Fréttablaðið - 17.01.2014, Síða 21

Fréttablaðið - 17.01.2014, Síða 21
ELDAR OG FRYSTIR „Ég fór sjálf að elda og frysta enda oft upptekin seinni- part dags. Vand- inn er sá að fryst- irinn minn er lítill og fljótur að fyllast. Þannig sá ég fram á að við þyrft- um að borða sama matinn með stuttu millibili. Þá fékk ég þessa hugdettu hvort ég gæti býtt- að við aðra á frosn- um mat í gegnum Facebook. .“ GENGIÐ Á SKÍÐUM Ferðafélagið Útivist býður upp á gönguskíðaferð úr Bláfjöllum í Litlu kaffistofuna á morgun. Farið verður með rútu kl. 9.30 í fyrramálið og gengn- ir verða 20 km. Áætlaður göngutími er sex klukkustundir. Hugmyndina að Facebook-síðunni Matarbýtti fékk Hafdís eftir samtal við góða vinkonu. „Hún hefur mjög gaman af að elda en gefst minni tími til þess eftir að hún eignaðist barn á síðasta ári. Hún brást við með því að undirbúa matinn fyrir allan mánuðinn með því að elda og setja í frysti. Ég fór sjálf að elda og frysta enda oft upptekin seinnipart dags og þá er gott að eiga eitthvað í frysti sem búið er að elda og sem hita má upp. Vandinn er sá að frystirinn minn er lítill og fljótur að fyllast. Þannig sá ég fram á að við þyrftum að borða sama matinn með stuttu millibili. Þá fékk ég þessa hugdettu hvort ég gæti býttað við aðra á frosnum mat í gegnum Facebook. Sá einn- ig fyrir mér að þetta væri sniðugt fyrir fólk sem eldar fyrir lítil heimili og neyðist til að kaupa mat í stórum skömmtum. Þá gæti þetta líka orðið til þess að maður fengi að smakka ýmsa rétti sem maður kann ekki sjálfur að elda. Hafdís stofnaði því Facebook-síðuna og viðbrögðin hafa verið góð. „Fólki finnst þetta sniðugt og það tínist hægt og hljótt í hópinn. Við erum orðin 48 núna,“ segir Hafdís sem bjó til garnbýttihóp á netinu í fyrra og í honum eru yfir 400 manns sem býtta á garnafgöngum. En er fólk ekki feimið að fá mat hjá fólki sem það þekkir ekki neitt? „Ég hafði nú dálitlar áhyggjur af því en langaði samt að prufa þetta. Síðan fær maður tilfinningu fyrir fólkinu og hvort það er á sömu línu og maður sjálfur. Ég hugsaði síðuna líka á þann hátt að maður gæti komist í tengsl við einhvern tengdan manni sem er að elda,“ segir Hafdís en hún bendir á að hugmyndin sé ekki ný af nálinni. „Það er til dæmis til síða sem heitir www.share- yourmeal.net þar sem allur heimurinn er undir. Þar getur fólk skráð sig, matinn sem það er að elda, magn og verð,“ lýsir Hafdís. Hagsýni er Hafdísi afar hugleikin. Árið 2013 skoraði hún á sjálfa sig að eyða ekki krónu í föt nema selja önnur föt á móti. „Ég stóðst áskorunina og fjármagnaði fata- kaup á alla fjölskylduna með því að selja gömul föt og dót úr geymslunni á bland. is, fataskipti.is og ýmsum flóamörkuðum,“ segir Hafdís sem fann verulega fyrir þessu átaki í buddunni. „Mér tókst til dæmis að borga upp eitt bílalán á árinu.“ Hafdís lærði margt af átakinu. „Ég er orðin mjög hagsýn í fatakaupum. Ég keypti mikið í Kolaportinu, á bland.is og fata- skipti.is og fann ýmislegt fínt með því að gramsa. Þá keypti ég líka inneignarnótur og gjafabréf á góðum afslætti sem fólk var að selja á bland.is,“ segir Hafdís en þannig fjármagnaði hún kaup sín á brúðarkjólnum sínum. „Mér finnst ég kunna að meta betur gildi hlutanna enda meira puð að eignast þá,“ segir hún glaðlega. ■solveig@365.is BÝTTAR Á MAT, GARNI OG FÖTUM HEIMILI Hafdís Bjarnadóttir stofnaði nýverið Facebook-síðu þar sem fólk getur býttað á ýmsum frosnum réttum sem það hefur eldað. VIÐ FRYSTINN Hafdís eldar og frystir mat. Til að auka fjölbreytnina býttar hún á mat við annað fólk í gegnum facebook-síðuna matarbýtti. MYND/GVA HEILSU RÉTTIR Fullir af trefjum, próteinum og góðum kolvetnum. Kryddaðir með ferskum hvítlauk, engifer og chilli. Án salts og sykurs. Eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Orka, kkal 92 Prótein 10,8 gr Kolvetni 10,2 gr Fita 1,4 gr 1490 | 1090 065 Veitingahús Nings eru opin alla daga frá 11:30 til 22:00 Suðurlandsbraut | Hlíðarsmári | Stórhöfði | www.nings.is Toppur 99 kr. með öllum heilsuréttum Nings í Janúar 2014 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Nýjar vörur í hverri viku Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Verslunin Belladonna 3900 Stór lækkað verð á útsölu- vörum OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407 Stráka skór St. 27-35 Herra skór St. 40-46 Dömu kuldaskór St. 36–41 5900 Dömu æfingaskór St. 36–41 6900 7900

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.