Fréttablaðið - 15.11.2013, Side 37

Fréttablaðið - 15.11.2013, Side 37
JÓLABJÓR FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2013 Kynningarblað Bruggmeistarar, öl, humlar, lager, þéttleiki og bragð Jólabjór er oftast dekkri og með marg-slungnari karakter en venjulegur bjór. Í hann eru notuð jólaleg krydd og jafnvel sælgæti til að fá í hann mýkt og fyllingu og gera bjórinn að enn skemmtilegri bragðupp- lifun,“ segir Baldur Kárason, bruggmeistari Vífilfells á Akureyri. Baldur á heiðurinn af Víking-jólabjór sem hefur verið vinsælasti jólabjór á Íslandi í ára- fjöld. Hann er órjúfanlegur partur af jóla- haldi Íslendinga og kemur nú í sölu fyrir há- tíðirnar í 23. sinn. „Víking-jólabjór er f lóknasti bjór sem framleiddur er á Íslandi og alltaf bruggaður eftir sömu uppskrift,“ útskýrir Baldur. „Það tekur rúmar fimm vikur að framleiða jóla- bjórinn á móti tveimur vikum með annan bjór. Það er vegna eftirgerjunar við lágt hita- stig sem gefur bjórnum náttúrulega kolsýru, þétt og mjúkt bragð, mikla fyllingu og góða froðu.“ Víking Jólabjór er millidökkur og með meiri fyllingu en hefðbundinn lagerbjór. Í hann eru notaðar nokkrar gerðir af malti til að fá fram rétt bragð og lit, og af honum er ljúffengur keimur af brenndum sykri, kaffi og karamellu. Baldur hefur í nógu að snúast fyrir jólin því hann bruggar einnig þrjá aðra jólabjóra Vífilfells; Thule, Víking Jóla Bock og Einstök Doppel Bock. „Fyrir þessi jól ákváðum við að brugga í fyrsta sinn Thule-jólabjór í tilefni þess að nú eru liðin tuttugu ár síðan Thule kom aftur á markað í núverandi mynd. Thule er þekkt fyrir bragðgóðan bjór og mikla gleði og jóla- bjórinn sker sig úr öðrum með því að vera örlítið skemmtilegri á bragðið. Auk bragðs af karamellu og súkkulaði er líka vottur af lakkrís í eftirbragðinu, sem gerir Thule-jóla- bjórinn að sannkölluðu sælgæti,“ segir Bald- ur og brosir í brugghúsinu þar sem verið er að tappa á Einstök Doppel Bock. „Bock er þýskur bjórstíll sem einkenn- ist af miklu maltbragði. Fyrir hátíðarnar bruggum við Víking Jóla Bock sem sló í gegn 2010 og fær yfirleitt hæstu einkunn bjórsér- fræðinga í samanburði við annan jólabjór. Jóla Bock er bruggaður í stíl hefðbundinna Bock-bjóra og í réttu ljósi kemur skemmti- legur rauðbrúnn litur fram. München-malt gefur ríkulegt maltbragð og í eftirbragðinu kemur fram karamellu- og súkkulaðikeim- ur. Jóla Bock er gríðarlega góður með sölt- um, íslenskum jólamat og frábær með villibráðinni,“ upplýsir Baldur. Einstök Doppel Bock er stóra systir Jóla Bocks og enn sterkari og bragð- meiri. „Einstök Doppel Bock er af tegund sterkari Bock-bjóra og bragðið marg- slungið. Af bjórnum leggur mikinn ilm af karamellu, malti og greni ásamt tónum af súkkulaði og sítrón- um. Bjórinn er í virkilega góðu jafn- vægi og með skemmtilega sætu sem leikur um munninn í hverjum sopa,“ segir Baldur, sem kemst snemma í jóla- skap þegar brugg- un á Víking-jóla- bjór hefst í septem- ber. Hann á erfitt með að gera upp á milli jólabjóranna sinna. „Jólabjórarnir eru allir gómsæt- ir og gaman að smakka þá alla.“ Víking konungur jólabjóranna Baldur Kárason er bruggmeistari hjá Vífilfelli. Hér lýkur hann við bruggun og átöppun á Einstök Doppel Bock sem kom fyrst á markað 2011 og hefur fengið frábæra dóma hérlendis og erlendis. MYND/AUÐUNN Thule- jólabjór er bragðgóður og skemmti- legur eins og fyrirrenn- ari hans. Alkóhól 5,4%. Carl‘s Jul er fyrsti jólabjórinn frá Carlsberg á Íslandi. Hann er skemmtileg nýjung á markaðinum; mjúkur og millidökkur lager- bjór með sætum karamellukeim, kandís, kanil og þægilegum bitur- leika. Alkóhól 5,6%. Víking Jóla Bock passar vel með íslenskum jólamat og villibráð. Alkóhól 6,2%. Víking-jóla- bjór hentar vel með mat og því til- valinn í veisl- una og á hlað- borðið. Alkó- hól er 5%. Jólin eru komin hjá Vífilfelli sem teflir fram fimm svalandi jólabjórum fyrir þessi jól. Þar á meðal er Víking Jólabjór, sá vinsælasti á Íslandi í 23 ár, splunkunýr Thule-jólabjór og glænýr jólabjór frá Carlsberg.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.