Fréttablaðið - 27.12.2013, Qupperneq 16
27. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR ERLENDIR VENDIPUNKTAR | 16
Tyrklands, Indónesíu og fleiri
stórra ríkja er að setja áhrifum
Bandaríkjanna sífellt þrengri
skorður. Íran sem opnaði dyr sínar
á árinu mun bætast í hóp þessara
ríkja um leið og versta sérviskan
hættir að ráða ferðinni í Tehran.
Ekkert ríki né heldur bandalag
ríkja getur þó tekið við drottnandi
hlutverki Bandaríkjanna. Hags-
munir er ólíkir hjá nýjum stórveld-
um heimsins og flest glíma þau
líka við alvarleg vandamál. Þetta
sást vel á árinu í pólitískri lömun
hins snauða Indlands, í átökum
í Tyrklandi og með öðrum hætti
í Kína. Meginspurningum um
ríki og vald er ósvarað í mörgum
þeirra, ekki síst í Kína, en vaxandi
fyrirferð þeirra reynir nú á þanþol
alþjóðakerfisins.
Sára stórveldið
Rússland var aldrei þessu vant í
fréttum fyrir að ná árangri í utan-
ríkismálum, fyrst í Sýrlandi og svo
í Úkraínu. Hvorugt málið breytir
því þó að ríkið á í vaxandi erfið-
leikum bæði innan lands og utan.
Utanríkisstefnan hefur mótast af
sárindum og tilraunum til að end-
urheimta stöðu hnattræns stór-
veldis. Rússar eyða hlutfallslega
meiru til hermála en önnur stór-
veldi og munu innan þriggja ára
eyða meiru í þau en heilbrigðis-
mál. Hagkerfi Rússlands er hins
vegar aðeins þriðjungur af því jap-
anska og helmingur af því þýska.
Framleiðslan á mann er minni en
í Grikklandi. Rússum fækkar og
á næstu árum mun fækka um tíu
milljónir á vinnumarkaði. Lítið er
flutt út annað en hráefni. Þetta er
stórt og vel vopnað en veikburða
ríki. Fyrir framtíðina skiptir þróun
mála í Úkraínu mjög miklu máli.
Úr kreppu í stöðnun?
Á Vesturlöndum er almenningur
farinn að trúa því að löng gullöld
sé að baki og að framtíðin verði
fátæklegri. Þessi tilfinning kemur
sterkt og ítrekað fram í margvís-
legum könnunum á viðhorfum
fólks bæði austan hafs og vestan.
Hún er studd rökum og reynslu.
Lífskjör almennings í Bandaríkj-
unum hafa lítið batnað í áratugi og
versnað hjá þeim fátækari. Í Evr-
ópu horfir ungt fólk fram á verri
kjör en foreldrar þess vöndust.
Þótt löng kreppa sé víða að baki
sjá menn fleiri teikn um stöðn-
un en framfarir. Aðgerðir flestra
ríkja bera keim af tilraunum til að
blása lofti í hagkerfin en innviðir
eru óvíða styrktir. Pólitíkin er ólík
frá landi til lands en þó má greina
þræði. Mönnum er víða talin trú
um að útlendingar beri ábyrgð á
ástandinu. Vitrænni umræða bend-
ir hins vegar til nýs og víðtæks
vilja til að skoða í alvöru hvernig
gefið er í spilum samtímans.
Ár andófs gegn ójöfnuði
Þetta var ár frétta af ójöfnuði sem
ekki hefur verið meiri í nýlegri
sögu Vesturlanda. Hagfræðingar
skýrðu hvernig ójöfnuður getur
vegið að efnahagslífinu. Pólitísk-
ir greinendur sýndu hvernig sam-
félög Vesturlanda eru að gliðna
og súrna vegna ólíkra hagsmuna
ríkra manna og almennings.
Stjórnmálin einkenndust líka víða
af reiði og tortryggni frekar en
yfirvegun og skynsemi. Enginn
skortur reyndist heldur á stjórn-
málamönnum sem gera út á reiði
og örvæntingu almennings sjálfum
sér til hagsbóta.
Kerfisbreyting
í Mið-Austurlöndum
Grunnþættirnir í ríkjaskipun Mið-
Austurlanda eru að verða hundrað
ára gamlir og stríðin um þá jafn-
gömul. Rætur þeirra er að finna í
gömlum hagsmunum vestrænna
stórvelda. Arfurinn af hundrað
ára hagsmunagæslu útlendinga í
Mið-Austurlöndum sýndist sjald-
an ömurlegri en á líðandi ári með
stríðinu í Sýrlandi, hjaðningavíg-
um í Írak, upplausn í heimi araba,
vaxandi vonleysi Palestínumanna
og flótta milljóna manna. Stríðin
í Mið-Austurlöndum eru þó flest
borgarastríð og snúast ekki leng-
ur um vestræna hagsmuni. Púðr-
ið var þurrt eins og sást eftir inn-
rásina í Írak og nú loga eldar glatt
í mörgum ótraustum ríkjum. Nú
eru það stjórnmál samsemdar á
trúarlegum grunni og átök á milli
Íran og Sádi-Arabíu með Tyrki og
Egypta á hliðarlínum sem móta
stríðin. Það kerfi mun um stund
taka við af hinni dapurlegu banda-
rísku öld í Mið-Austurlöndum.
Hvarf einkalífsins
Uppljóstranir Snowdens um ótrú-
legt umfang á njósnastarfsemi
Bandaríkjanna voru einn vendi-
punktur ársins. Skyndilega varð
ljóst inn í hvers konar heim við
höfum stigið með tengingu allra
greina lífsins við nýja tækni.
Framtíðarhryllingur birtist þarna
sem samtímaveruleiki. Staðfesting
á vaxandi mun á Evrópu og Banda-
ríkjunum sást um leið á gerólíkum
viðbrögðum vestan hafs og austan
við upplýsingum Snowdens. Hann
var hetja ársins austan megin hafs
en stórglæpamaður vestan þess.
Nánd fjarlægða
Heimsvæðingin hefur fært menn
og atburði í nýtt návígi. Okkur
kemur miklu meira við en nokkru
sinni áður hvað fjarlægt fólk er
að gera, hvað það vill og hvað það
getur. Árangur af viðleitni heima
fyrir ræðst líka sífellt meira af
því hvernig hún fellur að alþjóð-
legum aðstæðum. Það þurfti ekki
nein sérstök gleraugu til að sjá
þetta á árinu sem er að líða. En
menn héldu samt áfram að reka
sig óþægilega á þessa einföldu
staðreynd.
Styrkur Evrópu
Efnalegar forsendur vestræns for-
ræðis í heiminum eru að hverfa.
Evrópa á í sérstökum vanda þótt
versta kreppan sé nú að baki.
Löndin í kringum okkur minna þó
um margt á skjól í hörðum heimi.
Ekkert hinna rísandi stórvelda er
öðrum til fordæmis um samfélaga-
skipan. Flest nágrannalönd okkar
eru hins vegar alþjóðlegar fyrir-
myndir. Hvergi er frelsið meira í
reynd, hvergi er umburðarlyndið
staðfastara, hvergi er svo vel hlúð
að lífi hins almenna manns, hvergi
er upplýsingin almennari, hvergi
er skárra að eiga í erfiðleikum með
lífið og hvergi er menningin fjöl-
breyttari eða frjórri.
Spurning
Árið sýndi hins vegar að stærsta
ógnin við allt þetta er vaxandi
ójöfnuður innan vestrænna þjóð-
félaga. Hann er að rífa þau í sund-
ur. Þekktur sagnfræðingur sagði
eitt sinn að stærsta spurningin
um tuttugustu öldina væri um það
hvernig mönnum tókst að forða
kapítalismanum frá því tortíma
sjálfum sér. Samtíminn gæti notað
svör við þeirri spurningu.
Degi er tekið að halla á öld vesturs-
ins. Sú staðreynd varð ljósari en
áður á líðandi ári. Fimmhundruð
árum eftir upphaf nýlendutímans,
sem endaði með heimi undir for-
ræði fáeinna vestrænna stórvelda,
sjást nú sífellt fleiri merki um þá
þungu strauma sem flytja völd og
auð og áhrif frá vestri til austurs
og frá norðri til suðurs. Þungamiðja
flestra hluta er að færast til og nær
alltaf í átt frá Vesturlöndum. Þetta
er að breyta heiminum. Því fylgja
margar hættur.
Viðvörun sögunnar
Í haust sagði utanríkisráðherra
Kína í ræðu sem fór furðu hljótt
að af þeim 15 tilvikum sem hann
þekkti úr sögunni um uppgang
nýrra stórvelda hefðu 11 endað með
stríði. Þetta hljómaði ekki vel á ári
harðnandi deilna um Kínahaf og
vaxandi máttar kínverska hersins.
En athugasemdin var rétt. Tímar
mikilla breytinga á hlutfallslegum
mætti stórvelda eru afar viðsjár-
verðir. Sögukennslan var viðvörun
til eldri stórvelda um að standa ekki
í vegi fyrir vaxandi áhrifum mesta
ríkis jarðarinnar og sérstök áminn-
ing til Bandaríkjanna um að þrengja
ekki að Kína í Asíu. Það kom í ljós á
árinu að Kína hefur skipt um kúrs
í utanríkismálum. Stjórnin fylgir
ekki lengur áratugagamalli stefnu
um að halda Kína til hlés.
Erfitt nágrenni
Fátt greiddi meira leið Bandaríkj-
anna til valda en lega landsins að
mestu höfum heimsins og meinlaust
nágrenni á landi. Kína liggur hins
vegar að tólf ríkjum á landi og að
lögsögu fleiri á sjó. Ríkið á í alvar-
legum deilum um landamæri og lög-
sögu við meira en helming granna
sinna. Víða á jöðrum Kína ríkir tor-
tryggni vegna langrar sögu mikils
aflsmunar. Aðeins fá grannríki, og
ekkert þeirra sterkustu, geta talist
sérlega vinveitt Kínverjum. Nær öll
austanverð Asía er hins vegar orðin
nátengd kínversku efnahagslífi.
Kína er líka orðið stærsti viðskipta-
vinur meirihluta ríkja heims án
þess að hafa eignast öfluga banda-
menn.
Innilokað stórveldi
Nær öll utanríkisverslun Kína, og
þar með aðdrættir á hráefnum og
orku, fer um þröngar siglingaleið-
ar í Asíu og viðkvæm hafsvæði þar
sem Kínverjar hafa lítil áhrif. Þetta
er ein helsta skýringin á tilraunum
Kínverja til að styrkja stöðu sína
erlendis. Þeir sem horfa á heiminn
frá Peking sjá erfiða baráttu inni-
lokaðs verslunar- og iðnveldis fyrir
viðskiptalegu og pólitísku öryggi.
Úr öðrum áttum kann það sama
að sýnast ógnandi útþenslustefna.
Vaxandi afleiðingar af þessum
ólíka skilningi verða oft í fréttum
á næstu árum.
Afleiðingar hnignunar
Minnkandi trú á mátt Bandaríkj-
anna er að verða mikill áhrifavald-
ur í alþjóðamálum. Þetta er ekki
aðeins svo í Mið-Austurlöndum held-
ur einnig á svæðum allt í kringum
Kína og Indland og á hinum löngu
jöðrum Rússlands. Brasilía er líka
að mynda mótvægi við Washington
í Suður-Ameríku. Bandaríkin eru þó
til mikilla muna öflugasta herveldi
heimsins og eyða nær jafn miklu í
her sinn og allar aðrar þjóðir jarð-
ar til samans. Reynslan bæði í Írak
og Afganistan hefur hins vegar sýnt
að jafnvel yfirþyrmandi herstyrk-
ur dugar ekki til að ráða niðurstöð-
um mála. Eftir meira en áratugar
stríðsrekstur og meira en trilljón
dollara útgjöld standa Bandaríkin
ráðþrota í Mið-Austurlöndum og
vilja nú loks ræða við Íran. Stríðið
í Sýrlandi sýnir vel þetta máttleysi
hinna sterku.
Heimur margra stórvelda
Vöxtur Kína, Indlands, Brasilíu,
Breytingar á mætti stórvelda
Sífellt fleiri merki sjást um þá þungu strauma sem flytja völd og auð og áhrif frá vestri til austurs og frá norðri til suðurs, skrifar Jón Ormur
Halldórsson. Hann segir tíma mikilla breytinga afar viðsjárverða. Jafnframt að vaxandi ójöfnuður sé að rífa vestræn þjóðfélög sundur.
Jón Ormur Halldórsson er stjórnmálafræðingur
Fréttablaðið gerir upp árið með grein um erlenda vendipunkta
sem fjalla meðal annars um heim margra stórvelda og vaxandi
ójöfnuð á Vesturlöndum.
ERLENDIR VENDIPUNKTAR 2013
LEIÐTOGAR STÓRVELDA Forseti Rússlands, Vladimír Pútín, og forseti Kína, Xi Jinping, fara fyrir tveimur stærstu efnahagsveldum heims. Kína er orðið
stærsti viðskiptavinur meirihluta ríkja heims, skrifar Jón Ormur Halldórsson. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
➜ Uppljóstranir Snowdens um ótrúlegt umfang á njósnastarfsemi Bandaríkjanna voru einn vendipunkt-
ur ársins. Skyndilega varð ljóst inn í hvers konar heim við höfum stigið með tengingu allra greina lífsins
við nýja tækni. Framtíðarhryllingur birtist þarna sem samtímaveruleiki.