Fréttablaðið - 17.01.2014, Page 34
1 stk. laxaflak, roð- og beinhreinsað
½ búnt ferskt dill
½-1 sítróna
1 gul paprika
1 rauð paprika
½ krukka fetaostur
ristaðar furuhnetur
Laxaflakið er roð- og beinhreinsað, skolað og þerrað vel.
Lagt í eldfast mót og safi úr ½-1 sítrónu kreistur yfir.
Dillið er skorið smátt og dreift yfir fiskinn.
Paprikan skorin niður og stráð kringum fiskinn ásamt fetaostinum.
Ristuðum furuhnetum dreift yfir til skrauts.
Grillað í ofni við um 200°C í 12-15 mín.
Borið fram með fersku salati og góðu hvítvíni.
HELGAR MATURINN LAX Á LÉTTU NÓTUNUM
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
Hafdís Perla
Hafsteinsdóttir
starfar sem héraðs-
dómslögmaður
og hefur áhuga á
heilbrigðu líferni.
Fjöllin eiga hug
hennar allan en hún
stundar bæði skíði
og fjallaskíði.
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Kalla kærastann minn
En kysstir? Kalla kærast-
ann minn
Hver kom þér síðast
á óvart og hvernig?
Hrund vinkona mín með fal-
legu heimatilbúnu jólagjöf-
ina sem hún og sonur henn-
ar bjuggu til handa mér og
dóttur minni.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera
allt of lengi? Að virða
ekki frítíma minn.
Ertu hörundsár? Já,
stundum.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Meira svona þegar
allir sjá til.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Þegar ég flæktist í
kjólnum mínum og datt fram
af sviðinu í Mary Poppins
á æfingu með áhorfendum.
Dóttir mín var í salnum og
er dugleg að segja frá því.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Nei. Bara
þegar einhver ætlar að láta
mig hlaupa, þá sérstak-
lega úti.
Tekurðu strætó? Ekki
mikið, nei.
Hvað eyðirðu mikl-
um tíma á Facebook á
dag? Ég EYÐI ekki mikl-
um tíma á Facebook, hins
vegar nota ég Facebook
heilmikið vegna vinnunnar.
Ætli eyðslan sé ekki svona
1 klst. á dag að meðaltali.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Jamm, í hvert
skipti sem ég mæti Dóra
Gylfa baksviðs fer ég hjá
mér og roðna og segi bara
einhverja vitleysu.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Ég get troðið
hnefanum upp í munninn á
mér.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Fara út að hlaupa.
Sigga Eyrún
(Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir)
ALDUR: Fer eftir því hvað þú
ert að biðja mig um að gera
STARF: Söngkona/Leikkona
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Save the Children á Íslandi