Fréttablaðið - 15.11.2013, Side 52
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og hönnun. Indriðaverðlaun. Hátíðarförðun. Nanna Kristín Magnúsdóttir. Námskeið. Augnháralenging. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Köttinn minn.
En kysstir?
Ég kyssti börnin.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig?
Kötturinn sem hafði lagt sig
í þvottavélinni og spratt út úr
henni á mjög óvæntan hátt
þegar átti að fara að þvo.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera
allt of lengi?
Ég reyni að pæla sem minnst
í öllum göllunum, það er svo
leiðinlegt.
Ertu hörundsár? Oftast
ekki, en kannski stundum.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Já, en oftar þegar
margir sjá til.
Hvenær gerðirðu
þig síðast að fífli og
hvernig? Fyrir nokkrum
dögum settist ég inn í bíl og
hélt að það væri vinkona
mín að sækja mig. Ég setti á
mig beltið í rólegheitum og
var byrjuð að kjafta við hana
þegar ég fattaði að ég þekkti
bílstjórann ekki neitt og hann
starði á mig með undrun
en skellihló svo bara þegar
hann uppgötvaði í hvaða fá-
ránlegu stöðu ég var búin að
koma mér.
Hringirðu stundum í
vælubílinn?
Nei, það er óþarfi að eyða
símtali í það.
Tekurðu strætó?
Alltof sjaldan.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á dag?
Nú í prófkjörsbaráttunni er
ég stanslaust með Facebook
opna og er auðvitað að gera
vini mína geðveika með alls
kyns áróðri. En nú er bara
síðasti spretturinn eftir og
þá er spurning hvort maður
reyni ekki að slaka aðeins á
Facebook-notkuninni.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim?
Heilsa þeim ef ég kannast
við þá, fer nú ekkert sérstak-
lega hjá mér, held ég.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Já.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Rólegheit verða ekki á dag-
skrá, ég ætla að gefa síðustu
klukkutímunum í prófkjöri alla
mína orku.
Áslaug María
Friðriksdóttir
ALDUR: 44
STARF: Borgarfulltrúi
Verslun: Innst í Dalbrekku ofan við Nýbýlaveg / Sími: 519 66 99 / Vefverslun: www.myconceptstore.is
PLÖTUSPILARAR
Plötusplari
39.900,-
Plötuspilari
39.900,-
Plötuspilari
59.900,-
CROSLEY
PLÖTUSPILARI
59.900,-
Eva Ösp Bergþórsdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og starfar í Kaupmanna-
höfn. Hún hefur áhuga á
matargerð með einfald-
leikann í fyrirrúmi. Eva Ösp
er tveggja barna móðir og
mælir með góðum og fjöl-
skylduvænum tortellini-rétti
með ciabatta-brauði með
sólþurrkuðum tómötum.
500 g tortellini
500 ml matreiðslurjómi
150 g kotasæla
100 g tómatpúrra
150 g skinka
100 g pepperoni
300 g sveppir
2 laukar
2-3 hvítlauksrif
250 g rifinn
ostur
2-3 tómatar
Salt og pipar
eftir smekk
1 stk. ciabatta-brauð með sólþurrk-
uðum tómötum (ef það fæst ekki má
bara nota það brauð sem manni
finnst gott)
Blandið rjóma, kotasælu og tómat-
púrrunni saman í skál og hrær-
ið saman. Skerið sveppi,
pepperoni, laukinn, hvítlaukinn
og skinku niður og setjið út í
rjómablönduna. Sjóðið tort-
ellini-pasta. Þegar pastað er
soðið, hellið vatninu af því og
hellið rjómablöndunni yfir pastað
og blandið því vel saman. Hellið svo
blöndunni í eldfast mót, stráið rifna
ostinum yfir, skerið tómatana í sneið-
ar og raðið ofan á.
Hitið ofninn í 180 gráður
Setjið réttinn inn í ofn í
ca. 20 mínútur. Cia-
batta-brauðið sett í
ofn í ca. 10 mínútur.
Gott að bera fram
með ciabatta-brauði
með sólþurrkuð-
um tómötum og
góðu salati.
HELGARMATURINN TORTELLINI SEM KRAKKAR ELSKA