Fréttablaðið - 27.12.2013, Side 16

Fréttablaðið - 27.12.2013, Side 16
27. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR ERLENDIR VENDIPUNKTAR | 16 Tyrklands, Indónesíu og fleiri stórra ríkja er að setja áhrifum Bandaríkjanna sífellt þrengri skorður. Íran sem opnaði dyr sínar á árinu mun bætast í hóp þessara ríkja um leið og versta sérviskan hættir að ráða ferðinni í Tehran. Ekkert ríki né heldur bandalag ríkja getur þó tekið við drottnandi hlutverki Bandaríkjanna. Hags- munir er ólíkir hjá nýjum stórveld- um heimsins og flest glíma þau líka við alvarleg vandamál. Þetta sást vel á árinu í pólitískri lömun hins snauða Indlands, í átökum í Tyrklandi og með öðrum hætti í Kína. Meginspurningum um ríki og vald er ósvarað í mörgum þeirra, ekki síst í Kína, en vaxandi fyrirferð þeirra reynir nú á þanþol alþjóðakerfisins. Sára stórveldið Rússland var aldrei þessu vant í fréttum fyrir að ná árangri í utan- ríkismálum, fyrst í Sýrlandi og svo í Úkraínu. Hvorugt málið breytir því þó að ríkið á í vaxandi erfið- leikum bæði innan lands og utan. Utanríkisstefnan hefur mótast af sárindum og tilraunum til að end- urheimta stöðu hnattræns stór- veldis. Rússar eyða hlutfallslega meiru til hermála en önnur stór- veldi og munu innan þriggja ára eyða meiru í þau en heilbrigðis- mál. Hagkerfi Rússlands er hins vegar aðeins þriðjungur af því jap- anska og helmingur af því þýska. Framleiðslan á mann er minni en í Grikklandi. Rússum fækkar og á næstu árum mun fækka um tíu milljónir á vinnumarkaði. Lítið er flutt út annað en hráefni. Þetta er stórt og vel vopnað en veikburða ríki. Fyrir framtíðina skiptir þróun mála í Úkraínu mjög miklu máli. Úr kreppu í stöðnun? Á Vesturlöndum er almenningur farinn að trúa því að löng gullöld sé að baki og að framtíðin verði fátæklegri. Þessi tilfinning kemur sterkt og ítrekað fram í margvís- legum könnunum á viðhorfum fólks bæði austan hafs og vestan. Hún er studd rökum og reynslu. Lífskjör almennings í Bandaríkj- unum hafa lítið batnað í áratugi og versnað hjá þeim fátækari. Í Evr- ópu horfir ungt fólk fram á verri kjör en foreldrar þess vöndust. Þótt löng kreppa sé víða að baki sjá menn fleiri teikn um stöðn- un en framfarir. Aðgerðir flestra ríkja bera keim af tilraunum til að blása lofti í hagkerfin en innviðir eru óvíða styrktir. Pólitíkin er ólík frá landi til lands en þó má greina þræði. Mönnum er víða talin trú um að útlendingar beri ábyrgð á ástandinu. Vitrænni umræða bend- ir hins vegar til nýs og víðtæks vilja til að skoða í alvöru hvernig gefið er í spilum samtímans. Ár andófs gegn ójöfnuði Þetta var ár frétta af ójöfnuði sem ekki hefur verið meiri í nýlegri sögu Vesturlanda. Hagfræðingar skýrðu hvernig ójöfnuður getur vegið að efnahagslífinu. Pólitísk- ir greinendur sýndu hvernig sam- félög Vesturlanda eru að gliðna og súrna vegna ólíkra hagsmuna ríkra manna og almennings. Stjórnmálin einkenndust líka víða af reiði og tortryggni frekar en yfirvegun og skynsemi. Enginn skortur reyndist heldur á stjórn- málamönnum sem gera út á reiði og örvæntingu almennings sjálfum sér til hagsbóta. Kerfisbreyting í Mið-Austurlöndum Grunnþættirnir í ríkjaskipun Mið- Austurlanda eru að verða hundrað ára gamlir og stríðin um þá jafn- gömul. Rætur þeirra er að finna í gömlum hagsmunum vestrænna stórvelda. Arfurinn af hundrað ára hagsmunagæslu útlendinga í Mið-Austurlöndum sýndist sjald- an ömurlegri en á líðandi ári með stríðinu í Sýrlandi, hjaðningavíg- um í Írak, upplausn í heimi araba, vaxandi vonleysi Palestínumanna og flótta milljóna manna. Stríðin í Mið-Austurlöndum eru þó flest borgarastríð og snúast ekki leng- ur um vestræna hagsmuni. Púðr- ið var þurrt eins og sást eftir inn- rásina í Írak og nú loga eldar glatt í mörgum ótraustum ríkjum. Nú eru það stjórnmál samsemdar á trúarlegum grunni og átök á milli Íran og Sádi-Arabíu með Tyrki og Egypta á hliðarlínum sem móta stríðin. Það kerfi mun um stund taka við af hinni dapurlegu banda- rísku öld í Mið-Austurlöndum. Hvarf einkalífsins Uppljóstranir Snowdens um ótrú- legt umfang á njósnastarfsemi Bandaríkjanna voru einn vendi- punktur ársins. Skyndilega varð ljóst inn í hvers konar heim við höfum stigið með tengingu allra greina lífsins við nýja tækni. Framtíðarhryllingur birtist þarna sem samtímaveruleiki. Staðfesting á vaxandi mun á Evrópu og Banda- ríkjunum sást um leið á gerólíkum viðbrögðum vestan hafs og austan við upplýsingum Snowdens. Hann var hetja ársins austan megin hafs en stórglæpamaður vestan þess. Nánd fjarlægða Heimsvæðingin hefur fært menn og atburði í nýtt návígi. Okkur kemur miklu meira við en nokkru sinni áður hvað fjarlægt fólk er að gera, hvað það vill og hvað það getur. Árangur af viðleitni heima fyrir ræðst líka sífellt meira af því hvernig hún fellur að alþjóð- legum aðstæðum. Það þurfti ekki nein sérstök gleraugu til að sjá þetta á árinu sem er að líða. En menn héldu samt áfram að reka sig óþægilega á þessa einföldu staðreynd. Styrkur Evrópu Efnalegar forsendur vestræns for- ræðis í heiminum eru að hverfa. Evrópa á í sérstökum vanda þótt versta kreppan sé nú að baki. Löndin í kringum okkur minna þó um margt á skjól í hörðum heimi. Ekkert hinna rísandi stórvelda er öðrum til fordæmis um samfélaga- skipan. Flest nágrannalönd okkar eru hins vegar alþjóðlegar fyrir- myndir. Hvergi er frelsið meira í reynd, hvergi er umburðarlyndið staðfastara, hvergi er svo vel hlúð að lífi hins almenna manns, hvergi er upplýsingin almennari, hvergi er skárra að eiga í erfiðleikum með lífið og hvergi er menningin fjöl- breyttari eða frjórri. Spurning Árið sýndi hins vegar að stærsta ógnin við allt þetta er vaxandi ójöfnuður innan vestrænna þjóð- félaga. Hann er að rífa þau í sund- ur. Þekktur sagnfræðingur sagði eitt sinn að stærsta spurningin um tuttugustu öldina væri um það hvernig mönnum tókst að forða kapítalismanum frá því tortíma sjálfum sér. Samtíminn gæti notað svör við þeirri spurningu. Degi er tekið að halla á öld vesturs- ins. Sú staðreynd varð ljósari en áður á líðandi ári. Fimmhundruð árum eftir upphaf nýlendutímans, sem endaði með heimi undir for- ræði fáeinna vestrænna stórvelda, sjást nú sífellt fleiri merki um þá þungu strauma sem flytja völd og auð og áhrif frá vestri til austurs og frá norðri til suðurs. Þungamiðja flestra hluta er að færast til og nær alltaf í átt frá Vesturlöndum. Þetta er að breyta heiminum. Því fylgja margar hættur. Viðvörun sögunnar Í haust sagði utanríkisráðherra Kína í ræðu sem fór furðu hljótt að af þeim 15 tilvikum sem hann þekkti úr sögunni um uppgang nýrra stórvelda hefðu 11 endað með stríði. Þetta hljómaði ekki vel á ári harðnandi deilna um Kínahaf og vaxandi máttar kínverska hersins. En athugasemdin var rétt. Tímar mikilla breytinga á hlutfallslegum mætti stórvelda eru afar viðsjár- verðir. Sögukennslan var viðvörun til eldri stórvelda um að standa ekki í vegi fyrir vaxandi áhrifum mesta ríkis jarðarinnar og sérstök áminn- ing til Bandaríkjanna um að þrengja ekki að Kína í Asíu. Það kom í ljós á árinu að Kína hefur skipt um kúrs í utanríkismálum. Stjórnin fylgir ekki lengur áratugagamalli stefnu um að halda Kína til hlés. Erfitt nágrenni Fátt greiddi meira leið Bandaríkj- anna til valda en lega landsins að mestu höfum heimsins og meinlaust nágrenni á landi. Kína liggur hins vegar að tólf ríkjum á landi og að lögsögu fleiri á sjó. Ríkið á í alvar- legum deilum um landamæri og lög- sögu við meira en helming granna sinna. Víða á jöðrum Kína ríkir tor- tryggni vegna langrar sögu mikils aflsmunar. Aðeins fá grannríki, og ekkert þeirra sterkustu, geta talist sérlega vinveitt Kínverjum. Nær öll austanverð Asía er hins vegar orðin nátengd kínversku efnahagslífi. Kína er líka orðið stærsti viðskipta- vinur meirihluta ríkja heims án þess að hafa eignast öfluga banda- menn. Innilokað stórveldi Nær öll utanríkisverslun Kína, og þar með aðdrættir á hráefnum og orku, fer um þröngar siglingaleið- ar í Asíu og viðkvæm hafsvæði þar sem Kínverjar hafa lítil áhrif. Þetta er ein helsta skýringin á tilraunum Kínverja til að styrkja stöðu sína erlendis. Þeir sem horfa á heiminn frá Peking sjá erfiða baráttu inni- lokaðs verslunar- og iðnveldis fyrir viðskiptalegu og pólitísku öryggi. Úr öðrum áttum kann það sama að sýnast ógnandi útþenslustefna. Vaxandi afleiðingar af þessum ólíka skilningi verða oft í fréttum á næstu árum. Afleiðingar hnignunar Minnkandi trú á mátt Bandaríkj- anna er að verða mikill áhrifavald- ur í alþjóðamálum. Þetta er ekki aðeins svo í Mið-Austurlöndum held- ur einnig á svæðum allt í kringum Kína og Indland og á hinum löngu jöðrum Rússlands. Brasilía er líka að mynda mótvægi við Washington í Suður-Ameríku. Bandaríkin eru þó til mikilla muna öflugasta herveldi heimsins og eyða nær jafn miklu í her sinn og allar aðrar þjóðir jarð- ar til samans. Reynslan bæði í Írak og Afganistan hefur hins vegar sýnt að jafnvel yfirþyrmandi herstyrk- ur dugar ekki til að ráða niðurstöð- um mála. Eftir meira en áratugar stríðsrekstur og meira en trilljón dollara útgjöld standa Bandaríkin ráðþrota í Mið-Austurlöndum og vilja nú loks ræða við Íran. Stríðið í Sýrlandi sýnir vel þetta máttleysi hinna sterku. Heimur margra stórvelda Vöxtur Kína, Indlands, Brasilíu, Breytingar á mætti stórvelda Sífellt fleiri merki sjást um þá þungu strauma sem flytja völd og auð og áhrif frá vestri til austurs og frá norðri til suðurs, skrifar Jón Ormur Halldórsson. Hann segir tíma mikilla breytinga afar viðsjárverða. Jafnframt að vaxandi ójöfnuður sé að rífa vestræn þjóðfélög sundur. Jón Ormur Halldórsson er stjórnmálafræðingur Fréttablaðið gerir upp árið með grein um erlenda vendipunkta sem fjalla meðal annars um heim margra stórvelda og vaxandi ójöfnuð á Vesturlöndum. ERLENDIR VENDIPUNKTAR 2013 LEIÐTOGAR STÓRVELDA Forseti Rússlands, Vladimír Pútín, og forseti Kína, Xi Jinping, fara fyrir tveimur stærstu efnahagsveldum heims. Kína er orðið stærsti viðskiptavinur meirihluta ríkja heims, skrifar Jón Ormur Halldórsson. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ➜ Uppljóstranir Snowdens um ótrúlegt umfang á njósnastarfsemi Bandaríkjanna voru einn vendipunkt- ur ársins. Skyndilega varð ljóst inn í hvers konar heim við höfum stigið með tengingu allra greina lífsins við nýja tækni. Framtíðarhryllingur birtist þarna sem samtímaveruleiki.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.