Fréttablaðið - 14.04.2014, Side 19
LERKIÁS- GARÐABÆ
Fallegt 179,7 fm. endaraðhús á tveimur hæðum að meðtöldum 21,7 fm. bílskúr.
2-3 svefnherbergi og gott stofurými. Opið eldhús með ljósri viðarinnréttingu. Innfelld
lýsing er á allri efri hæðinni. Gólfsíðir gluggar eru í stigauppgangi sem gefa góða
birtu. Útsýnis nýtur frá svölum á efri hæð. Stór timburverönd með skjólveggjum.
Eikarparket og náttúruflísar á gólfum.
SÓLVALLAGATA. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS.
Fallegt einbýlishús sem er tvær hæðir auk kjallara. Húsið er 235,5 fm. að stærð að
meðtöldum 25,2 fm. bílskúr og hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum
m.a. eldhús, baðherbergi, lagnir o.fl. Aukin lofthæð er í stofum. Skipt hefur verið um
járn á öllu húsinu og nýr bílskúr byggður frá grunni 2006. Nýlega byggður sólpallur
út frá stofunni með stiga niður í garðinn. Húsið var allt málað 2013.
LÆKJASMÁRI- KÓPAVOGI. 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ.
Mjög falleg og björt 103,6 fm. íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu á
frábærum stað auk 4,7 fm. sér geymslu í kj. Rúmgóð stofa. Þrjú svefnherbergi.
Þvottaherbergi innan íbúðar. Yfirbyggðar svalir til vesturs, flísalagðar. Góð aðkoma
er að húsinu og sameign er öll til fyrirmyndar. Góð staðsetning. Stutt í þjónustu.
BAKKASTAÐIR. FRÁBÆR STAÐSETNING.
253,8 fm. einbýlishús með óinnréttuðu rými í risi. Húsið er 211,8 fm. og bílskúrinn
er 42 fm. Húsið er fullbúið að innan, en að utan er eftir að mála og klára lóð og inn-
keyrslu. Tvennar stofur auk borðstofu. Fjögur herbergi. Stór tæplega 100 fermetra
suðvestur verönd með heitum pott. Indversk skífa er á öllum gólfum í húsinu ásamt
gólfhita. Frábært útsýni og stutt í skóla og leikskóla.
VÍÐIHLÍÐ – REYKJAVÍK
201,5 fm. endaraðhús með glæsilegri lóð og um 70 fm. nýlegum palli út frá stofu.
Nýleg sérsmíðuð innrétting í eldhúsi. Arinn í stofu. Garðstofa. Fjögur herbergi. Eignin
hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er í mjög góðu ástandi. Eignin er laus
fljótlega. MÖGULEIKI AÐ TAKA YFIR UM 40 MILLJ. KR. LÍFEYRISSJÓÐSLÁN.
59,8 millj.
FELLAHVARF- 4RA – 5 HERBERGJA EFRI HÆÐ.
Stórglæsileg 135,8 fm 4ra - 5 herb. efri hæð með sérinngangi í fallegu lágreistu
fjölbýli og með óhindruðu útsýni yfir Elliðavatn og Bláfjöll. Mjög fallegar og vandaðar
samstæðar eikarinnréttingar. Parket og flísar á gólfum. Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Stofa og borðstofa með útgangi á suðursvalir. Opið eldhús með mikilli og vandaðri
innréttingu. Frábær staðsetning til að stunda útivist. Stutt í skóla.
71,0 millj.
43,5 millj.
33,9 millj.
77,9 millj.
KIRKJULUNDUR 12-14 - GARÐABÆ
Glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja lúxusíbúðir með yfirbyggðum svölum. Lyfta og sér stæði í bílageymslu.
Íbúðirnar afhendast tilbúnar án gólfefna í maí nk. Baðherbergi og önnur votrými skilast flísalögð.
• Stærðir íbúða frá 91,4 fm. upp í 135,9 fm.
• Verð íbúða frá kr. 31.450.000.- upp í kr.46.600.000.-
Staðsetning eignarinnar er afar góð í miðbæ Garðabæjar og stutt er í alla þjónustu. Byggingaraðili: Kristjánssynir ehf.
Nýhöfn 2-6, Sjálandi Garðabæ. Nýjar 4ra herbergja íbúðir.
Glæsilegar íbúðir í 3ja hæða nýju fjölbýli í Sjálandinu við smábátahöfnina. Sjávarútsýni er frá stofum og eldhúsum í öllum íbúðum.
Í húsinu eru 18 fjögurra herbergja íbúðir frá 123,2 fm. upp í 152,6 fm. ásamt lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Íbúðirnar eru
ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og
þvottahúsum. Staðsetning er frábær við sjávarsíðuna í Garðabæ og stutt í frábær útivistarsvæði, sem og alla þjónustu.
Byggingaraðili: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars
NÝHÖFN KIRKJULUNDUR
59,5 millj.
SÉRBÝLI SÉRBÝLI 4RA- 6 HERBERGJA
Afar glæsilegt 251,2 fm. einbýlishús á þremur
pöllum á frábærum útsýnisstað við opið svæði.
Tvöfalt og þrefalt gler er í gluggum. Mjög mikil
lofthæð er í stærstum hluta eignarinnar og loft þar
klædd með sedrusviði. Stórar og bjartar stofur
með mikilli lofthæð og mjög miklum gluggum til
norðvesturs. Sjónvarpsstofa með útgengi á lóð.
Tvöfaldur bílskúr. Skjólgóð afgirt viðarverönd.
Gríðarlega fallegt “panorama” útsýni úr stofum allt
frá Esju að Reykjanesi og út á sjóinn.
Arkitekt hússins er Orri Árnason.
Verð 84,9 millj.
Brúnás- Garðabæ
Heil húseign með aukaíbúð í bakhúsi á 618,0 fm.
eignarlóð í Litla Skerjafirðinum. Framhúsið er á
þremur hæðum, kjallari, hæð og ris, samtals 109,2
fm. að stærð og bakhúsið, sem er endurbyggt
árið 2006 er 24,5 fermetrar að stærð.
Húsið stendur á mjög stórri eignarlóð.
Verð 39,9 millj.
Reykjavíkurvegur- Skerjafirði.
Vegna mikillar sölu óskum við eftir
2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðum á söluskrá.
Skoðum og metum samdægurs.
Sanngjörn söluþóknun.