Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 29. maí 2014 | SKOÐUN | 17 Úthlutunarreglur LÍN fyrir skóla- árið 2014-2015 voru birtar fyrir nokkrum dögum og komu líkt og þruma úr heiðskíru lofti fyrir þá fjölmörgu íslensku nemendur sem stunda nám erlendis. Niðurstaðan er sú að nemendur erlendis mega nú sætta sig við 10% skerðingu á framfærslu en um leið hækk- ar framfærsla fyrir nemendur á Íslandi um 3,2%. Mikilvægt er að bæta kjör nemenda á Íslandi en þarf það að koma niður á nemend- um erlendis? Til að rétta skekkju LÍN hefur gefið út að þessar aðgerðir séu til samræmis við framfærslu á Íslandi og ástæð- an fyrir lækkun á framfærslu nemenda erlendis sé til að rétta skekkju. Með þessum breyting- um í úthlutunarreglum er LÍN að tengja framfærslu við neysluvið- mið og verðbólgu hvers náms- lands, borin er saman upphæð til nemanda á Íslandi og nemanda erlendis. Jú, rétt er það að nem- andinn erlendis fær örlítið meiri pening á mánuði en sá nemandi þarf aukið fjármagn sem ekki er tekið með í útreikningana t.d. fyrir ferðalaginu heim til Íslands. Þykir nokkuð ljóst að með þess- um aðgerðum sé verið að sporna við því að nemendur leiti utan til að stunda nám, jafnvel nám sem þeim býðst ekki á Íslandi. Ferðalán einu sinni Auk þess að standa frammi fyrir takmörkuðu skólagjaldaláni frá LÍN, sem nær yfir þrjú af sex árum læknisfræðinámsins, þá hefur LÍN nú skorið niður upp- hæðina til framfærslu og ferða- láns. Ferðalánið sem hljóðaði áður upp á tæpar 40.000 ISK á ári, verður nú lánað einu sinni á hverju námsstigi. Á 6 ára náms- ferli læknanema sem býr erlendis er nú lánað einu sinni fyrir ferða- láninu. Þ.e. íslenskur læknanemi í Ungverjalandi/Slóvakíu kemst aðra leið á milli Íslands og Ung- verjalands/Slóvakíu einu sinni á 6 ára námsferli. Við sem hófum nám fyrir nokkrum árum stóðum í þeirri trú að við fengjum ákveðinni upphæð úthlutað á hverju ári. Nú hefur sú upphæð verið skert um 10% án fyrirvara. Skólaár hvers lands eru ekki öll eins og eru nemar erlendis oft að lenda í því að sumarleyfið nái einungis 6 vikum. Þær vikur gefa nemandanum ekki mik- inn tíma til að brúa bilið sem skerðing framfærslunnar hefur myndað í fjármálum nemandans. Um leið og nemendur hafa minni pening á milli handanna til að ferðast þá minnka líkurnar á því að þeir sæki heim í starfsnám. Tapaðir læknar Ef nemandinn starfar ekki innan íslensks heilbrigðiskerfis á meðan á námi stendur þá segir það sig sjálft að sá nemandi mun síður velja íslenskt heilbrigðis- kerfi sem vinnustað í framtíð- inni. Allir þeir íslensku lækna- nemar sem ekki snúa heim eru tapaðir læknar í því verki að byggja upp vel mannað og sterkt heilbrigðiskerfi. Fyrir hönd Félags íslenskra læknanema í Ungverjalandi og Félags íslenskra læknanema í Slóvakíu. Ef skoðanakannanir gefa rétta vísbendingu á Dögun í Reykjavík á brattann að sækja í komandi borgar- stjórnarkosningum í Reykjavík. Ljóst er þó að talsverður fjöldi íhugar að styðja okkur og á fram- boðsfundum þar sem við höfum fengið tækifæri til að kynna málstað okkar hefur fulltrúum Dögun- ar almennt verið mjög vel tekið. Það á til dæmis við um íbúafund í Úlfarsfelli þar sem skipulagsmál brenna á íbúum. Undirritaður kom þar á framfæri þeirri stefnu Dögunar að íbúarn- ir eigi rétt á því að byggðin verði fullfrágengin á borð við önnur hverfi Reykjavíkur. Útlistaði ég áherslur okkar í þessu efni. Afstaðan Þótt íbúafundurinn í Úlfarsfelli hafi verið vel sóttur jafnast fjöld- inn ekki á við allt það fólk sem fær Fréttablaðið inn um lúguna á morgni hverjum. Sl. fimmtudag kynnti blaðið afstöðu oddvita framboðanna í Reykjavík til skipulagsmála í Úlf- arsfelli – allra nema Alþýðufylk- ingarinnar og Dögunar í Reykja- vík. Afstaða fjölmiðla getur skipt sköpum fyrir framboð til kosn- inga. Ég get mér þess til, að Frétta- blaðið réttlæti afstöðu sína með vísan til þess að Dögun í Reykja- vík mælist enn lágt í skoðanakönn- unum. Þar er þó um hálfsannleik að ræða því fréttamenn blaðsins hafa nánast aldrei gefið lesend- um kost á að kynnast framboð- inu og stefnumálum þess á síðum Fréttablaðsins! Að því er virðist hafa fulltrúar framboðsins verið kerfisbundið sniðgengnir í þessum ágæta fjölmiðli. Getur flust til Enn eru nokkrir dagar til kosn- inga og sagan kennir að fylgi getur hæglega flust til á skömmum tíma. Mér finnst mikilvægt að áherslur og baráttumál allra framboða fái sanngjarna og góða umfjöllun í útbreiddustu fjölmiðlum landsins – hvort sem um er að ræða afstöðu til leikskólamála, lýðræðismála, húsnæðismála, innflytjenda, flug- vallarins, gjaldskrármála eða annars sem á kjósendum brennur. Kjósendur eiga rétt á því. Ef Dögun í Reykjavík er látin njóta sannmælis í fjölmiðlum, þá leyfi ég mér að fullyrða að allt getur gerst. Því segi ég: Ekki afskrifa Dögun í Reykjavík! Ekki afskrifa Dögun í Reykjavík Er það réttlátt að einn tapi svo annar græði? LÍN Arna Reynisdóttir Erna Markúsdóttir læknanemi læknanemi ➜ Auk þess að standa frammi fyrir takmörkuðu skólagjaldaláni frá LÍN, sem nær yfi r þrjú af sex árum læknisfræðinámsins, þá hefur LÍN nú skorið niður upphæðina til framfærslu og ferðaláns. Ferðalánið sem hljóðaði áður upp á tæpar 40.000 ISK á ári, verður nú lánað einu sinni á hverju námsstigi. Á 6 ára náms- ferli læknanema sem býr erlendis er nú lánað einu sinni fyrir ferðaláninu. ➜ Enn eru nokkrir dagar til kosninga og sagan kennir að fylgi getur hæglega fl ust til á skömmum tíma. Mér fi nnst mikil- vægt að áherslur og baráttumál allra fram- boða fái sanngjarna og góða umfjöllun... STJÓRNMÁL Þorleifur Gunn- laugsson oddviti Dögunar í Reykjavík NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is Mercedes-Benz A 220 CDI Árg. 2013, ekinn 8 þús. km, dísil, 170 hö., sjálfskiptur, Urban pakki (sportsæti, 17“ álfelgur, tvöfalt púst), bakkmyndavél, bluetooth, hiti í sætum ofl. Verð: 5.290.000 kr. Mercedes-Benz B 180 CDI Árg. 2014, ekinn 1.500 km, dísil, 109 hö., sjálfskiptur, bakk- myndavél, rafmagn og minni í bílstjórasæti, bluetooth, 16“ álfelgur ofl. Verð: 5.490.000 kr. Mercedes-Benz E 300 CDI Árg. 2010, ekinn 154 þús. km, dísil, 232 hö., sjálfskiptur, fjar- lægðarskynjarar, loftpúðafjöðrun, Elegance útfærsla, forhituð miðstöð, bluetooth, leður ofl. Verð: 5.990.000 kr. Mercedes-Benz C 220 CDI Árg. 2013, ekinn 16 þús. km, dísil, 170 hö., sjálfskiptur, sérlitað lakk, hiti í sætum, bluetooth, leður ofl. Verð: 6.990.000 kr. Veldu notaðan Mercedes-Benz Mercedes-Benz E 250 CDI 4MATIC Árg. 2013, ekinn 11 þús. km, dísil, 205 hö., sjálfskiptur, Led og Xenon ljós, minni og rafmagn í sætum, panorama sólþak, Elegance útfærsla, leður, bluetooth ofl. Verð: 11.490.000 kr. Mercedes-Benz ML 350 BLUETEC 4MATIC Árg. 2012, ekinn 12 þús. km, dísil, 259 hö., sjálfskiptur, Intelligent light system (framljós aðlagast bílum fyrir framan), íslandskort, dráttarbeisli, lykla- laust aðgengi, Xenon og led ljós, minni og rafmagn í sætum ofl. Verð: 13.490.000 kr. Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 SELD UR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.