Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2014, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 29.05.2014, Qupperneq 2
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 FLEIRI BÖRN Í LEIKSKÓLUM ÁN STÆKKUNAR HÚSNÆÐIS Garðaborg Laufásborg Austurborg 1990 2012 Íslensk reglugerð árið 1977 Hámark 20 börn MENNTAMÁL Leikskólabörn í dag fá minna pláss í fermetrum talið en fyrir rúmum tveimur ára- tugum, samkvæmt rannsókn Kristínar Dýrfjörð, dósents við Háskólann á Akureyri. „Húsnæði margra leikskóla hefur ekkert breyst eða stækkað en samt hefur plássunum fjölg- að gríðarlega. Það er einfald- lega búið að troða fleiri börn- um í húsnæðið og þar af leiðandi fær hvert barn minna rými,“ segir Kristín. Eftir að ný lög um leikskóla voru sett árið 2008 er hvorki hámark barnafjölda á starfsmann né lágmarksfjöldi fermetra í gildi á Íslandi. „Okkur hefur farið aftur og það á kostnað barnanna. Til að bregðast við hávaðamengun þá er starf- ið skipulagt út frá því að aga börn inn í rýmið, svo þau valdi ekki hávaða. Börnin eru gerð að vandamálinu í stað þess að gera kröfur um betri hljóðvist og fleiri fermetra fyrir hópinn.“ Vandi sem skapast í of stórum hópum í of litlum rýmum eru til að mynda aukið álag, slæm loft- skipti og sjúkdómasmit. „Ný rannsókn sem var gerð á Akureyri sýnir að á síðustu fjórum árum hafa veikindi auk- ist um 26 prósent meðal starfs- manna leikskóla vegna skorts á afleysingum, barnafjölda á deild og álagsins sem skapast. Allt sem Sífellt minna pláss fyrir leikskólabörn Samkvæmt tölfræðisamanburði Kristínar Dýrfjörð á aðbúnaði leikskólabarna fær hvert barn færri fermetra en áður og hóparnir eru stærri. Hún segir breytingarnar koma til vegna hagrænna áherslna en aukið tillit þurfi að taka til þarfa barnanna. KRISTÍN DÝRFJÖRÐ Magnús, geta menn ekki bara hjólað heima hjá sér? „Fjölbreytni í kyrrstöðu er jafn mikil- væg og fjölbreyttir ferðamátar.“ Tvöfalt fleiri hjólreiðamenn slösuðust í fyrra en árið áður. Magnús Jensson, fyrrverandi for- maður Samtaka um bíllausan lífsstíl, segir að í umferðarmenningunni sé einblínt á ökumenn. UMHVERFISMÁL „Sextíu til sjötíu prósenta fækkun bleikju og urr- iða í Lagarfljóti hlýtur að teljast hrun,“ segir í bókun umhverfis- og héraðsnefndar Fljótsdalshér- aðs. Umhverfisnefndin tók fyrir á síðasta fundi sínum skýrslu Veiðimálastofnunar um fiski- rannsóknir á vatnasviði Lagar- fljóts, Jökulsár á Dal, Fögruhlíð- arár og Gilsár. Rannsóknin náði til áranna 2011 og 2012. „Jafnframt vekur ekki síður ugg hversu rýr kostur er fyrir þá fiska sem þó tóra, að helstu fæðu- tegundir í vatnabobbum, svif- krabba og vorflugu eru horfnar,“ heldur umhverfisnefndin áfram og segir að fengur yrði að skýrslu um viðgang þessara tegunda. „Nefndin hvetur Landsvirkjun til að fylgjast áfram með áhrif- um af framkvæmdum og rekstri Fljótsdalsstöðvar á Lagarfljót og skoða mögulegar mótvægis- aðgerðir,“ segir umhverfisnefnd Fljótsdalshéraðs. - gar Umhverfisnefnd Fljótsdalshéraðs rýnir í svarta skýrslu um fiskirannsóknir: Hrun í öllu lífríki í Lagarfljóti Á FINNSSTÖÐUM Óvíst er hversu mikill silungur verður eftir í Lagarfljóti fyrir Hafdísi Önnu Svansdóttur og hennar kynslóð. MYND/HJÖRDÍS ÓLAFSDÓTTIR veldur starfsfólki streitu veldur um leið streitu barnanna.“ Kristín segir að í umræðu um náttúruvernd sé iðulega rætt um að láta náttúruna njóta vaf- ans þar sem áhrif inngrips og aðgerða eru metin. Hún vildi óska þess að sama gilti um börn- in og aðbúnað þeirra. „Sem dæmi greindi ég skýrslu sem lögð var til grundvallar sam- einingum leikskóla í Reykjavík. Nær öll rök fyrir sameiningu voru hagræn. Hagsmunir barna, starfs- fólks og foreldra voru í aftursæt- inu,“ segir Kristín og bætir við að sorglegt sé að þeim 400 milljón- um sem spöruðust við sameiningu hafi frekar verið varið í verkefni eins og Hofsvallagötu og umbæt- ur á sundlaugum, í dauða hluti en ekki fólk. erla@frettabladid.is Hópastærðir 3 ára barna í leikskólum Amerísku barna lækna samtökin Hámark 14 börn Á Íslandi í dag er engin reglugerð og ekkert hámark Allt upp í 30 börn eru í hverjum hópi 34 55 73 129 74 99 NEYTENDUR Bónus í Skeifunni var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágverðsverslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu í byrjun vikunnar. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali í Hafnarfirði eða í um þriðjungi tilvika. Í um fjórðungi tilvika var hæsta verðið hjá Víði og Nóatúni. Eins og áður sagði var lægsta verðið oftast að finna í Bónus eða í um helmingi tilvika. Oftast var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði vöru frá 1 prósenti upp í 25 prósent en algengast var að sjá 25-50 pró- senta verðmun, en sjá mátti allt að 138 prósenta verðmun. Það var á avókadó, það kostaði 899 krónur kílóið í Hagkaup- um en 378 krónur í Fjarðarkaupum. Af þeim 105 matvörum sem skoðað- ar voru, var verðmunurinn minnstur á mjólkurvörum, osti og viðbiti eða alltaf undir 34 prósentum, en oftast var verð- munurinn frá 1 prósenti upp í 50 prósent. - jme Lægsta verðið á mat er oftast í Bónus samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ: Mesti verðmunur á avókadó HOLLT OG GOTT Talsverður verðmunur er á ávöxtum og grænmeti sam- kvæmt verðkönnun ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NÍGERÍA Herskáir meðlimir hryðjuverkasamtakanna Boko Haram myrtu 33 lögreglu- og hermenn í nígerískri herstöð í vikunni. Uppreisnarmennirn- ir réðust til atlögu á mánudag í bænum Buni Yadi og myrtu þar átján hermenn og fimmtán lög- reglumenn. Árásin átti sér stað rúmum mánuði eftir að 200 nígerísk- um stúlkum var rænt og haldið föngnum af sömu samtökum. Boko Haram þýðir „Vestræn menntun er synd“ á haúsatungu- máli innfæddra. Markmið sam- takanna er að eigin sögn að koma á og framfylgja strangari sjaría- lögum í Nígeríu. - kóh Hryðjuverkaárás í Nígeríu: Boko Haram myrtu alls 33 STJÓRNMÁL Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, var inntur eftir við- brögðum við ummælum Krist- ínar Soffíu Jónsdóttur í útvarps- þættinum Harmageddon í gær. Fyrir tveimur árum sagði Kristín að „ömurlegt“ væri að Reykjavíkurborg væri búin að útdeila lóð til rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar. Dagur sagði í viðtalinu að Kristínu þætti allt þetta mál „náttúrulega bara mjög leiðin- legt“, en sagðist ekki svara fyrir Kristínu. „En ég skil um leið að henni hafi orðið bilt við þegar þetta birtist á Gay Pride á sínum tíma,“ bætti Dagur síðan við. - sój Dagur segir málið leiðinlegt: Svarar ekki fyrir Kristínu NOREGUR Slökkvilið Stafangurs var kallað út í gær þegar eldur kviknaði í timburhúsi við Verks- götu. Eldurinn barst í önnur hús og slökkvilið átti fullt í fangi með að hafa hemil á útbreiðslu hans. Þrjátíu slökkviliðsmenn frá fjórum stöðvum voru kallaðir út til að slökkva eldinn. Slökkvilið hvatti fólk til þess að halda sig frá miðbæ Stafangurs vegna hættu af eiturgufum frá brunanum. Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði. - kóh Stórbruni í Stafangri: Eldurinn barst á milli húsa MENNING Alls tóku 30.296 Íslendingar þátt í að syngja Ísland, nýtt þjóðlag, með kórnum Fjallabræðrum. Halldór Gunnar Pálsson, kór- stjóri Fjallabræðra, hefur ferðast um land allt í þeim tilgangi að taka lagið upp. Markmiðið var að fá þrjátíu þúsund Íslendinga til að syngja loka- kafla lagsins sem hann samdi við ljóð eftir Jökul Jörgensen. Afrakstur verkefnisins má finna á thjodlag.is, en þar er hægt að sækja lagið gjaldfrjálst, horfa á myndbandið og lesa ljóðið. - kóh Rúmlega 30.000 Íslendingar tóku þátt í gríðarstóru verki: Þjóðlag Halldórs Gunnars tilbúið FJALLABRÆÐUR Meðlimir kórsins fagna útgáfu lagsins sem tekið var upp á þriggja ára tímabili á yfir 150 stöðum. Þúsundir klukkustunda fóru í að vinna og klippa lagið saman. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 3 brennarar úr ryðfríu stáli Opið til kl. 16 á laugardag

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.