.), 5-0 Harpa Þorsteinsdóttir (57.),
6-0 Danka Podovac (87.).
STAÐAN
Stjarnan 4 4 0 0 18-1 12
Breiðablik 4 4 0 0 12-4 12
ÍBV 4 2 1 1 14-8 7
Selfoss 4 2 1 1 5-5 7
Valur 4 1 2 1 12-6 5
Þór/KA 4 1 2 1 8-6 5
Afturelding 4 1 1 2 3-11 4
FH 4 1 1 2 6-11 4
Þróttur 4 0 0 4 0-11 0
HK/Víkingur 4 0 0 4 6-21 0
Útilegumaðurinn - Þar sem grasið er grænna
Knaus, þýsk
gæðahjólhýsi
í 50 ár
Frí sólarsella fylgir öllum Knaus hjólhýsum dagana 23. til 30. maí
Nú er tíminn að festa sér nýtt hjólhýsi fyrir sumarið.
Sölumenn okkar í samningsskapi.
Tökum notaða ferðavagna uppí nýja.
Ti bl oðsvagn:
Knaus Sport 450 UF
Verð aðeins kr. 3.295.000
FIMLEIKAR Fimleikasamband Íslands
hefur valið tíu einstaklinga til að til að
taka þátt í Smáþjóðaleikunum sem fara
fram í Lúxemborg 26. maí til 2. júní
næstkomandi. Fimleikakeppnin er bæði
liðakeppni og einstaklingskeppni.
Keppt verður í fimleikum á tveimur
dögum. Fyrst er keppt í liðakeppni og
fjölþraut og síðar eru úrslit á einstökum
áhöldum fara fram.
Í gegnum tíðina hafa fimleikar verið
mjög sigursælir á Smáþjóðaleikunum. Í
Mónakó 2007 unnust átján verðlaun, þar
af sjö gull, og á Kýpur 2009 unnust níu
verðlaun, þar af tvö gull, en fimleikar voru
ekki með á leikunum 2011.
Fimleikafólk fer á smáþjóðaleikana
THELMA RUT Er í hópnum sem fer til
Lúxemborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Dominiqua Alma Belany, Grótta
Hildur Ólafsdóttir, Fylkir
Jóhanna Rakel Jónasdóttir, Ármann
Jón Sigurður Gunnarsson, Ármann
Norma Dögg Róbertsdóttir, Gerpla
Ólafur Garðar Gunnarsson, Gerpla
Pálmi Rafn Steindórsson, Gerpla
Róbert Kristmannsson, Gerpla
Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerpla
Valgarð Reinhardsson , Gerpla
Hópurinn
FÓTBOLTI Mario Götze verður
ekki klár í slaginn í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu á laugardaginn vegna
meiðsla.
Götze fór meiddur af velli í síð-
ari undanúrslitaleik Dortmund
og Real Madrid. Hann reyndi að
vera með á æfingu liðsins í gær
en án árangurs.
Leikurinn hefði orðið sá síðasti
hjá Dortmund áður en hann söðl-
ar um í sumar. Eins og frægt er
orðið gengur Götze í raðir Bayern
München að leiktíðinni lokinni.
„Ég get ekki lýst því hve mikil
vonbrigðin eru að geta ekki hjálp-
að liði mínu í þessum mikilvæga
leik,“ segir Mario Götze. - ktd
Ekki með
á Wembley
SPORT
2
6 5 73
1
4
2013 2/7 28,6%
2012 12/14 85,7%
2011 6/6 100%
2010 87,5%7/8
2009 5/7 71,4%
2008 6/6 100%
FÓTBOLTI Róbert Örn Óskarsson,
markvörður FH, var hetja sinna
manna þegar hann varði víti Blik-
ans Árna Vilhjálmssonar rétt fyrir
leikslok í 1-0 sigri FH á Breiða-
bliki í Kópavogi. Róbert var einn
af þremur markvörðum sem vörðu
vítaspyrnu í 4. umferðinni en hinir
voru Bjarni Þórður Halldórs son
hjá Fylki og David Preece hjá
Keflavík.
Nú er svo komið að fjórar síð-
ustu vítaspyrnur hafa ekki skil-
að marki og vítanýtingin í fyrstu
fjórum umferðunum er því aðeins
28,6 prósent.
Það er ekki nóg með að fimm
vítaspyrnur hafi mislukkast held-
ur hafa þessir tveir leikmenn sem
hafa náð að skora út víti í sumar,
Kristinn Freyr Sigurðsson hjá Val
og Jóhann Birnir Guðmundsson
hjá Keflavík, báðir klikkað á víti.
Blikar hafa klikkað á báðum
sínum vítum og hafa ekki skorað
úr vítaspyrnu síðan 22. maí 2011.
Finnur Orri Margeirsson klikkaði
á eina víti liðsins í fyrra og það
má giska á að þjálfarinn Ólafur
Kristjáns son skipuleggi víta-
keppnir á næstu æfingum. Valur
og Keflavík hafa líka fengið tvö
víti og Fylkismenn fengu sitt
fyrsta víti í síðasta leik.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit
yfir vítaspyrnur og nýtingu þeirra
frá því að deildin innihélt fyrst tólf
lið sumarið 2008. Þar sést að víta-
skytturnar hafa farið vel af stað
undanfarin ár og sumarið í ár sker
sig mikið úr.
Ekki er þó hægt að alhæfa um
allar vítaskyttur deildarinnar
þrátt fyrir þessa slöku byrjun því
aðeins fjögur af tólf liðum Pepsi-
deildarinnar hafa fengið víti. Nú
er að sjá hvort hin átta liðin komi
nú til bjargar og rífi nýtinguna
eitthvað upp í næstu umferðum.
ooj@frettabladid.is
Vítin eru til vandræða
Vítaskyttur Pepsi-deildarliðanna hafa aðeins skorað úr tveimur af sjö vítaspyrnum sem dæmdar hafa verið í
fyrstu fj órum umferðunum í sumar. Þetta er langversta byrjun vítaskyttna síðan deildin varð tólf liða 2008.
FIMMTÍU PRÓSENTA NÝTING Valsarinn Kristinn Freyr Sigurðsson hefur tekið
tvö af sjö vítum Pepsi-deildarinnar til þessa. Hann skoraði á móti Fylki en skaut í
stöngina á móti Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
➜ Vítin í sumar 2013
1. Kristinn F. Sigurðsson, Valur á móti Fylki– mark
2. Sverrir I. Ingason, Breiðabliki á móti ÍBV– stöng
3. Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík á móti Víkingi– mark
4. Kristinn F. Sigurðsson, Val á móti Fram– stöng
5. Viðar Ö. Kjartansson, Fylki á móti Keflavík– varið
6. Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík á móti Fylki– varið
7. Árni Vilhjálmsson, Breiðabliki á móti FH– varið
VÍTIN Í FYRSTU
4 UMFERÐUNUM 2008-2013
HANDBOLTI Eitt ljótasta brot sem
sést hefur í þýska handboltanum í
áraraðir átti sér stað í leik Hamburg
og Füchse Berlin á þriðjudag.
Aðeins 37 sekúndum fyrir
leikslok gerði Torsten Jansen,
leikmaður Hamburg, sér lítið fyrir
og skallaði Ivan Nincevic, leik-
mann Berlin, fast í andlitið.
Hamburg var að vinna leik-
inn örugglega og hegðunin
óskiljanleg. Nincevic lá eftir
rotaður og fossblæddi úr
honum.
Í fyrstu var óttast að
hann væri með brotið
kinnbein en svo var ekki. Hann fékk
þó alvarlegan heilahristing og stóran
skurð á andlitið. „Það var risastór
hola á andlitinu á honum,“ sagði
Igor Vori, leikmaður Hamburg,
eftir leikinn, en Nincevic fékk
fimm sentimetra skurð í andlitið.
„Ég er kominn með ör fyrir
lífstíð. Þetta var hræðilegt
fyrir fjölskylduna. Mamma
mín fékk taugaáfall og
eiginkona mín grét stans-
laust,“ sagði Nincevic, en
hann lá lengi hreyfingar-
laus á vellinum og tók síðan
kippi sem litu illa út. - hbg
Fékk risastóra holu í andlitið
IVAN
NINCEVIC