Fréttablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 24
15. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Ástkær móðir okkar, amma, langamma og langalangamma, LÁRA J. ÁRNADÓTTIR lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 13. nóvember. Útför auglýst síðar. Sigurjón Jóhannsson Gyða Hauksdóttir Árni Jóhannsson Dagfríður Jónsdóttir Magnús Finnur Jóhannsson Margrét Nanna Jóhannsdóttir Karl Ísleifsson Jóhann Jóhannsson ömmubörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, ANNA LÍSA JÓHANNESDÓTTIR Hrafnistu, Reykjavík, áður til heimilis að Efstasundi 28, lést sunnudaginn 10. nóvember á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin verður auglýst síðar. Þorkell P. Ólafsson Margrét Elíasdóttir Ólafur H. Ólafsson Jóhanna Arndal og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞRÁINN AGNARSSON lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 12. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðlaug Bára Þráinsdóttir Óskar Þór Þráinsson Anna Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum öllum þeim sem sýnt hafa okkur hlýju og samúð vegna andláts og útfarar elsku pabba okkar, tengdaföður, afa og langafa, RÖGNVALDAR BERGSSONAR Víðihlíð, Austurbyggð 17, áður til heimilis að Seljahlíð 11c, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Víðihlíðar Dvalarheimilis Hlíðar fyrir hlýhug og yndislega umönnun. Steinunn G. Rögnvaldsdóttir Bjarni Baldursson Freyja Rögnvaldsdóttir Hörður Benediktsson Edda B. Rögnvaldsdóttir Sigurjón Sveinbjörnsson Sólveig Rögnvaldsdóttir Friðrik Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra ELÍN JÓNSDÓTTIR Borgarholtsbraut 45, Kópavogi, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 7. nóvember, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 13.00. Jarðsett verður í Kópavogskirkjugarði. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Ragnar J. Lárusson Lárus P. Ragnarsson Karlotta B. Aðalsteinsdóttir Sigrún K. Ragnarsdóttir Haraldur R. Gunnarsson Halldóra B. Ragnarsdóttir Þórður S. Magnússon Ásdís L. Ragnarsdóttir Sigurður Þ. Adolfsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, SÚSANNA STEINÞÓRSDÓTTIR Hlynskógum 2, Akranesi, sem lést fimmtudaginn 7. nóvember, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sveinusjóð sumarbúðanna í Ölveri, Rn. 701-05-302000, kt. 420369-6119. Jón Jóhannsson Irena Rut Jónsdóttir Guðjón Jónsson Karitas Eva Jónsdóttir Ingibjörg Steinþórsdóttir Jónína Steinþórsdóttir Sigurður Mýrdal Steinþórsson og aðrir aðstandendur. Við sendum innilegar þakkir öllum sem auðsýndu samúð og hlýju við andlát og útför ÞORSTEINS BJARNASONAR bátsmanns, Fornhaga 17, Reykjavík. Guðrún G. Sæmundsdóttir Sæmundur E. Þorsteinsson Svana Helen Björnsdóttir Jón Viðar Þorsteinsson Þórunn Harðardóttir Rakel Guðrún Óladóttir Sólveig Níelsdóttir Björn Orri, Sigurður Finnbogi og Þorsteinn Sæmundssynir Þorsteinn Jakob og Guðmunda Jónsbörn Fyrsti fundur Þjóðabandalagsins var haldinn þennan dag árið 1920 í Genf í Sviss með þátttöku fulltrúa frá 41 ríki. Bandalagið var stofnað á friðarráðstefnu í París 1919 í kjölfar fyrri heimsstyrjald- arinnar, með það að markmiði að koma í veg fyrir styrjaldir, leysa úr milliríkja- deilum með samningaviðræðum og bæta velferð í heiminum. Wilson Bandaríkja- forseti átti stóran þátt í stofnuninni en öldungadeild Bandaríkjanna vildi ekki ganga í bandalagið. Sú stefna í alþjóðastjórnmálum sem lá á bak við bandalagið var gerólík þeirri sem ríkt hafði fram að því. Þjóðabanda- lagið bjó ekki yfir eigin her og treysti því á stórveldin við að tryggja framkvæmd ákvarðana þess. ÞETTA GERÐIST: 15. NÓVEMBER 1920 Þjóðabandalagið fundaði í fyrsta sinn „Hvernig skrifar maður bók um kirkju? Maður skrifar bara um fólkið sem byggir hana og myndar kirkju- starfið gegnum tíðina,“ segir Jóhann Guðni Reynisson, einn þriggja höf- unda bókarinnar Loksins klukkna- hljómur sem rekur sögu Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði. Hinir eru Björn Pétursson bæjarminjavörður og Sig- ríður Valdimarsdóttir, kennari og djákni við kirkjuna. Hópur Hafnfirðinga klauf sig frá þjóðkirkjunni og stofnaði fríkirkju- söfnuð vorið 1913. Íbúar í firðinum voru þá komnir yfir þúsund en engin kirkja var í bænum. „Fólk var orðið þreytt á að labba út að Görðum á Álftanesi og burðast þangað með lík- kisturnar því aðeins einn bíll var í bænum á þessum tíma. Fannst þetta langt. Vildi fá kirkju,“ lýsir Jóhann Guðni sem er formaður safnaðar- stjórnar Fríkirkjunnar. Hann segir söfnuðinn stofnaðan kringum sumar- daginn fyrsta 1913, byrjað hafi verið á kirkjunni í ágúst það ár og smíðinni lokið í desember. Hvernig var þetta hægt? „Þarna er maður sem heitir Jóhannes Reykdal, sá sem stofn- ar fyrstu almenningsrafveituna og fyrstu vélknúnu timburverksmiðjuna, sem síðar varð Dvergur. Jóhannes var framfaramaður og mikill frumkvöðull sem leiðir þessa kirkjubyggingu dálít- ið. Safnaðarstjórnin, þar sem Jóhann- es var fomaður, var búin að ákveða að byggingin mætti kosta 8.000 krónur og hann gerir tilboð við fyrirtæki sitt upp á 7.900. Hann var alla tíð örlát- ur í garð kirkjunnar og þetta hefur örugglega verið hagstætt tilboð. Síðan gaf hann mikla vinnu eins og margir aðrir,“ segir Jóhann Guðni. Nokkrum sinnum er búið að byggja við Fríkirkjuna í Hafnarfirði, síðast árið 1998. Henni er stöðugt haldið við og mikið unnið í sjálfboðavinnu að sögn Jóhanns Guðna sem segir góðan jarðveg í söfnuðinum fyrir fólk sem vill taka þátt í starfinu. „Kvenfélagið aflar mikilla tekna og bræðrafélagið leggur ómælda vinnu af mörkum við viðhald á kirkju, lóð og safnaðarheim- ili,“ segir hann. „Í bókinni einbeittum við okkur að mannlegu hliðinni, að fólkinu og frásögnum tengdum kirkj- unni. Þetta ekki uppflettirit með tölu- legum fróðleik heldur áhugaverð saga.“ Byggðu Fríkirkjuna á fj órum mánuðum Hundrað ára saga Fríkirkjunnar í Hafnarfi rði er komin út. Hún heitir Loksins klukkna- hljómur. Þar má lesa um afrek frumkvöðlanna sem stofnuðu söfnuð að vori og vígðu í lok árs fyrstu tvíloft a timburkirkju landsins. Hún var rafl ýst á undan öðrum guðshúsum Íslands. EINN HÖFUNDAN- NA „Við ein- beitum okkur að mannlegu hliðinni, að fólkinu og frásögnunum tengdum kirkjunni, segir Jóhann Guðni um efni bókarinnar Loksins klukknahljómur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÍKIRKJAN Í HAFNARFIRÐI Kirkjan hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar á hundrað árum. Svona er hún í dag. MYND/JÓHANN GUÐNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.