Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 14.04.2014, Blaðsíða 46
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26 MÁNUDAGSLAGIÐ „Meginhugmyndin er að hér fá hinir ýmsu sviðshöf- undar tækifæri til þess að fá að vinna aðeins opnari vinnu,“ segir Ilmur Stefánsdóttir, leikmyndahönn- uður í Borgarleikhúsinu, en bryddað verður upp á þeirri nýjung á næsta leikári að sviðshöfundar geti sótt um að vera gestalistamenn í leikhús- inu. „Sviðshöfundur getur verið dansari, mynd- listamaður, tónlistarmaður,“ segir Ilmur, „Það er ekkert afmarkað.“ Sviðshöfundarn- ir koma til með að fá rými innan hússins til þess að þróa sínar hugmyndir og afraksturinn verður síðan kynntur sem verk í vinnslu. „Hér eru vanalega gerðar fullkláraðar sýningar og þær sýndar en þetta verkefni er mótað til þess að styðja við ákveðna grósku, að kannski megi vinna opnari og meira leitandi vinnu og opna síðan dyrnar fyrir gestum,“ segir Ilmur sem mun virka sem tengiliður milli hússins og sviðshöfundanna en hver þátttakandi fær einn mánuð í húsinu til þess að vinna verkið. „Síðan getur fólk sem kaupir sér árskort í leikhúsið valið allar þrjár vinnustofusýningarnar sem eina venjulega sýningu,“ segir Ilmur en þrír sviðshöfundar fá tækifæri til þess að spreyta sig í leikhúsinu. „Sviðsverkin eru unnin í samráði við okkur,“ segir Ilmur. „Fólk hefur frjálsar hendur og það fer algjörlega eftir hverjum einstakling hvernig sýningin verður en við fylgjumst með og pössum að þetta verði ekki of langt og svona.“ Ilmur segir verkefnið vera spennandi tækifæri fyrir listamenn og hvetur alla til þess að sækja um en umsóknarferlið verður auglýst síðar. - bþ Spennandi tækifæri í leikhúsinu Ilmur Stefánsdóttir leikmyndahönnuður er tengiliður sviðshöfunda við Borgar- leikhúsið en þar verður gestalistamönnum boðið að setja á svið eigin verk LEIKMYNDIR Ilmur Stefánsdóttir leikmynda- hönnuður segir að meginhugmyndin sé að sviðs- höfundar fái tækifæri til að vinna „opnari vinnu“. „Þetta kom okkur rosalega á óvart. Við feng- um að vita frá liðsstjóranum okkar að það væri pakki sem biði okkar frá Dover eftir uppskeru- hátíð sem haldin var á dögunum. Við héldum fyrst að við hefðum bara gleymt einhverju í bátnum eða á hótelinu en svo bara fengum við þessi rosa fínu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður Geirsdóttir sem er ein af sex konum í sjósund- hópnum Sækúnum. Ásamt henni í Sækúnum eru þær Anna Guðrún Jónsdóttir, Ragnheiður Val- garðsdóttir, Kristbjörg Valgarðsdóttir, Krist- ín Helgadóttir og Birna Hrönn Sigurjónsdótt- ir. Í fyrra fóru Sækýrnar utan til að synda Erm- arsundið og kláruðu sundið með lengsta tímann í sjónum sem voru rúmlega 19 klukkustundir. Það kom þeim því algjörlega í opna skjöldu að fá verðlaun fyrir lengsta tímann. „Þeir hjá CS&PS telja það jafnmerkilegt að vera lengi í sjónum eins og að vera fljótur, því að vera lengi krefst gríðarlegs þreks, viljastyrks og hugrekkis. Þeim fannst þetta svo mikill dugnaður og elja hjá okkur svo að við fengum þessi fallegu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður og það vottar fyrir stolti í raddblænum. „Það er alltaf rosaleg áskorun fyrir mann að fara í sjóinn en þetta hefur svo góð áhrif á lík- ama og sál. Það er ofboðslega góður lækninga- máttur í þessu sundi og við lítum á okkur sem góðar fyrirmyndir fyrir aðra því maður getur allt ef maður hefur trú á því.“ marinmanda@frettabla- Sækýrnar fá verðlaun fyrir lengsta tímann Sækýrnar syntu yfi r Ermarsundið í fyrra á 19 klukkustundum, 38 mínútum og 8 sekúndum. SÆKÝRNAR Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helga dóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og Sigrún Þuríður Geirsdóttir. Að undanförnu hefur mér þótt gott að arka úti í takt við lög eftir sænsku tónlistarkonuna Robyn svo ég segi Call Your Girlfriend. Einar Lövdahl, tónlistarmaður og ritstjóri Stúdentablaðsins Eftir að hafa lesið grein í Frétta- blaðinu um stúlkur sem unnu með tígrisdýrum í Taílandi ákvað Ása Björg Ásgeirsdóttir að láta drauminn rætast og sækja um sjálfboðavinnu í gegnum Tiger- temple.org hjá Forest Monastery skammt frá bænum Kanchana- buri í Taílandi. Í mars fékk hún frí úr vinnunni hjá Reiknistofu bankanna, pantaði sér flugmiða og hélt á vit ævintýra á meðan kærastinn beið heima. „Þetta var reynsla sem ég hefði alls ekki viljað missa af og get vel hugsað mér að fara þangað aftur. Þetta var bara ótrúlegt að geta verið svona nálægt þessum dýrum og fá að sinna þeim og knúsa þau,“ segir Ása sem hefur mikla ástríðu fyrir köttum. Saga tígrisdýranna í munkahofinu For- est Monastery hófst fyrir fimm- tán árum þegar bæjarbúar stálu tveimur tígrishvolpum frá upp- stoppara og földu hjá munkunum til að bjarga lífi þeirra. Í dag eru í kringum 140 tígrisdýr í hofinu en kven- og karldýrin fá að vera saman öllum stundum. Dýrun- um er sinnt vel en þau fá soðinn kjúkling daglega ásamt vítam- ínum og fæðubótarefnum. „Við fengum að huga að litlu hvolpun- um sem mæðurnar hafa afneit- að því það virðist vanta móður- eðli í tígrisdýramæðurnar þegar þær eru í haldi,“ segir Ása Björg. Mánaðardvölin leið hratt þar sem hún hugleiddi með munkunum á kvöldin og sinnti tígrisdýrahvolp- um á daginn. „Þetta var allt voða- lega notalegt þótt ég hafi fengið töluverða marbletti eftir hvolp- ana. Þeir eru bara eins og litlir krakkar og þurfa að setja allt upp í munninn – en hafa aðeins sterk- ara bit,“ segir hún hlægjandi. marinmanda@frettabladid.is Tígrisdýraævintýri í munkahofi í Taílandi Ása Björg ræktar ketti en ákvað að kynnast tígrisdýrum í Taílandi í sjálfb oða- vinnu. Hún fékk að huga að litlum hvolpum sem mæðurnar höfðu afneitað. MÖGNUÐ UPPLIFUN Ása Björg Ásgeirsdóttir gæti vel hugsað sér að fara aftur í munkahofið. Mynd/Úr einkasafni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.