Fréttablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 30
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og hönnun. Indriðaverðlaun. Hátíðarförðun. Nanna Kristín Magnúsdóttir. Námskeið. Augnháralenging. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
2 • LÍFIÐ 15. NÓVEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Stefán Karlsson
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
s
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
U
ppskeruhátíð Fata-
hönnunarfélags Íslands
var haldin í annað sinn
síðastliðinn laugardag
en markmið hennar er
að efla samheldni innan fagsins
og skapa vettvang fyrir faglega
umræðu.
Dagskráin var fjölbreytt og
voru fyrirlesarar kvöldsins þeir
Michael H. Berkowitz og Ingvar
Helgason. Michael vann í 15 ár
sem listrænn stjórnandi undir-
fatalínu karla hjá Calvin Klein
en hann deildi reynslu sinni um
vöruþróun, hönnun og alþjóðlega
markaðssetningu. Hann starf-
ar nú sem hönnunarráðgjafi fyrir
fyrirtæki á borð við Nike, Tom
Ford, Bruce Weber, Gap og Narc-
iso Rodriquez. Ingvar Helgason
er annar fatahönnuður tvíeykis-
ins Ostwald Helgason, sem hann
stofnaði ásamt Susanne Ostwald
árið 2008 í London. Ingvar ræddi
meðal annars um uppbyggingu
hönnunarfyrirtækis á alþjóðleg-
um markaði.
Indriðaverðlaunin voru einnig
veitt þeim fatahönnuði sem þykir
hafa skarað fram úr á árunum
2011-2012. Verðlaunin eru kennd
við klæðskerann Indriða Guð-
mundsson, heitinn, sem þekkt-
ur var fyrst og fremst fyrir gæði
og fagmennsku. Dómnefnd ákvað
að veita Katrínu Maríu Káradótt-
ur verðlaunin í ár fyrir framlag
hennar til íslenskrar fatahönn-
unar og störf í faginu bæði hér á
landi, erlendis og fyrir kennslu
við fatahönnunardeild LHÍ.
Í dómnefnd sátu Halla Helga-
dóttir, Eyjólfur Pálsson, Erna
Bergmann, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Linda Björg Árnadóttir.
HÁTÍÐ INDRIÐA-
VERÐLAUNIN VEITT
Uppskeruhátíð haldin í annað sinn hjá Fatahönnunar-
félagi Íslands við mikinn fögnuð.
Michael Berkowitz og Ingvar Helgason. Greipur Gíslason og Ragnheiður Axel.
Anna Clausen og Eygló Margrét
Lárusdóttir.
Halla Helgadóttir og Harpa Þórsdóttir.
Hjördís, Sigga og Erna Bergmann.
Katrín María Kára dóttir
handhafi Indriðaverð-
launanna 2013 og Stein-
unn Sigurðardóttir verð-
launahafi 2011.
Það ríkti mikil gleði á barnum á 101 hót-
eli um síðastliðna helgi og var fullt út úr
dyrum. Á laugardagskvöldið mátti sjá
tónlistarkonuna Björk Guðmunds-
dóttur ásamt vinkonu sinni til margra
ára, listakonunni Gabríelu Friðriks-
dóttur, í góðu yfirlæti. Auk þeirra voru þar þau Svava
Johansen, oftast kennd við tískuvöruverslunina Sautj-
án, og sambýlismaður hennar, Björn Sveinbjörnsson,
ásamt vinum sínum, meðal annarra einkaþjálfaranum
Lóló Rósenkranz. Þá mátti einnig sjá Önnu Marsibil
Clausen, ritstjóra Monitor, í sínu fínasta pússi.
Fartölvan er orðin algengur fylgi-
hlutur og því mikilvægt að hún sé
varin fyrir hnjaski í daglegu amstri
og passi vel við klæðnaðinn. Hulst-
ur fyrir fartölvur eru því orðin vinsæl
viðbót við línur vöru- og fatahönn-
uða og verður það sífellt algengara
að fólk eigi fleira en eitt slíkt til skipt-
anna. Þegar velja á hulstur er því
gott að hafa í huga að það verndi
tölvuna nægilega vel, að efnið sé
nægilega þykkt og svo auðvitað að
útlit þess gleðji augað.
1. Handgert tölvu-
hulstur frá Reykja-
vík Trading Co. úr
íslenskri ull og kálfs-
leðri. Einnig til fyrir
Ipad. Fæst í Aurum,
Bankastræti 4.
2. Tölvuhulstur úr bómull og
leðri með handprentuðu
munstri frá Collina Strada.
Fæst í Gloríu, Laugavegi 37.
3. Brúnt tölvuhulstur úr leðri.
Fæst í Maclandi, Laugavegi 17.
TÖLVAN ÞARF FARTÖLVAN ÞÍN
NÝJA BLÚSSU?
1
3
2
Soffía Káradóttir mælir með Femarelle fyrir allar konur sem finna fyrir van-
líðan á breytingaaldri. „Ég ákvað að prófa Femarelle í fyrravetur þegar ég
sá umfjöllun í blöðum þar sem önnur kona lýsti ánægu sinni með vöruna.
Ég var að byrja á breytingaaldrinum en vildi ekki nota hormóna. Ég fann
fyrir hitakófum, vaknaði upp á nóttunni, fann fyrir fótaóeirð, skapsveiflum
og vanlíðan í líkamanum,“ segir Soffía og
bætir við að eftir aðeins tíu daga notkun
voru öll einkennin horfin.
„Nú sef ég samfelldan svefn, finn ekki
fyrir hitakófum eða fótaóeirð og mér líður
mun betur. Ég finn fyrir meiri vellíðan og
er í mun betra jafnvægi í líkamanum.
Með glöðu geði mæli ég því hiklaust með
Femarelle við vinkonur mínar og allar
konur sem finna fyrir breytingaaldrinum.
Ég veit um eina vinkonu mína sem hætti
á hormónum og notar Femarelle í dag.
Ég get ekki ímyndað mér hvernig mér liði
í dag ef ég hefði ekki kynnst Femarelle,
þvílíkt undraefni.“
Algjört undraefni