Fréttablaðið - 19.05.2014, Side 18
KYNNING − AUGLÝSINGHellulagnir MÁNUDAGUR 19. MAÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, 512-5429
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Við erum jafnt í útboðsverk-efnum fyrir stærri aðila og í minni verkefnum fyrir ein-
staklinga,“ segir skrúðgarðyrkju-
meistarinn og eigandinn Guðmund-
ur Vignir Þórðarson. Hann útskrif-
aðist úr Garðyrkjuskólanum árið
2010 og úr Meistaraskólanum árið
2011. Guðmundur bendir á að Félag
skrúðgarðyrkjumeistara er meðlim-
ur í Meistaradeild Samtaka iðnaðar-
ins. Meistaradeildin heldur utan um
ábyrgðasjóð sem tryggir neytendum
vel unnin verk frá félagsmönnum
sínum. „Það borgar sig því að fá fag-
menn í verkið,“ segir Guðmundur.
Hann segir misjafnt hvað menn
fara út í að loknu námi. „Sumir eru
aðallega í gróður- og garðvinnu en
við höfum svolítið sérhæft okkur
í gerð náttúrulauga meðfram öllu
öðru. Þær er ýmist hægt að hlaða
þar sem heitar uppsprettur er að
finna eða hlaða og tengja eins og
venjulega potta. Hvort tveggja hefur
færst mjög í vöxt undanfarin ár,“
segir Guðmundur.
Hann hefur síðastliðin þrjú ár
hlaðið fimm náttúrulaugar og er
jafnframt með nokkrar á teikni-
borðinu. „Laugarnar eru ýmist
steyptar í grunninn og síðan hlaðn-
ar eða hlaðnar beint ofan í leir-
jarðveg.“ Guðmundur segir grjót-
ið oftast tínt í nágrenni laugarinn-
ar. „Ég og samstarfsfélagi minn,
Birgir Axelsson, hlóðum til dæmis
stóra laug í Laugarfelli, við Laugar-
fells Highland Hostel rétt við Kára-
hnjúka. Við náðum í allt grjótið í
hana úti á heiði. Þá gerðum við aðra
á Barðaströnd. Grjótið í hana tínd-
um við úr gamalli skriðu í hlíðinni
fyrir ofan laugina.“
Guðmundur segir steinana hand-
valda. Þeir eru svo höggnir til með
hamri og meitli. Í Laugarfellslaug-
ina og hleðslurnar í kring fóru 250-
300 tonn og tók verkefnið um hálft
ár. „Í Laugarfellslaugina er notað
affallsvatn af hótelinu og bætt í úr
nærliggjandi borholu en í lauginni á
Barðaströnd er eingöngu notað upp-
sprettuvatn sem flæðir yfir og end-
urnýjast jafnóðum.“
Guðmundur segir vel hægt að
hlaða laugar við sumarbústaði eða
í heimagörðum og tengja eins og
venjulega potta og er hann með þó
nokkrar slíkar á teikniborðinu.
Sem stendur vinnur Guðmundur
að gerð miðbæjartorgs á Akranesi
sem ráðgert er að verði tilbúið 10.
júní en að því verkefni koma fleiri
félagar hans úr Garðyrkjuskólan-
um. „Í stærri verkefnum tökum
við okkur oft saman til að hlutirn-
ir gangi hraðar fyrir sig. Við komum
líka hver öðrum til aðstoðar ef þarf
í öðrum verkefnum þannig að allt
gangi smurt. Þá er ég með smiði á
mínum snærum sem ég kalla til ef
þörf krefur.“
Verkefnin eru sem fyrr segir fjöl-
breytt. „Allt frá jarðvinnu, í að móta
lóðir og út í fínasta frágang eins og
að setja niður blóm og gróður. Þá
getum við komið og slegið og haldið
svæðinu við sé þess óskað.“
Allar nánari upplýsingar er að
finna á allraverk.is.
Fagmenn í verkið
Allraverk ehf. tekur að sér hellulagnir og grjóthleðslur. Sömuleiðis gerð
náttúrulauga, gróðursetningu, útplöntun, trjáfellingar, trjáklippingar, gerð
skjólveggja og palla, þökulagnir og garðslátt. Á síðustu árum hafa starfsmenn
fyrirtækisins gert þó nokkrar náttúrulaugar og fer þeim fjölgandi um allt landi.
Hér má sjá Guðmund og Birgi við Laugarfellslaug sem þeir hlóðu í sameiningu og sýnis-
horn af öðrum verkum Allraverks ehf.
1. Rauður dregill í garðinum
Hellur og steinar í afgerandi lit hressa
heldur betur upp á lóðina. Það er líka
skemmtilegt að geta gengið heim að húsi
á rauðum dregli.
2. Suðræn verönd
Með því að láta steina standa örlítið upp
úr yfirborðinu má skapa óslétt og nátt-
úrulegt yfirborð á stéttina. Bakgarður-
inn verður fyrir vikið eins og sælureitur
í suðrænni borg.
3. Eldhúsgólfið út í garð
Til að lífga upp á annars hefðbundna
hellulögn mætti nota keramikflísar, jafn-
vel í líflegum lit og leggja í steypuna. Til-
valið er að nota afgang frá því eldhúsgólf-
ið var flísalagt, líka þær sem brotnuðu.
4. Sveitastígur
Náttúrulegar steinhellur sem fá að sökkva
svolítið í gróðurinn minna á gamla
gönguleið í sveit.
5. Stiklað á steinum
Ef leggja á göngustíg yfir blettinn mætti
brjóta upp hið hefðbundna form með því
að nota skífulaga steina og stikla á stein-
um yfir flötina.
Eldhúsgólfið út í garð
Falleg hellulögn setur mikinn svip á garðinn og ekki alltaf nauðsynlegt að fara hefðbundnar leiðir. Rauður dregill heim að dyrum eða suðræn
stemning í bakgarðinum getur bjargað sumrinu ef það rignir. Afganginn af eldhúsflísunum má líka nota til að lífga upp á göngustígana.
2
1
3 4 5
Stjörnugarðar eru aðilar að
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins
Hellulagnir • Hleðslur • Jarðvinna
Stjörnugarðar • Sími 698 0098
stjornugardar@stjornugardar.is • www.stjörnugardar.is