Fréttablaðið - 21.10.2013, Page 17
TALNALEIKIR Bergljót
Arnalds, leikkona og
barnabókahöfundur,
hefur útfært myndirnar
úr bók sinni Talnapúkinn
á rúmföt í samvinnu við
Lín Design.
MYND/VILHELM
Hugmyndin að rúmfötunum kvikn-aði í spjalli á milli okkar Helgu Maríu Bragadóttur, eiganda Lín
Design. Ég hafði séð svo falleg rúmföt
í búðinni hennar og meðal annars ís-
lenska hönnun,“ segir Bergljót Arnalds,
leikkona og höfundur barnabókanna
Stafakarlarnir og Talnapúkinn. Hún
hefur útfært rúmföt með myndum úr
bókinni Talnapúkinn í samvinnu við
verslunina.
„Við ákváðum að nota Talnapúkann
svo krakkarnir gætu talið sig í svefn.
Ómar Örn Hauksson teiknaði myndirnar
í bókinni og er Talnapúkinn sjálfur á
koddaverinu. Á sængurverinu eru svo
myndir af hlutum og dýrum og tölu-
stafirnir einn og upp í tíu. Þannig er hægt
að telja eitt fiðrildi, tvo apa og svo fram-
vegis og búa til alls konar talnaleiki þegar
farið er í háttinn. Til dæmis leggja saman
og draga frá,“ segir Bergljót. „Þetta er í
fyrsta sinn sem ég geri eitthvað þessu
líkt,“ bætir hún við og á allt eins von á að
fleiri textílvörur eigi eftir að bætast við.
„Það er aldrei að vita. Ég er allavega
með fullt af hugmyndum í kollinum sem
gaman væri að útfæra og framkvæma.
Mig hafði til dæmis alltaf langað til
að gera bók fyrir þau allra yngstu og
í samstarfi við Lín Design gerðum við
skemmtilega taubók með tölu stöfunum
sem meðal annars er hægt að hengja á
rimlarúm.“
Bækur Bergljótar hafa notið mikilla
vinsælda hjá yngstu kynslóðinni og ný-
lega voru Stafakarlarnir endurútgefnir
með geisladiski, þar sem hver stafakarl
syngur sitt eigið lag. „Það var frumraun
mín í að semja tónlist. Stafirnir eru
þrjátíu og tveir svo lögin eru þrjátíu
og fimm allt í allt. Diskurinn er svolítið
eins og söngleikur þar sem sagan er
lesin upp og stafakarlarnir bresta í
söng inn á milli,“ segir Bergljót og úti-
lokar ekki að stafakarlarnir endi einnig
á rúmfatnaði fyrir krakka. „Það væri
mjög gaman en til að byrja með er það
Talnapúkinn.“
■ heida@365.is
TELJA SIG Í SVEFN
HEIMILI Bergljót Arnalds, leikkona og höfundur bókanna um Talnapúkann og
Stafakarlana, hefur útfært Talnapúkann á rúmfatnað fyrir krakka.
ERRÓ Í HAFNARHÚSI
Sýningin Erró: Heimurinn í dag stendur nú yfir
í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Á sýn-
ingunni eru tæplega 70 verk sem Erró hefur
gefið Listasafni Reykjavíkur síðustu tvö ár.
Erró hefur frá árinu 1989 fært safninu yfir
4.400 verk sem spanna allan hans æviferil.
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. aprílNæs a námskeið hefst 12. júníNæs a meirapróf byrjar 23. október 2013