Fréttablaðið - 29.05.2014, Síða 8
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
RANNSÓKNIR „Peningurinn, var
svarið sem ég fékk þegar ég
spurði börn á aldrinum 13 til 17
ára hvers vegna þau væru að
vinna. Þau tala hins vegar ekki
um að það sé gaman í vinnu,“
segir Margrét Einarsdóttir, sem
í dag ver doktorsritgerð sína,
Launavinna barna og unglinga,
við Háskóla Íslands. Ritgerðin er
unnin úr svörum um 1.000 barna
sem var safnað á árunum 2007 til
2008.
Í ritgerðinni kemst Margrét
meðal annars að þeirri niðurstöðu
að ákveðin togstreita ríki á milli
efnahagslegrar og líkamlegrar
velferðar ungmennanna þegar
kemur að atvinnuþátttöku þeirra.
Ungmennin leggja áherslu á að
þau vilji vinna sér inn peninga,
tekjurnar færi þau í átt til sjálf-
stæðis og ábyrgðar og í sumum
tilfellum þurfi þau á tekjunum að
halda til að standa straum af eigin
framfærslu.
Margrét segir að það séu nokk-
uð sterk tengsl á milli menntun-
ar foreldra og þess hversu gömul
börnin eru þegar þau fara að
vinna. „Börn sem eiga háskóla-
menntaða foreldra eru eldri þegar
þau fara að vinna á sumrin og þau
vinna styttri vinnuviku. Þau eru
jafnframt ólíklegri til að vinna
með skóla,“ segir hún.
Margrét segir að börn og ung-
lingar á þessum aldri vinni af fjár-
hagslegum ástæðum, það geti svo
tengst öðrum þáttum, til dæmis
að þau vilji bera ábyrgð á sjálfum
sér að hluta. Eldri börnin greiði
oft og tíðum sjálf innritunargjöld
í framhaldsskóla og borgi fyrir
eigin bækur.
Sum barnanna keyptu mat til
heimilisins fyrir það fé sem þau
unnu sér inn.
„Það bendir til þess að sumar
fjölskyldur þurfi á launum
barnanna að halda til að halda sér
uppi,“ segir Margrét.
Þá segir hún að á milli eitt og
tvö prósent barnanna, eða 20 til
30, hafi sagt að þau þyrftu að
borga með sér heim.
Annars segir Margrét að sér
sýnist að frá því fyrir aldamót og
fram að hruni hafi dregið úr vinnu
barna og unglinga á sumrin. Hins
vegar hafi vinna barna og ung-
linga með skóla aukist.
johanna@frettabladid.is
Hluti barna látinn
borga heim með sér
Hópur barna er látinn nota þá peninga sem hann vinnur sér inn til að kaupa mat
fyrir fjölskyldu sína. Eitt til tvö prósent barna eru látin borga með sér heim. Um
fimmtungur barna slasast við störf. Flest börn vinna í unglingavinnu á sumrin.
Algengast er að börn og unglingar stundi störf á vegum vinnuskólans á
sumrin en í öðru sæti eru verslunarstörf. Flestir þeir sem vinna með skóla
vinna verslunarstörf í stórmörkuðum.
Í rannsókn Margrétar Einarsdóttur kemur fram að um fimmtungur
ungmennanna, það er um 200 börn, hafi orðið fyrir vinnuslysum, í sumum
tilfellum alvarlegum.
„Það voru 5,9 prósent barnanna sem höfðu orðið fyrir það alvarlegu
slysi að þau voru frá vinnu í viku eða lengur. Sum sögðust hafa verið frá
vinnu fjórar vikur eða lengur. Það voru til að mynda ungmenni sem höfðu
beinbrotnað í vinnu.
Þá segir Margrét að það komi fram að börn sem vinna mikið og
reglulega með skóla séu í meiri hættu á að finna fyrir stoðkerfisverkjum,
sérstaklega bakverkjum.
Fimmtungur slasast í vinnu
TOGSTREITA Margrét Einarsdóttir kemst að þeirri niðurstöðu í doktorsritgerð sinni
að togsteita ríki milli efnahagslegrar og líkamlegrar velferðar ungmenna þegar
kemur að atvinnuþátttöku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANNI
MJÁ
TAKK!
FORLAGIÐ
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
2.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
4.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
6.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
8.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
3.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
5.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
7.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
9.
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur 21.05.–27.05.2014
1.