Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 15
Fæturnir eru okkur mikilvægir og því þurfum við að hugsa vel um þá og dekra reglulega við þá til að koma í veg fyrir óþægindi sem geta fylgt álaginu sem þeir verða fyrir. Til að fyrir- byggja og draga úr myndun á harðri húð á fótunum má nota fótaþjalir til að fjarlægja harða húð og gera fæturna slétta og mjúka. Þykk og hörð húð myndast við stöð- ugt álag, svo sem nudd eða núning, sem húðin verður fyrir í langan tíma. Þetta getur orsakast af daglegum athöfnum, svo sem því að vera í skóm sem nudd- ast við húðina eða einfaldlega álaginu af líkamsþyngdinni á fæturna. Anna Axelsdóttir hefur notað fóta- þjöl frá Scholl í mörg ár. „Ég er mikið í opnum skóm á sumrin og þá finnst mér mikilvægt að fæturnir líti vel út. Sum- arið er tíminn til að hugsa um fæturna,“ segir Anna. „Ég nota alltaf þessa svörtu fótaþjöl, fæturnir verða mjúkir og sléttir og tilbúnir fyrir sumarið. Svo er hún létt og þægileg og endist mjög lengi enda er Scholl merki sem ég treysti og get mælt með.“ FLOTTIR FÆTUR Í ALLT SUMAR HALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Anna Axelsdóttir hefur áralanga reynslu af notkun Scholl-fótaþjala. „Scholl er merki sem ég treysti og get mælt með.“ SCHOLL-FÓTAÞJÖL TIL AÐ SLÉTTA OG MÝKJA FÆTUR Tvískipt fótaþjöl sem fjarlægir harða og þurra húð og fæturnir verða mjúkir og sléttir. Þjölin er tvískipt, öðrum megin er grófara yfirborð til að fjarlægja grófa, þurra og harða húð. Hinum megin er yfirborðið fínna sem sléttir húðina og gerir hana mjúka. Gripið á þjölinni er gott og það má þvo hana. MÆLIR MEÐ SCHOLL Anna notar opna skó mikið á sumrin og finnst því mikilvægt að fæturnir líti vel út. Hún notar fótaþjöl til að gera fæturna mjúka og slétta. MYND/GVA MÍLANÓ 2014 Spænski hönnuðurinn Patricia Urquiola hefur hannað einingasófa úr svokölluðu jersey-teygjuefni fyrir ítalska merkið Mo- roso. Afraksturinn var sýndur á húsgagna- sýningunni í Mílanó.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.