Fréttablaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 51
FÖSTUDAGUR 9. maí 2014 | MENNING | 35FÖ
STU
D
AG
U
R
EKKI MISSA AF
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
12.00 Á næstu tónleikum
tónleikaraðarinnar, Á ljúfum
nótum mun Ingrid Örk Kjart-
ansdóttir flytja jazzballöður
úr ýmsum áttum í hádeginu
í Háteigskirkju. Ásamt henni
leika Leifur Gunnarsson á
kontrabassa og Vignir Þór
Stefánsson á píanó.
22.00 Blúsmenn Andreu
skemmta á Café Rosenberg.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
22.00 Sjötta label-kvöld útgáf-
unnar Lagaffe Tales á Kaffi-
barnum. Félagið hefur verið að
vinna í útgáfum fyrir sumarið
og er með mörg skemmtileg
járn í eldinum. Á meðal
flytjenda eru Cream & Sugah,
Viktor Birgiss, Housekell, Darri
og Lagaffe Tales. Í lok kvölds
taka svo Lagaffe-strákarnir
Viktor og Jónbjörn við keflinu
og spila til lokunar. Dansvæn
hústónlist og fjör til lokunar.
Sýningar
16.00 Myndasögusýning á
verkum listamannsins Jan
Pozok verður opnuð í mynda-
sögudeild Borgarbókasafnsins.
Jan Pozok, eða Jean Posocco
eins og hann heitir réttu nafni,
er fæddur í Frakklandi 1961.
Hann hefur myndskreytt
barnabækur síðan 1989. Þekkt-
asta bókaserían sem hann
hefur teiknað er Krakkarnir í
Kátugötu sem Samgöngustofa
gaf út fyrst 2004, en henni er
dreift í alla leikskóla á landinu.
Á sýningunni, sem staðsett er
í aðalsafni Borgarbókasafns,
Tryggvagötu 15, í myndasögu-
deild á annarri hæð, má finna
ýmis dæmi um myndasögur
listamannsins, aðallega þó úr
bókunum þremur.
17.00 Ragnar Þórisson opnar
sýningu í Tveimur hröfnum
listhúsi, Baldursgötu 12. Allir
velkomnir.
20.00 15 stelpur í lokaáfanga
í fatahönnun í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ verða með
tískusýningu á Kjarvalsstöðum.
DJ Hanna Rún sér um tónlist.
Uppákomur
15.00 Afmælisráðstefna til
heiðurs Jóhannesi Nordal.
Ráðstefnan er haldin af Hag-
fræðideild Háskóla Íslands
og Seðlabanka Íslands í til-
efni af níræðisafmæli hans.
Ráð stefnan verður haldin í
Hátíðar sal Háskóla Íslands.
Meðal fundarmanna verða Már
Guðmundsson seðlabanka-
stjóri, Jón Sigurðsson, fyrrver-
andi ráðherra og seðlabanka-
stjóri, og Unnur Gunnarsdóttir,
forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17.00 Kokteilpartý í ELLU
búðinni, Ingólfsstræti 5. Í til-
efni sumars verður boðið upp
á 20% afslátt af öllu vörum í
partýinu. Hlynur, einkabarþjónn
ELLU býr til sumarkokteila úr
Grand Marnier og DJ Yamaho
þeytir skífum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Það leynist rusl út um allt
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/tiltektarhelgi
Í garðinum heima, á leikvöllum,
á opnum svæðum og gangstéttum.
Ekki er átt við garðaúrgang heldur
fyrst og fremst rusl. Best er að
skila endurvinnanlegum úrgangi
á endurvinnslustöðvar.
Allir geta verið með
Foreldrar og börn, afar, ömmur,
frænkur og frændur. Nágrannar,
vinir, vinnufélagar og skólasystkini.
Stórir hópar og einstaklingar.
Við hvetjum alla til að hjálpast að
við að taka til í borginni fyrir sumarið.
Þú færð poka hjá Olís
Hægt er að nálgast ókeypis
ruslapoka til að tína í á næstu
Olísstöð. Starfsfólk Reykjavíkur-
borgar keyrir um borgina og hirðir
pokana mánudaginn 12. maí.
Þegar vorar kemur ruslið í ljós, öllum til ama. Þess
vegna hvetjum við borgarbúa til að fara út og hreinsa
burt rusl í sínu nærumhverfi um næstu helgi.
Í REYKJAVÍK
Blúsmenn Andreu
Stórsöngkonan Andrea Gylfadóttir
heldur tónleika ásamt blúsmönnum
sínum í kvöld á Cafe Rósenberg.
Hljómsveitin er þekkt fyrir sína
frábæru tónleika.
Í ljósi reynslunnar nefnist afmælisráðstefna til heiðurs Jóhann-
esi Nordal í tilefni af níræðisafmæli hans. Ráðstefnan verður
haldin í Hátíðarsal Háskóla Íslands í dag frá klukkan þrjú til
fimm og er haldin af hagfræðideild Háskóla Íslands og Seðla-
banka Íslands.
Fimm erindi verða flutt á ráðstefnunni en meðal þeirra er
erindið Jóhannes Nordal og peningamál á seinni hluta tuttugustu
aldar sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytur. Einnig
mun Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri,
flytja erindið Jóhannes Nordal – fjölhæfur forystumaður. Þá mun
Ásgeir Jónsson, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, flytja
erindið Aftur til fortíðar? Er stýring peningamagns með bindi-
skyldu framtíðin? Fundarstjóri verður Sveinn Agnarsson.
Í ljósi reynslunnar
Jóhannes Nordal er íslenskur hagfræðingur
og fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands.
ÁHRIFA MIKILL
Jóhannes Nor-
dal hefur haft
gríðarleg áhrif
á peningamál
á Íslandi en
hér er hann til
hægri ásamt
Matthíasi
Johannessen
til vinstri í
Vatndalsréttum
árið 1993.