Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 4
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið til kl. 16 á laugardag 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 600 500 400 300 200 100 Ú tg jö ld í m ill jó nu m k ró na Fj öl di 2007 2009 2011 2013 ÚTGJÖLD VEGNA FJÁRHAGSAÐSTOÐAR Í REYKJANESBÆ 600 þúsund tonn af brota-járni hafa verið send frá Íslandi á þessari öld. Árin 2007 og 2008 fóru hátt í 70 þúsund tonn af brotajárni utan en aldrei helmingur þess magns eftir hrun. Heimild: Hagstofa Íslands. VELFERÐARMÁL Á árinu 2013 nutu alls 557 einstaklingar fjárhagsað- stoðar í 14.500 manna samfélagi Reykjanesbæjar. Útgjöld bæjarins vegna þessa voru 275 milljónir eða um 104 milljónir umfram áætlun. „Þannig var þessi liður einn stærsti óvissuþátturinn í rekstri bæjarfélagsins,“ segir Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og félagssviðs Reykja- nesbæjar. „Eðli þessara útgjalda er líkt og þjónusta á bráðadeild sjúkrahúsa, við höfum lítið val. Fólk í neyð á rétt á slíkri aðstoð lögum samkvæmt.“ Fjölgun þeirra sem fá aðstoð hefur verið í öllum aldurshóp- um en mest hjá fólki á aldrinum 18-29 ára, og frá árinu 2007 hefur þeim fjölgað um 250% á fjárhags- aðstoð. Fyrir utan fjölgunina er þróunin sú að fólk er lengur á bótunum. „Margir í þessum aldurshópi eiga ekki aðra framfærslumögu- leika, hafa aldrei unnið sér inn atvinnuleysisbótarétt og eiga ekki auðsótt á vinnumarkaðinn. Hér hefur verið lögð áhersla á að skapa þessu fólki úrræði, til dæmis í samstarfi við Vinnumálastofnun, en sá hængur er á að þessi úrræði eru tímabundin og betur má ef duga skal,“ segir Hjördís. Á síðasta ári misstu 146 manns úr Reykjanesbæ bótarétt hjá Vinnumálastofnun og er áætlað að 158 fullnýti hann á þessu ári. „Fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 miðaðist við að nú færum við að rétta úr kútnum og voru 200 millj- ónir áætlaðar í fjárhagsaðstoð. En nú á fyrstu þremur mánuðum árs- ins erum við búin með tæpar hundr- að milljónir þannig að við sjáum fram á að fara langt yfir áætlun.“ Hjördís segir ekki alla sem missa bótarétt fá fjárhagsaðstoð frá bænum, en það sé ekki minna áhyggjuefni hvað verði um þann hóp sem er hvorki talinn með atvinnulausum né bótaþegum bæjarins. Fjölskyldufólk þurfi að treysta á framfærslu frá einum í stað tveggja. „Það hefur aldrei verið jafn mikil eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði og nú, og margir eru í verulegum vanda. Fólk gistir hjá ættingjum og vinum svo vikum og mánuðum skiptir. Hjá félagsþjón- ustunni er unnið að lausnum, en þær geta verið tímafrekar þegar fólk á hvergi heima,“ segir Hjördís. erlabjorg@frettabladid.is Tæp 4 prósent íbúa með fjárhagsaðstoð Útgjöld Reykjanesbæjar vegna fjárhagsaðstoðar voru 275 milljónir árið 2013. Ein- staklingum á aldrinum 18-29 ára sem þiggja fjárhagsaðstoð hefur fjölgað um 250% á síðustu sex árum. Á annað hundrað manns munu missa bótaréttinn á þessu ári. HJÖRDÍS ÁRNADÓTTIR 250% fjölgun í hópi ungs fólks á aldrinum 18-29 ára. Árið 2007 voru 81 á þeim aldri með fjárhagsaðstoð en árið 2013 voru þeir 287. 146 íbúa Reykjanesbæjar misstu bótarétt hjá Vinnumálastofnun í fyrra. Á árinu 2014 munu 158 manns bætast í hópinn og munu þá atvinnulausir án bótaréttar vera 2% bæjarbúa. Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ÚRKOMA MEÐ KÖFLUM Fremur stíf suðvestanátt verður ríkjandi að mestu næstu daga með úrkomu um sunnan og vestanvert landið. Heldur hægari vindur og úrkomulítið norðaustanlands. Kólnar heldur í veðri um tíma seint annað kvöld. 5° 6 m/s 6° 7 m/s 7° 8 m/s 8° 9 m/s 8-15 m/s. 5-13 m/s. Gildistími korta er um hádegi 20° 29° 12° 16° 18° 11° 17° 8° 8° 23° 15° 21° 21° 18° 23° 10° 10° 14° 8° 6 m/s 7° 8 m/s 7° 4 m/s 5° 5 m/s 7° 6 m/s 6° 7 m/s 0° 10 m/s 6° 3° 5° -2° 8° 4° 9° 2° 8° 0° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MIÐVIKUDAGUR Á MORGUN SLYS Maður sem var í vélsleðaferð í grennd við Hrafntinnusker á Suðurlandi í gær lést þegar sleði hans féll fram af snjóhengju. Maðurinn var á ferð ásamt sjö félögum sínum. Lögreglunni á Hvolsvelli barst tilkynning um slysið um klukkan ellefu í gærmorgun. Einn lögreglu- maður fór þaðan á jeppa lögregl- unnar en auk þess voru eitthvað á bilinu þrjátíu til fjörutíu björg- unarsveitarmenn frá Landsbjörgu kallaðir út vegna slyssins. Þá var þyrla Landhelgisgæsl- unnar einnig send á slysstað. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli tók aðgerðin um sjö klukkutíma. Gott skyggni var á slysstað og mikil veðursæld. Í gær fengust ekki nánari upp- lýsingar um tildrög slyssins en þau eru í rannsókn hjá lögregl- unni á Selfossi. Hrafntinnusker er fyrsti við- komustaður eftir Landmanna- laugar á Laugaveginum, einni helstu gönguleið landsins. - lkg Lögreglan á Selfossi rannsakar banaslys við Hrafntinnusker á Suðurlandi: Á sleða fram af hengju og lést TILDRÖG ÓKUNN Þrjátíu til fjörutíu björgunarsveitarmenn voru kallaðir á slysstað í gær. Meðfylgjandi mynd er ekki af slysstað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL „Ég ætla að sigra Sjálfstæðisflokkinn innan frá,“ sagði Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður, aðspurður í þætt- inum Mín skoðun í gær hvort hann gæti hugsað sér að ganga í nýjan hægri flokk. Eins og kom fram í Frétta- blaðinu á laugardag sögðu 21,5 prósent aðspurðra í skoðanakönn- un gerðri af Capacent að líklegt væri eða öruggt að þeir myndu kjósa nýtt Evrópusinnað framboð hægri manna. Kvaðst Vilhjálmur hvorki hafa trú á að Sjálfstæðis- flokkurinn mynda klofna né að menn á borð við Þorstein Pálsson og Benedikt Jóhannesson færu úr flokknum. - gar Á móti nýjum hægri flokki: Vilhjálmur vill sigur innan frá VILHJÁLMUR BJARNASON Trúir ekki á klofning Sjálfstæðisflokks. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMGÖNGUR Frumvarp um breytingu á umferðarlögum liggur nú fyrir á Alþingi í kjöl- far slyss þar sem rafmagns- vespu var ekið á barn. Samkvæmt frumvarpinu verða hjól með eiginlegri inngjöf flokkuð sem létt bifhjól í flokki 1. Til þess að aka bifhjóli í þeim flokki mun fólk þurfa að hafa skellinöðrupróf og hafa náð ald- ursmörkum fyrir réttindi til að keyra slíkt hjól. Frumvarpið snertir ekki sveifknúin hjól svo notkun þeirra helst enn óbreytt. - kóh Lagafrumvarp um rafbifhjól: Vespur gerðar réttindaskyldar AFBROTAMÁL Tilkynnt var um innbrot í skóla í austurbænum. Rúða var brotin og þjófurinn gekk inn, en ekki er vitað hverju var stolið. Þrír bílar voru stöðvaðir í fyrrinótt. Ökumennirnir eru grunaðir um akstur undir áhrif- um fíkniefna. Ölvaður maður var handtekinn eftir að hafa ráðist á annan mann. Handtekni maðurinn var blóðug- ur í framan og talið að hann hafi þá nýlokið slagsmálum. - kóh Lögreglan snerist í ýmsu: Fíkniefnaakst- ur og slagsmál RAFHJÓL Sveifknúin hjól haldast í sama flokki og áður. Fréttablaðið/Ernir FJÁRMÁL Stjórn Öldrunarmið- stöðvarinnar Hafnar í Sólvangi í Hafnarfirði vill afsala eignarhaldi á íbúðum þannig að íbúðarrétthaf- ar verði þinglýstir eigendur. Gríðarlegir fjárhagslegir erfið- leikar hafa verið hjá Höfn. „Aðal- vandinn er misvægi á kaupum og sölu íbúðarréttar sem ekki nær að tryggja jákvæða stöðu og til að vinna upp tap síðastliðinna tveggja ára,“ segir stjórnin í yfir- lýsingu þar sem þróun mála er hörmuð. „Það er hins vegar mat þeirra sem komið hafa að málum að ábyrgðarlaust sé að halda rekstrinum áfram þegar hægt er með þessum inngripum að tryggja eignarrétt íbúðarrétthafa að Sólvangsvegi 1 og 3.“ - gar Öldrunarmiðstöðin Höfn: Íbúar í Sólvangi eignist íbúðir MEXÍKÓ, AP Að minnsta kosti 36 manns létu lífið þegar langferða- bifreið skall á flutningabifreið í sunnanverðu Mexíkó. Flutningabifreiðin hafði bilað og stóð kyrr við vegarkantinn þegar rútan skall skyndilega á henni. Eldur kviknaði í rútunni og varð hún alelda á svipstundu. Fjórir komust lífs af. - gb Rúta rakst á flutningabíl: Tugir létu lífið í bílslysi í Mexíkó

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.