Fréttablaðið - 29.05.2014, Qupperneq 16
29. maí 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
M
arkaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti,
sagði frá því í síðustu viku að verð á nautakjöti
frá afurðastöðvum hefði hækkað um 20 prósent.
Sú hækkun mun að sjálfsögðu skila sér út í verð-
ið til neytenda, hafi hún ekki gert það nú þegar.
Ástæðan fyrir verðhækkuninni er ónógt framboð á íslenzku
nautakjöti. Meira að segja Nóatún, sem auglýsir að í kjöt-
borðum fyrirtækisins sé aðeins boðið upp á íslenzkt kjöt,
hefur þurft að flytja inn nýsjálenzkt og danskt nautakjöt til að
anna eftirspurn.
Skorturinn er meðal annars
tilkominn af því að bændur
setja kvígur fremur á til að
framleiða mjólk en að ala
þær til slátrunar. Svo fer
eftirspurnin vaxandi, ekki
sízt vegna gríðarlegrar fjölg-
unar ferðamanna sem vilja fá sína steik og sinn hamborgara í
fríinu.
Hægt væri að komast hjá þessari verðhækkun með því
að ríkið lækkaði tolla á innfluttu nautakjöti nægilega mikið
til að það yrði samkeppnisfært í verði við innlenda kjötið.
Samtök verzlunar og þjónustu hafa raunar farið fram á það
við atvinnuvegaráðuneytið að tollar á nautakjöti verði felldir
niður. Þá væri nægt framboð af kjöti á hóflegu verði og ekki
þyrfti að „yfirbjóða þessa fáu gripi sem eru til úti í sveitum“
eins og Finnur Árnason, forstjóri Haga, orðaði það í Frétta-
blaðinu fyrr í vikunni.
Atvinnuvegaráðuneytið segir hins vegar að sjálfsögðu nei
við beiðni Samtaka verzlunar og þjónustu. Það var algjörlega
fyrirsjáanlegt, enda nákvæmlega samkvæmt því mynztri sem
orðið hefur til á undanförnum misserum: Ef innlendur fram-
leiðandi biður um innflutningskvóta á lágum tollum af því
að hann vantar hráefni er orðið við því hratt og örugglega.
Ef verzlunin í landinu biður um sambærilegar heimildir til
að stuðla að lægra vöruverði og fleiri kostum neytenda tekur
kerfið sér örlítinn umhugsunarfrest og segir svo nei.
Önnur staðalviðbrögð atvinnuvegaráðuneytisins, þegar
farið er fram á tollkvóta til að mæta eftirspurn af því að inn-
lendir framleiðendur anna henni ekki, er að halda því fram að
það sé til nógur kvóti á lægri tollum. Tilkynning um slíkt var
send út eftir umfjöllun Markaðarins. Meinið er bara, eins og
Finnur Árnason benti á í Fréttablaðinu, að þótt ekki sé lagður
hefðbundinn ofurtollur á innflutta nautakjötið eru tollarnir
nógu háir til að það sé ekki samkeppnishæft við innlenda
kjötið.
Með þessu stuðla stjórnvöld alveg meðvitað og með opin
augun að því að hækka matarreikning heimilanna – eða
standa að minnsta kosti hjá og gera ekki neitt til að hindra
það, þótt það væri þeim í lófa lagið.
Enn og aftur er neytendum sem sagt sendur reikningurinn
fyrir úrelt og óhagkvæmt landbúnaðarkerfi sem mætir ekki
þörfum markaðarins. Eru allir sáttir við að halda bara áfram
að borga?
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
➜ Það kostar þá álíka mikið að
hafa barn hjá dagforeldri og á leik-
skóla – eða fólk nýtir greiðsluna
beint og getur skipst á að vera
heima eða á vinnumarkaði.
Reykvíkingar kjósa á laugardaginn
hvaða stefnu þeir vilja að verði fylgt í
borgarstjórn næstu fjögur ár. Við sjálf-
stæðismenn bjóðum skýran valkost við
þá stefnu sem hefur verið fylgt á liðnu
kjörtímabili.
Frá síðustu kosningum hafa skattar
og gjöld á meðalfjölskyldu í Reykjavík
hækkað um rúmar 400.000 krónur. Að
stórum hluta eru þetta ónauðsynlegar
álögur á borgarbúa, til komnar af því að
kjörnir fulltrúar hafa ekki sinnt þeirri
skyldu að sníða borgarkerfinu stakk
eftir vexti. Við ætlum að breyta þessu og
lækka skatta á fjölskyldur í Reykjavík.
Um leið og við lækkum kostnað íbú-
anna, viljum við að þeir hafi miklu meira
val um þjónustu.
Við ætlum að bæta þjónustu við barna-
fjölskyldur og taka upp greiðslur til að
brúa biðlistabilið frá fæðingarorlofi til
leikskóla. Það kostar þá álíka mikið að
hafa barn hjá dagforeldri og á leikskóla
– eða fólk nýtir greiðsluna beint og getur
skipst á að vera heima eða á vinnumark-
aði.
Foreldrar og kennarar setja börnin
í fyrsta sæti. Það á kerfið að gera líka.
Við viljum opna aðgang foreldra að upp-
lýsingum um árangur og útkomu skól-
anna í borginni þannig að þeir hafi meira
aðhald og hvata til að standa sig ennþá
betur. Við viljum að fólk geti auðveldlega
valið um skóla, því að mismunandi skólar
henta mismunandi fólki.
Við vörum við loforðum meirihlutans
um allt að 3.000 nýjar leiguíbúðir. Ef það
er svona auðvelt að framkvæma þau, af
hverju hafa þá miklu færri félagslegar
íbúðir verið byggðar á þessu kjörtímabili
en áratuginn á undan? Við viljum ekki
taka þá áhættu með fé skattgreiðenda
sem felst í að borgin fari að byggja og
gerist leigusali á almennum leigumark-
aði. Við viljum virkja markaðinn með
meira lóðaframboði og breyttum gatna-
gerðargjöldum, sem hvetja til þess að
byggt verði bæði smátt og stórt, húsnæði
sem hentar öllum.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur í öllum
málum áherslu á að fólk stjórni lífi sínu
sjálft og geti valið opinbera þjónustu sem
hentar því best. Við erum til þjónustu
reiðubúin.
Kjósum valfrelsi
STJÓRNMÁL
Halldór
Halldórsson
oddviti Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
Útlent nautakjöt fær ekki að keppa við innlent:
Tilbúinn skortur
hækkar verð
Peningarnir frá frúnni í Hamborg
Vefmiðillinn Eyjan fékk frambjóð-
endur í Reykjavík til að forgangsraða
þeim málefnum sem þeir vilja leggja
áherslu á, á komandi kjörtímabili. Hall-
dór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, er eini frambjóðandinn sem
leggur höfuðáherslu á að lækka útsvar
borgarbúa. Því næst vill hann fjölga
leiguíbúðum, auka stuðning við aldr-
aða og hækka frístundastyrk barna.
Lækkað útsvar þýðir, eins og allir vita,
minni tekjur borgarinnar. Þau verk-
efni sem Halldór vill ráðast í munu
aftur á móti kosta töluverðar fjár-
hæðir og því er spurning hvort Frúin
í Hamborg sé aufúsugestur í ráð-
húsinu. Borgin mun sannarlega
þurfa á peningatrjám að
halda ef stefna Halldórs
gengur eftir.
Frá Degi til Dags
Það er mikill meðbyr með Degi B. Egg-
ertssyni, oddvita Samfylkingarinnar, í
Reykjavík. Stór meirihluti aðspurðra í
skoðanakönnunum segist styðja Dag
sem borgarstjóra og framboð hans
hlýtur mestan stuðning borgarbúa.
Það gæti verið að óminnugir hafi
gleymt síðasta kjörtímabili en þá sat
Dagur sem borgarstjóri í hundrað
daga. Fari svo að Dagur verði borgar-
stjóri að nýju er hann eini
maðurinn sem gegnt
hefur borgarstjóra-
stöðu í Reykjavík
tvisvar. Dags vegna
má vona að næsta
seta verði lengri en sú
síðasta.
Flugvöllinn inn, moskuna út
Ný könnun MMR sýnir að moskuútspil
Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur,
oddvita Framsóknar og flugvallarvina,
virðist hafa virkað. Framboðið hefur
rokið upp og mælist nú með mann
inni í borgarstjórn. Niðurstöðurnar eru
í takt við þróun stjórnmála í Evrópu
en flokkar sem tala gegn fjölmenn-
ingu hafa verið að sækja verulega í sig
veðrið. Vinstri græn sem hafa alltaf
stutt byggingu mosku á Íslandi hafa
misst fylgi sitt og hanga nú í sínum
eina manni, Sóleyju Tómasdóttur,
eins og lífið liggi við. Markmið
flokksins var að ná að minnsta
kosti tveimur konum inn en nú
hefur framboð VG ítrekað mælst
fyrir neðan kjörfylgi. Eitthvað er
ekki að virka.
snaeros@frettabladid.is