Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2014, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.05.2014, Qupperneq 8
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 RANNSÓKNIR „Peningurinn, var svarið sem ég fékk þegar ég spurði börn á aldrinum 13 til 17 ára hvers vegna þau væru að vinna. Þau tala hins vegar ekki um að það sé gaman í vinnu,“ segir Margrét Einarsdóttir, sem í dag ver doktorsritgerð sína, Launavinna barna og unglinga, við Háskóla Íslands. Ritgerðin er unnin úr svörum um 1.000 barna sem var safnað á árunum 2007 til 2008. Í ritgerðinni kemst Margrét meðal annars að þeirri niðurstöðu að ákveðin togstreita ríki á milli efnahagslegrar og líkamlegrar velferðar ungmennanna þegar kemur að atvinnuþátttöku þeirra. Ungmennin leggja áherslu á að þau vilji vinna sér inn peninga, tekjurnar færi þau í átt til sjálf- stæðis og ábyrgðar og í sumum tilfellum þurfi þau á tekjunum að halda til að standa straum af eigin framfærslu. Margrét segir að það séu nokk- uð sterk tengsl á milli menntun- ar foreldra og þess hversu gömul börnin eru þegar þau fara að vinna. „Börn sem eiga háskóla- menntaða foreldra eru eldri þegar þau fara að vinna á sumrin og þau vinna styttri vinnuviku. Þau eru jafnframt ólíklegri til að vinna með skóla,“ segir hún. Margrét segir að börn og ung- lingar á þessum aldri vinni af fjár- hagslegum ástæðum, það geti svo tengst öðrum þáttum, til dæmis að þau vilji bera ábyrgð á sjálfum sér að hluta. Eldri börnin greiði oft og tíðum sjálf innritunargjöld í framhaldsskóla og borgi fyrir eigin bækur. Sum barnanna keyptu mat til heimilisins fyrir það fé sem þau unnu sér inn. „Það bendir til þess að sumar fjölskyldur þurfi á launum barnanna að halda til að halda sér uppi,“ segir Margrét. Þá segir hún að á milli eitt og tvö prósent barnanna, eða 20 til 30, hafi sagt að þau þyrftu að borga með sér heim. Annars segir Margrét að sér sýnist að frá því fyrir aldamót og fram að hruni hafi dregið úr vinnu barna og unglinga á sumrin. Hins vegar hafi vinna barna og ung- linga með skóla aukist. johanna@frettabladid.is Hluti barna látinn borga heim með sér Hópur barna er látinn nota þá peninga sem hann vinnur sér inn til að kaupa mat fyrir fjölskyldu sína. Eitt til tvö prósent barna eru látin borga með sér heim. Um fimmtungur barna slasast við störf. Flest börn vinna í unglingavinnu á sumrin. Algengast er að börn og unglingar stundi störf á vegum vinnuskólans á sumrin en í öðru sæti eru verslunarstörf. Flestir þeir sem vinna með skóla vinna verslunarstörf í stórmörkuðum. Í rannsókn Margrétar Einarsdóttur kemur fram að um fimmtungur ungmennanna, það er um 200 börn, hafi orðið fyrir vinnuslysum, í sumum tilfellum alvarlegum. „Það voru 5,9 prósent barnanna sem höfðu orðið fyrir það alvarlegu slysi að þau voru frá vinnu í viku eða lengur. Sum sögðust hafa verið frá vinnu fjórar vikur eða lengur. Það voru til að mynda ungmenni sem höfðu beinbrotnað í vinnu. Þá segir Margrét að það komi fram að börn sem vinna mikið og reglulega með skóla séu í meiri hættu á að finna fyrir stoðkerfisverkjum, sérstaklega bakverkjum. Fimmtungur slasast í vinnu TOGSTREITA Margrét Einarsdóttir kemst að þeirri niðurstöðu í doktorsritgerð sinni að togsteita ríki milli efnahagslegrar og líkamlegrar velferðar ungmenna þegar kemur að atvinnuþátttöku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANNI MJÁ TAKK! FORLAGIÐ Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 2. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 4. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 6. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 8. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 3. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 5. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 7. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 9. Metsölulisti Eymundsson Kiljur 21.05.–27.05.2014 1.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.