Fréttablaðið - 21.10.2013, Blaðsíða 14
21. október 2013 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 14
Það er ekki tilviljun að alvar legur
vandi Landspítala er nú stöðugt
til umræðu. Starfsfólk, nemar
og sjúklingar koma nær daglega
fram í fjölmiðlum og lýsa bráða-
vanda ýmissa lykildeilda sjúkra-
hússins. Þessir einstaklingar bera
hag sjúklinganna fyrir brjósti og
telja aðbúnað þeirra óásættan-
legan. Það er mikið í húfi því að
ástandið á sjúkrahúsi allra lands-
manna varðar allan almenning
og er ekki einkamál stjórnmála-
manna. Staðreyndin er sú að
ástandið á Landspítala hefur ekki
verið jafn alvarlegt síðustu fjóra
áratugi.
Áhyggjur sjúklinga
og starfsfólks
Sjúklingar, starfsfólk og almenn-
ingur hafa áhyggjur af þeirri tak-
mörkuðu þjónustu sem hægt er
að veita. Starfsfólk er langþreytt
á viðvarandi niðurskurði og
hefur miklar áhyggjur af þeirri
slæmu aðstöðu sem sjúklingum
og starfsmönnum er boðin. Ekki
bætir úr skák að ekkert samhengi
reyndist á milli kosningaloforða
og efnda sem birtust í fjárlaga-
frumvarpinu. Þetta skilningsleysi
á alvarlegri stöðu spítalans olli
starfsmönnum gríðarlegum von-
brigðum og er algjörlega úr takti
við umræðuna í þjóðfélaginu.
Ráðherrum og alþingismönnum,
sem við efumst ekki um að vilja
láta gott af sér leiða, getur vart
staðið á sama þegar ýmsar lykil-
einingar spítalans eru í dag rekn-
ar eftir neyðaráætlun. Hversu
lengi getur það gengið? Með
aðstoð nema hefur langþreytt
starfsfólk með auknu vinnufram-
lagi, haldið starfseminni gang-
andi, án þess að yfirvinna sé allt-
af greidd. Þessi staða hefur leitt
af sér atgervisflótta og vítahring
vaxandi manneklu sem ekki sér
fyrir endann á. Við teljum að enn
sé hægt að sporna við landflótta
lækna og annarra lykilstarfs-
manna. Það stendur þó tæpt og
grípa þarf strax til aðgerða sem
verða að fela í sér fjárfestingu í
mannauði, tækjum og aðstöðu á
Landspítala. Slík fjárfesting mun
skila sér í bættri heilsu og líðan
allra landsmanna þegar þeir
þurfa mest á hjálp að halda.
Brestir í starfsemi lykildeilda
Alvarlegir brestir eru komnir
í starfsemi lyflækningasviðs,
stærsta sviðs Landspítala svo
og í starfsemi annarra deilda,
t.d. myndgreiningardeildar og
hjartaskurðdeildar. Þetta veld-
ur skiljanlega áhyggjum úti í
sam félaginu. Ljóst er að Alþingi
Íslendinga verður að snúa þess-
ari þróun við með því að rétta
hlut spítalans í afgreiðslu fjár-
laga. Því er mjög ánægjulegt að
þingmenn úr öllum flokkum hafa
á undanförnum vikum kynnt sér
stöðu Land spítala og lýst yfir
stuðningi við að veita til hans
nauðsynlegu fjármagni. Einnig
ber að fagna þingsályktunartil-
lögu nokkurra þingmanna um
að ráðast tafarlaust í byggingu
nýs spítala. Fé er vissulega tak-
markað og forgangsraða verður
til nauðsynlegra verkefna. Land-
spítalinn hefur lengi þurft að
forgangsraða í sinni starfsemi.
Starfsfólk og sjúklingar á Land-
spítala kynnast því daglega, t.d.
þegar sjúkrarými duga ekki til.
Þegar sjúkrarúmum hefur fækk-
að í sparnaðarskyni þarf að for-
gangsraða og ákveða hvaða sjúk-
lingar þurfa mest á innlögn að
halda. Þó svo að ýmis mikil-
væg verkefni í okkar samfélagi
bíði úrlausnar, þá hlýtur áfram-
haldandi heilbrigði og velferð
sjúklinga að vera þar efst á blaði.
Allir landsmenn vilja og eiga að
geta reitt sig á Landspítalann
fyrir sig og sína þegar alvarleg
veikindi knýja dyra.
Úreltur tækjabúnaður
Svo illa er komið fyrir mynd-
greiningardeild spítalans að
úrbætur þola enga bið. Tæki sem
teljast mikilvæg í nútíma lækn-
isfræði eru sum hver hreinlega
ekki til hér á landi. Annar mikil-
vægur tækjabúnaður er úr sér
genginn vegna mikils álags og er
síbilandi, með tilheyrandi áhættu
fyrir sjúklinga. Á sama tíma og
ríkisstjórnin hefur skorið niður
fé til tækjakaupa eru uppgerðir
varahlutir keyptir í sparnaðar-
skyni á netinu í elstu tækin, sem
eru orðin 17 ára! Nýlega þurfti
t.d. að flytja sjúkling sem grunur
lék á að væri með heilablæðingu
í tölvusneiðmyndatöku á einka-
rekna myndgreiningarstofu í
Orku húsinu þar sem sneiðmynda-
tækin á Land spítala voru biluð
samtímis í Fossvogi og á Hring-
braut. Þetta ástand teflir öryggi
sjúklinga í tvísýnu og er alger-
lega óásættan legt.
Aðgerðir ráðherra duga ekki til
Nýlegar aðgerðir sem gripið var
til á lyflækningasviði í samvinnu
við heilbrigðisráðherra eru skref
fram á við en nægja ekki til að
snúa við þeim bráðavanda sem
þar ríkir. Á Lyflækningadeild
krabbameina er ástandið t.d.
mjög alvarlegt. Þar eru nú aðeins
fjórir sérfræðingar að sinna
störfum sem átta sinntu áður.
Krabbameinssjúklingum fjölgar
hins vegar stöðugt, ekki síst
vegna fjölgunar aldraðra. Svipað
ástand er á Geislameðferðar-
deild krabbameina, þar sem einn
þriggja lækna er að hætta störf-
um sakir aldurs. Öðrum læknum
á þessum krabbameinsdeildum
hafa borist atvinnutilboð erlend-
is frá sem þeir íhuga. Nýja lækna
vantar strax til starfa því að
óbreyttu er veruleg hætta á frek-
ari flótta krabbameinslækna frá
deildinni.
Þarftu á krabbameinslækni
að halda?
Fátt setur tilveru sjúklinga og
aðstandenda jafnrækilega úr
jafnvægi og að greinast með
krabbamein. Sjúklingum og
aðstand endum þeirra er þann-
ig kippt út úr sínu daglega lífi.
Miklar framfarir hafa orðið á
síðustu ára tugum í krabbameins-
lækningum: ný lyf hafa komið
fram og skurð aðgerðir og geisla-
meðferð hafa þróast auk þess sem
myndgreining hafur batnað. Það
er ánægjuleg staðreynd að hér
á landi hefur árangur krabba-
meinsmeðferðar verið með því
besta sem þekkist og stór hluti
krabbameins sjúklinga læknast.
Þessi góði árangur er afrakstur
stöðugrar uppbyggingar síðustu
áratuga og er ekki sjálfgefinn.
Honum þarf að viðhalda.
Þú gætir verið í þeim sporum,
lesandi góður, að greinast með
krabbamein. Finnst þér ásættan-
legt að bið eftir fyrsta viðtali við
krabbameinslækni lengist og geti
numið allt að nokkrum vikum?
Finnst þér í lagi að læknirinn
þinn hitti þig sjaldnar en æskilegt
væri og þá skemur í senn en áður
vegna mikils vinnuálags? Þetta
er sú staða sem krabbameins-
sjúklingar á Íslandi þurfa nú að
búa við. Krabbameinsdeildir eru
á meðal sérhæfðustu og mikil-
vægustu deilda hvers sjúkra-
húss. Núverandi ástand er ekki
til þess fallið að slá á þann kvíða
og það öryggisleysi sem fylgir því
að greinast með illkynja sjúkdóm.
Mikið í húfi
Það er mikið í húfi fyrir sjúk-
linga og aðstandendur þeirra.
Stöðva verður strax frekari
atgervisflótta krabbameinslækna
og annarra sérfræðinga. Einnig
verður að fá fleiri deildarlækna
til starfa á lyflækningasviði.
Endurnýja þarf nauðsynlegan
tækjakost svo að myndgrein-
ingardeild og fleiri stoðdeildir
sjúkrahússins geti sinnt nauðsyn-
legri þjónustu við sjúklinga spít-
alans, sem margir eiga í engin
önnur hús að venda.
Sem starfsmenn Landspít-
ala viljum við vinna að þessum
brýnu umbótum, fáist til þess
nauðsynlegt fjármagn. Hagsmun-
ir allra landsmanna eru í húfi.
■ Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir
og prófessor í skurðlækningum,
formaður prófessoraráðs Land-
spítala
■ Engilbert Sigurðsson, yfirlækn-
ir og prófessor í geðlækningum,
varaformaður prófessoraráðs
■ Arthur Löve, yfirlæknir og pró-
fessor í veirufræði
■ Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir
og prófessor í barnalækningum
■ Bjarni A. Agnarsson, yfirlæknir
og prófessor í meinafræði
■ Björn Guðbjörnsson, yfirlæknir
og prófessor í gigtarrannsókn-
um
■ Björn R. Lúðvíksson, yfirlæknir
og prófessor í ónæmisfræði
■ Einar Stefánsson, yfirlæknir og
prófessor í augnlækningum
■ Einar Stefán Björnsson, yfir-
læknir og prófessor í melting-
arlækningum
■ Elías Ólafsson, yfirlæknir og
prófessor í taugalækningum
■ Eyþór H. Björnsson, lungna-
læknir og klínískur prófessor
■ Friðbert Jónasson, yfirlæknir
og prófessor í augnlækningum
■ Gísli H. Sigurðsson, yfirlæknir
og prófessor í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum
■ Guðmundur Þorgeirsson, yfir-
læknir og prófessor í lyflækn-
ingum
■ Gunnar Guðmundsson, lungna-
læknir og prófessor í lyfjafræði
■ Helgi Jónsson, gigtarlæknir og
prófessor í gigtarlækningum
■ Helgi Sigurðsson, yfirlæknir og
prófessor í krabbameinslækn-
ingum
■ Karl G. Kristinsson, yfirlæknir
og prófessor í sýklafræði
■ Jóhann Heiðar Jóhannsson,
meinafræðingur, klínískur pró-
fessor
■ Jón Gunnlaugur Jónasson, yfir-
læknir og prófessor í meina-
fræði
■ Jón Jóhannes Jónsson, yfir-
læknir og prófessor í lífefna-
fræði
■ Magnús Gottfreðsson, yfirlækn-
ir og prófessor í smitsjúkdóm-
um
■ Magnús Karl Magnússon, pró-
fessor í lyfjafræði og forseti
læknadeildar HÍ
■ Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir og
prófessor í öldrunarlækningum
■ Páll Torfi Önundarson, yfir-
læknir og prófessor í blóðsjúk-
dómum
■ Rafn Benediktsson, yfirlæknir
og prófessor í innkirtlalækn-
ingum
■ Ragnar G. Bjarnason, yfirlæknir
og prófessor í barnalækningum
■ Reynir T. Geirsson, yfirlæknir
og prófessor í fæðinga- og kven-
sjúkdómalækningum
■ Sigurður Guðmundsson, yfir-
læknir og prófessor í lyflækn-
ingum
■ Sigurður Yngvi Kristinsson,
blóðmeinafræðingur og prófess-
or í blóðsjúkdómum
■ Þórarinn Gíslason, yfirlæknir og
prófessor í lungnalækningum
Intense
Repair
Sjampó og
hárnæring
Djúpnærir, mýkir
og gefur gljáa.
Verndar hárið frá
því að klofna.
Inniheldur prótein,
náttúrulegar
olíur og fljótandi
keratín.
Ný vitneskja
Fyrirlestur á ensku: Christopher Vasey
Þriðjudaginn 22. október 2013 - kl. 20:00
Í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík
Aðgangseyrir: 500 kr.
Fyrirlestur á ensku: Christof Leuze
Fimmtudaginn 24. október 2013 – kl. 20:00
Í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík
Aðgangseyrir: 500 kr.
Skipuleggjandi: Stiftung Gralsbotschaft, Stuttgart
www.is.gral-norden.net/daudi
vasey-leuze@gral-norden.net Simi: 842 2552
Þegar milljónasti árs-
gesturinn nálgast í ferða-
þjónustunni gerist margt í
einu. Þolmörkum er náð á
sumum stöðum, umræður
um gjaldtöku og höfðatölu
(kvóta) magnast og allt í
einu hafa fjárfestar auga-
stað á nýjum þjónustu- og
gistifyrirtækjum en um
áratuga skeið hefur mest
af ferðaþjónustunni verið
í höndum smárra fyrir-
tækja, fyrir utan flug og
bíla.
Þetta kallar á hraðari og vand-
aða, heildræna stefnumörkun og
miklu öflugari stuðning ríkis-
valdsins við ferðaþjónustuna. Má
þar nefna skipulagsmál, úrbætur
á opinberum eignum og landsvæð-
um og stórbætta stoðþjónustu við
ferðamennsku sem atvinnugrein.
Meðal brýnna úrlausnarefna
er hlutverk leiðsögumanna og
launakjör þeirra en ég efa að til
sé mikið verr borguð vinna sam-
kvæmt opinberum taxta en leið-
sögn á vegum flestra innlendra
þjónustufyrirtækja í greininni.
Þar verða allir hlutaðeigandi að
taka sig saman og auka gæði og
styrkja hlutverk leiðsegjenda. Um
leið er augljóst að landvarsla og
eftirlit með víðtækari heimildum
til inngripa en nú er þarf líka að
koma til.
Fleira vantar. Til þess að
minnka akstur og rangar áherslur
í umhverfismálum á að láta af
þeirri hugmynd að þjónusta við
hálendið skuli fyrst og fremst vera
í jaðri þess. Það þveröfuga þarf
til; fáeinar vel búnar þjónustu- og
gistimiðstöðvar með útskálum og
fjölþættu leiðakerfi fyrir ökutæki,
hesta og gangandi út frá þeim.
Nú eru uppi hugmyndir um
ýmiss konar nýja afþreyingu, svo
sem spíttbraut niður Kambana,
fram af Hellisheiði, og kláfferju
upp á Esju. Ekki felli ég dóma
yfir slíku. Sennilega hafa margir
áhuga á að renna sér niður fasta
braut í hlíðum hérlendis
líkt og víða annars stað-
ar. Og sennilega hafa þeir
þrír aðilar sem ég man
eftir með stólalyftu- eða kláfhug-
myndir, t.d. við Eyjafjörð og inn af
Geysi, haft góðar vonir sem ekkert
varð úr. Esjan er veðurfarslega
erfið og strengjafarartæki eru
með fremur lágt stöðvunarmark í
vindi (oft miðað við fimm gömul
vindstig). Ég hef alltaf undrast af
hverju stólalyftur t.d. í Bláfjöll-
um og á Akureyri hafa ekki verið
í notkun á sumrin, t.d. fyrir þá
sem vilja njóta útsýnis með þessu
móti eða horfa á norðurljós þegar
haustar. Hef sjálfur eitt sinn kom-
ist með Breta að enda lyftunnar
í Bláfjöllum um sumar (fyrir lið-
legheit starfsmanna sem unnu að
viðgerðum). Fólkið var dolfallið
yfir útsýni um Faxaflóa og suður-
ströndina.
Svonefnd Vestnorden-sölustefna
hefur verið haldin árlega til skipt-
is í höfuðborgum á vestnorræna
svæðinu síðan 1986. Ég tel tíma
vera kominn til að hafa sölu-
stefnuna annað hvert ár en halda
vestnorræna ráðstefnu með opn-
ara sniði á móti. Þar kæmu saman
aðilar í ferðaþjónustu, ýmsir sér-
fræðingar, fulltrúar ríkisstofnana,
ráðuneyta og þinga, fólk úr sveit-
arstjórnum og fulltrúar hags-
munasamtaka. Þannig næðist að
virkja margan manninn út fyrir
ramma hefðbundinnar sölustefnu
og heimatilbúinna funda í hverju
hinna þriggja landa og efla sam-
skipti og samstarf. Íslenskt frum-
kvæði þarf til.
Ferðaþjónusta
á krossgötum
FERÐAÞJÓN-
USTA
Ari Trausti
Guðmundsson
jarðvísindamaður
og rithöfundur
➜ Meðal brýnna
úrlausnarefna er
hlutverk leiðsögu-
manna og launakjör
þeirra en ég efa að til
sé mikið verr borguð
vinna...
Hvað er í húfi á Landspítala?
➜ Finnst þér ásættanlegt að bið eftir fyrsta viðtali við
krabbameinslækni lengist og geti numið allt að nokkrum
vikum? Finnst þér í lagi að læknirinn þinn hitti þig sjaldn-
ar en æskilegt væri og þá skemur í senn en áður vegna
mikils vinnuálags? Þetta er sú staða sem krabbameinssjúk-
lingar á Íslandi þurfa nú að búa við. Krabbameinsdeildir
eru á meðal sérhæfðustu og mikilvægustu deilda hvers
sjúkrahúss. Núverandi ástand er ekki til þess fallið að slá á
þann kvíða og það öryggisleysi sem fylgir því að greinast
með illkynja sjúkdóm.