Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.01.2014, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 17.01.2014, Qupperneq 34
1 stk. laxaflak, roð- og beinhreinsað ½ búnt ferskt dill ½-1 sítróna 1 gul paprika 1 rauð paprika ½ krukka fetaostur ristaðar furuhnetur Laxaflakið er roð- og beinhreinsað, skolað og þerrað vel. Lagt í eldfast mót og safi úr ½-1 sítrónu kreistur yfir. Dillið er skorið smátt og dreift yfir fiskinn. Paprikan skorin niður og stráð kringum fiskinn ásamt fetaostinum. Ristuðum furuhnetum dreift yfir til skrauts. Grillað í ofni við um 200°C í 12-15 mín. Borið fram með fersku salati og góðu hvítvíni. HELGAR MATURINN LAX Á LÉTTU NÓTUNUM Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn. Hafdís Perla Hafsteinsdóttir starfar sem héraðs- dómslögmaður og hefur áhuga á heilbrigðu líferni. Fjöllin eiga hug hennar allan en hún stundar bæði skíði og fjallaskíði. Hvern faðmaðir þú síð- ast? Kalla kærastann minn En kysstir? Kalla kærast- ann minn Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Hrund vinkona mín með fal- legu heimatilbúnu jólagjöf- ina sem hún og sonur henn- ar bjuggu til handa mér og dóttur minni. Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Að virða ekki frítíma minn. Ertu hörundsár? Já, stundum. Dansarðu þegar enginn sér til? Meira svona þegar allir sjá til. Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvern- ig? Þegar ég flæktist í kjólnum mínum og datt fram af sviðinu í Mary Poppins á æfingu með áhorfendum. Dóttir mín var í salnum og er dugleg að segja frá því. Hringirðu stundum í vælubílinn? Nei. Bara þegar einhver ætlar að láta mig hlaupa, þá sérstak- lega úti. Tekurðu strætó? Ekki mikið, nei. Hvað eyðirðu mikl- um tíma á Facebook á dag? Ég EYÐI ekki mikl- um tíma á Facebook, hins vegar nota ég Facebook heilmikið vegna vinnunnar. Ætli eyðslan sé ekki svona 1 klst. á dag að meðaltali. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heils- arðu þeim? Jamm, í hvert skipti sem ég mæti Dóra Gylfa baksviðs fer ég hjá mér og roðna og segi bara einhverja vitleysu. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Ég get troðið hnefanum upp í munninn á mér. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Fara út að hlaupa. Sigga Eyrún (Sigríður Eyrún Friðriksdóttir) ALDUR: Fer eftir því hvað þú ert að biðja mig um að gera STARF: Söngkona/Leikkona ...SPJÖ RU N U M Ú R Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.