Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 4
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
VEÐUR Allt stefnir í að jólin verði
hvít víðast hvar á landinu sam-
kvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Hvít jól hafa verið algengari en
rauð síðustu nítján árin sam-
kvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni.
Spáð er hvassri norðanátt
og snjókomu fyrir norðan á
aðfangadag. Rætist spáin er
hætt við að lítið ferðaveður
verði norðan heiða, en spáin
gæti breyst þegar líður á, segir
Teitur Arason, vakthafandi
veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands.
Hann segir að frost verði um
allt land á aðfangadag og jóla-
dag. Í dag er snjóþekja víð-
ast hvar á landinu, og engir
umhleypingar í kortunum sem
eru líklegir til að breyta því,
segir Teitur.
Á jóladag gerir spáin ráð fyrir
því að norðanáttin gangi niður
og dragi úr snjókomunni fyrir
norðan. Heldur kólnar í veðri og
er spáð fimm til tíu gráða frosti
víða um land, þó minna
við sjávarsíðuna.
„Það gæti orðið meira
frost og sæmilega fal-
legt vetrarríki. Svona
ekta jólaveður þar sem
marrar í snjónum,“
segir Teitur.
Jólin voru hvít sunn-
anlands í fyrra, en hvít fyrir
norðan. Síðustu árin hafa
jólin oftar verið hvít en rauð,
eins og sjá má á myndinni
hér til hliðar. - bj
Spáð norðanátt og snjókomu fyrir norðan á aðfangadag og mögulega slæmu ferðaveðri norðan heiða:
Stefnir í að jólin verði hvít um allt land
322 þúsund Íslendingar eru skráðir í trúfélög.
Þar af eru flestir skráðir í Þjóðkirkj-
una, eða um 254 þúsund manns.
Kaþólska kirkjan kemur þar á eftir
með um ellefu þúsund skráningar.
GÓÐGERÐARMÁL Íslenska fyrir-
tækið Nox Medical færði samtök-
unum ABC barnahjálp á dögunum
600 þúsund krónur til að kaupa 250
sængur og 500 lök fyrir heimavist
stúlkna í ABC-skólanum í Machike
í Pakistan. Nox Medical hefur selt
fimm þúsund svefnmælingatæki
fyrir börn.
Fyrr á árinu fékk ABC barna-
hjálp styrk frá utanríkisráðuneyt-
inu til byggingar á fyrsta áfanga
heimavistar fyrir stúlkur í Mach-
ike. - fb
ABC barnahjálp fékk gjöf:
Sængur og lök
til Pakistans
ALÞINGI Á bilinu eitt til þrjú tilvik
hafa komið upp árlega þar sem far-
þegaflugvélar hafa þurft að hætta
við að lenda á Keflavíkurflugvelli.
Þetta kemur fram í svari innanrík-
isráðherra við spurningu Sigríðar
Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar, á Alþingi.
Ráðherra svarar ekki síðari hluta
spurningar Sigríðar um það hvar
flugvélar, sem hafi þurft að hætta
við lendingu í Keflavík síðustu tíu
árin, hafi lent. Aðeins er rætt um
að varaflugvellir séu í Reykjavík,
á Egilsstöðum og á Akureyri, auk
Glasgow og Prestwick í Skotlandi. - bj
Spurt um varaflugvelli:
Ráðherra svarar
ekki fyrirspurnVIÐSKIPTI Velta með hlutabréf í N1
nam 733 milljónum króna í gær
þegar félagið var skráð á Aðal-
markað Kauphallar íslands. Verð
bréfanna hafði við lokun mark-
aða styrkst um 1,1 prósent sem
þýðir að almennir fjárfestar sem
keyptu bréf í hlutafjárútboði
félagsins gátu þá grætt um 42
þúsund krónur.
„Þetta voru
um 296 viðskipti
yfir daginn og
til samanburðar
er meðalfjöldi
hlutabréfavið-
skipta í Kaup-
höllinni um 90
viðskipti á dag.
Bréf almennra
fjárfesta hækk-
uðu um 22,9 prósent frá hlutafjár-
útboðinu og bréf fagfjárfesta um
4,4 prósent,“ segir Magnús Harð-
arson, forstöðumaður viðskipta-
sviðs Kauphallarinnar.
Almennu fjárfestarnir sem
Magnús vísar í keyptu um 7.200
áskriftir í hlutafjárútboði N1 sem
lauk 9. desember síðastliðinn.
Mikil umframeftirspurn eftir
hlutabréfum félagsins, sem er enn
önnur vísbendingin um að áhugi
almennings á hlutabréfamark-
aðinum sé að aukast, leiddi til þess
að hámarksúthlutun til almennra
fjárfesta var 182 þúsund krónur á
hverja áskrift.
„Í 137 viðskiptum gærdagsins
af 296 var magnið þessi staðlaða
stærð sem menn fengu í útboðinu,“
segir Magnús.
N1 er þriðja félagið sem skráð
er á Aðalmarkað Kauphallarinn-
ar á þessu ári. Hin tvö eru TM og
VÍS.
„Á fyrstu viðskiptadögum TM
og Vís voru alveg sérlega mikil
viðskipti með hlutabréf beggja
félaganna. Á milli sex og sjö pró-
sent af útistandandi hlutum í þeim
skiptu um hendur á fyrsta degi
sem var talsvert meira en í tilfelli
N1,“ segir Magnús.
Eggert Benedikt Guðmundsson,
forstjóri N1, segir að gærdagur-
inn leggist vel í sig og að hann sé
bjartsýnn á framhaldið.
„Þetta var mjög þægileg byrj-
un og við vitum að bréf hafa til-
hneigingu til að hækka og lækka
eftir því sem fram líða stundir.
Við erum mjög ánægð með það
hvernig allt þetta ferli hefur geng-
ið og félagið var tilbúið til að fara
á markað,“ segir Eggert.
haraldur@frettabladid.is
Almennir fjárfestar
græddu 42.000 krónur
Verð á hlutabréfum í N1 breyttist lítið á fyrsta viðskiptadegi félagsins í Kauphöll
Íslands. Bréf almennra fjárfesta hækkuðu hins vegar um 22,9 prósent frá hluta-
fjárútboði félagsins fyrr í mánuðinum. Forstjóri N1 er bjartsýnn á framhaldið.
SAMFÉLAG Framlag sjálfboðaliða er
ekki mikilvægur hluti af starfsemi
þorra velferðarfélaga á Íslandi.
Svo segir í niðurstöðum rann-
sóknar sem Ómar H. Kristmunds-
son og Steinunn Hrafnsdóttir hafa
gert á sjálfboðaliðastarfi.
Sjálfboðaliðar sinna helst stjórn-
arstörfum og tímabundnum fjár-
öflunum. Þróunin hefur verið að
félagasamtök hafa fleiri launaða
starfsmenn og því minni þörf á
þátttöku áhugafólks. Þrátt fyrir
slíka þróun virðist áhugi fólks
á sjálfboðaliðastarfi ekki hafa
minnkað. - ebg
Frekar launaðir starfsmenn:
Minni þörf á
sjálfboðaliðum
Bréf almennra fjárfesta
hækkuðu um 22,9 prósent
frá hlutafjárútboðinu og
bréf fagfjárfesta um 4,4
prósent.
Í KAUPHÖLLINNI Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, og Páll Harðarson,
forstjóri Kauphallarinnar, við skráninguna í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA.
MAGNÚS
HARÐARSON
FLUGÞOL Flugvélar verða að hafa nægt
eldsneyti til að lenda á varaflugvelli séu
aðstæður þannig að ekki er hægt að
lenda í Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Hv
ít
J
ól
Rauð
Jó
l
10
ÁR
9
ÁR Hvít Jól
R
auð Jól9
ÁR
10
ÁR
Hvít Jól
Rauð Jól
12
ÁR
7
ÁR
Hv
ít J
ól
R
au
ð
Jó
l
8
ÁR
SNJÓÞEKJA Á JÓLADAG
FRÁ 1994 TIL 2012
Ísafjörður
Reykjavík
Akureyri
Höfn
11
ÁR
SVEITARSTJÓRNIR Sjö sveitarfélög
á Suðurlandi hafa gert samstarfs-
samning um skóla- og velferðar-
þjónustu.
„Rúm tvö ár eru liðin frá því að
sömu sveitarfélög tóku upp sam-
starf um félagsþjónustu. Reynslan
af því samstarfi hefur verið mjög
góð og eru bundnar miklar vonir
við að með útvíkkun samstarfsins
til þjónustu á sviði skólamála skap-
ist enn betri tækifæri til að vinna
heildstætt í þágu barna, ungmenna
og annarra íbúa,“ segir í frétt
frá Ölfusi, Hveragerðisbæ, Blá-
skógabyggð, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi og
Flóahreppi. - gar
Samvinna á Suðurlandi:
Sjö sveitarfélög
í skólasamstarfi
SVEITARSTJÓRAR Samsstarfssamning-
ur undirritaður í Hveragerði.
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
Hægviðri inn til landsins.
LÆGÐAGANGUR Krappar lægðir heimsækja landið ört þessa dagana. Í dag hvessir
syðst er líður á daginn og í kvöld má búast við stormi við SA-ströndina. Á morgun lægir
heldur inn til landsins en strekkingur og él á annesjum NV-til og suðaustanlands.
0°
6
m/s
1°
6
m/s
0°
7
m/s
6°
12
m/s
Á morgun
Strekkingur á Vestfj örðum.
Gildistími korta er um hádegi
2°
0°
1°
3°
2°
Alicante
Aþena
Basel
16°
13°
7°
Berlín
Billund
Frankfurt
7°
5°
8°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
6°
5°
5°
Las Palmas
London
Mallorca
20°
10°
16°
New York
Orlando
Ósló
9°
20°
3°
París
San Francisco
Stokkhólmur
6°
13°
5°
-2°
6
m/s
4°
4
m/s
-1°
3
m/s
1°
5
m/s
0°
5
m/s
0°
9
m/s
-7°
9
m/s
1°
1°
1°
2°
2°