Fréttablaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 9. maí 2014 | SKOÐUN | 19
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Það að tekjutengja
gjaldskrár leikskóla
eða frístundaheimila er
svipað og að setja auka-
skattþrep á barnafólk.
Tekjutenging hljómar oftast
vel. Af hverju ættu þeir sem
eru með milljón á mánuði að
fá ókeypis leikskólavist fyrir
börnin sín? Af hverju ættu þeir
sem hafa milljón á mánuði að fá
niður greidda heilbrigðisþjón-
ustu? Af hverju ættu þeir sem
eiga skuldlausa fasteign og heil-
mikinn sparnað að fá atvinnu-
leysisbætur? Af hverju ætti
ríkið að borga fyrir dvalarheim-
ili eldra fólks sem gæti greitt
fyrir vistina sjálft?
Þetta eru allt ágætisspurn-
ingar. Ef menn spyrja þessara
spurninga hverrar í sínu lagi
og reyna síðan að svara þeim
hverri í sínu lagi þá verður
þankagangurinn eitthvað á
þessa leið:
1) Ég vil að blásnautt fólk fái
þjónustuna ókeypis.
2) Ég vil að ríkt fólk þurfi
að borga fullt verð fyrir þjón-
ustuna.
Sama gildir þegar um er að
ræða einhvers konar bætur, til
dæmis húsnæðisbætur, barna-
bætur eða framfærslubætur.
Fólk hugsar:
1) Ég vil að þeir sem hafa
engar tekjur fái nóg til að þeir
geti lifað af.
2) Ég vil að þeir sem eiga nóg
fái ekkert.
Bætur og niðurgreidd gjöld
eru raunar sami hluturinn. Það
má hugsa sér að í niðurgreiddri
leikskóladvöl felist um það
bil 200 þúsund króna styrkur
handa þeim sem eiga börn. Þeir
sem vilja tekjutengja leikskóla-
gjöldin vilja að þessi styrkur
skerðist með tekjum.
Þannig séð er ekkert að því að
láta hluti skerðast með tekjum.
En það verður að passa upp á
stóru myndina. Tökum dæmi:
Nanna námsmaður missir 40%
af tekjum vegna skatta. Námslán
hennar skerðast um 35% vegna
sömu tekna. Húsaleigubæturnar
skerðast um 8% og barnabæt-
urnar um 5%. Skerðingar á ráð-
stöfunartekjum eru samtals um
90%. Ef einhver skellir nú 20%
skerðingu vegna leikskólagjalda
ofan á þetta verða ráðstöfunar-
tekjur Nönnu lægri eftir því sem
hún vinnur meira. Hún vinnur
þá raunar fyrir lægri LÍN-skuld
í framtíðinni en sú fyrirhyggja
er henni dýr.
Rúmræði 100
Segjum að við ætlum að gefa
öllum sem eru tekjulausir sér-
stakan 200 þúsund króna styrk
á mánuði. Segjum að við séum
sammála um að þeir sem hafa
milljón á mánuði þurfi ekkert á
þessum peningum að halda. Ef
við teiknum þessa tvo punkta
í hnitakerfi og drögum strik
þeirra á milli fáum við línu sem
hefur -20% halla. Þar með hefur
okkur tekist að búa til 20%
jaðar skatt. Sá skattur bætist
ofan á alla aðra skatta í kerfinu.
Þrátt fyrir hugmyndir margra
um annað eru það í raun lág- og
millitekjuhóparnir sem halda
eftir minnstu af sínum viðbótar-
tekjum. Kannski er það að ein-
hverju leyti óumflúið vegna
þess hvernig félagslega kerfið
er uppbyggt. En það ætti auð-
vitað að reyna að láta lág- og
millitekjufólk halda eftir stærri
hluta tekna sinna. Skattalækk-
anir á neðstu skattþrep væru
leið til þess. Tekjutengdar gjald-
skrár hefðu þveröfug áhrif.
Vondar hugmyndir Dögunar
Framboðið Dögun vill tekju-
tengja gjaldskrár í borginni.
Eins og áður sagði: Það að tekju-
tengja gjaldskrár leikskóla eða
frístundaheimila er svipað og að
setja aukaskattþrep á barnafólk.
Sá aukaskattur myndi koma þeim
verst sem eru að reyna að vinna
sig upp úr fátækt, eru til dæmis
að snúa aftur á vinnumarkaðinn
eftir langt atvinnuleysi.
Mögrum finnst eftirsóknar-
vert að stuðla að tekjujöfnun.
En við verðum að passa okkur.
Ef við beitum tekjuskerðingum
á of mörgum stöðum missum
við yfirsýn og getum auðveld-
lega skattlagt fólk yfir 100%
á ákveðnum tekjubilum. Þess
vegna ætti að halda sér við að
beita tekjujöfnunarúrræðum
í skatt- og bótakerfinu en ekki
að innleiða slík úrræði þegar
kemur að verðskrám fyrir opin-
bera þjónustu.
Lægri lágtekjuskatta
Því meiri pening sem við viljum
gefa fólki með engar tekjur
þeim mun hraðar verðum við að
taka hann af því um leið og það
byrjar að vinna. Ég viðurkenni
að ég hallast frekar að því að
hafa lágar grunnbætur og um
leið lága skatta á lægri tekjur.
Þeir sem liggja lengst til vinstri
vilja gjarnan hærri grunn-
bætur. En þeir enda alltaf með
að fjármagna þær með hærri
jaðarsköttum á þá sem eru að
reyna að klifra upp úr lágtekju-
holunni.
Prósentur aldrei fleiri en 100
Save the Children á Íslandi
Caput | Þóra Einarsdóttir | Geoffrey Douglas Madge
Pringipessa Orchestra | Karl Ágúst Úlfsson kynnir
Þér er boðið á
tónleika!
Í tilefni af Evrópudeginum 2014 stendur Evrópustofa fyrir
GRÍSKRI TÓNAGLEÐI
í Eldborgarsal Hörpu, föstudaginn 9. maí kl. 20:00
Caput flytur verk eftir Nikos
Skalkottas og grísk þjóðlög í
útsetningu Maurice Ravel. Hinn
heimsþekkti ástralski píanóleikari,
Geoffrey Douglas Madge kemur
fram með Caput ásamt hinni
ástsælu sópransöngkonu
Þóru Einarsdóttur.
Eftir hlé stígur gríska hljómsveitin
Pringipessa Orchestra á svið og
leikur lög eftir þjóðlagaskáldið
Vasílis Tsitsánis sem almennt er
talinn eiga mestan þátt í þróun
grískrar tónlistarhefðar sem
kallast rebétiko.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis
og hægt er að tryggja sér miða hjá miðasölu Hörpu.
Rebétiko í Reykjavík
Skalkottas & Ravel
Nánari upplýsingar á evropustofa.is