Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 24
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Mig langaði til að vinna með framtíðarpælingu og hvernig fólk myndi klæða
sig ef engar klassískar tengingar
væru til við fatnað,“ útskýrir
Ragna Sigríður Bjarnadóttir, nýút-
skrifaður fatahönnuður frá LHÍ.
„Ég sökkti mér því ofan í fram-
tíðarútópíumyndir eins og Star
Trek og Space Odyssey og rann-
sakaði hvernig fólk túlkaði fram-
tíðina í gamla daga. Ég vildi einnig
að karakterinn sem ég hannaði
á væri sterk kona sem gerði ekki
út á kynþokkann en BA-ritgerðin
mín fjallaði um tísku og femín-
isma, hvernig þetta tvennt fer
saman og ekki.“
Í línuna notaði Ragna náttúru-
leg efni; ull, bómull, silki og leður.
Hún vann efnin hins vegar þannig
að þau litu út fyrir að vera gervi-
efni.
„Ég lét meðal annars lita fyrir
mig leður á Sauðárkróki, í króm-
lit, sem kom mjög vel út. Línan
varð óvænt svolítið bleik sem
mér fannst skemmtileg áskorun
þar sem bleiki liturinn er svo
kynjaður. Ég reyndi hins vegar
að láta hann ekki vera væminn.
Svo bjó ég til prentmunstur út frá
listaverki sem ég rakst á og komst
ekki að því fyrr en seinna að það
listaverk er innblásið af myndinni
Space Odyssey.“
Ragna bjó til öll snið sjálf og
vann þau meðal annars út frá
japönsku origami. Saumaskapinn
sá hún einnig að mestu leyti um
sjálf og segir það hafa verið tals-
verða áskorun. „Það var mikil
vinna en ég lærði mikið af því.
Það er gaman að vita að ég get
gert þetta.“
Þegar Ragna er spurð út í
eigin stíl segir hún námið hafa
haft þroskandi áhrif á fatasmekk
hennar.
„Ég horfi öðruvísi á föt í dag og
hoppa ekki bara á tískubylgjur
heldur kaupi mér frekar eitthvað
sem endist. Mitt uppáhaldsmerki
er Filippa K. Ég lýsi mínum fata-
stíl sem minimalískum og svolítið
skandinavískum.“
■ heida@365.is
KRÓMLITAÐ LEÐUR
ÍSLENSK HÖNNUN Ragna Sigríður Bjarnadóttir sökkti sér ofan í gamlar
kvikmyndir um framtíðina við vinnslu lokalínu sinnar við LHÍ.
ÞROSKAÐUR STÍLL
Ragna Sigríður segist
horfa öðrum augum á
föt eftir hönnunarnámið
við LHÍ. Hún stökkvi
ekki lengur á tískubylgj-
ur heldur velji sér föt
sem endast.
ORIGAMI Jap-
anskt origami var
innblásturinn við
sníðagerð Rögnu.
MYNDIR/ANÍTA ELDJÁRN
KRÓMLITAÐ
Ragna lét lita
fyrir sig leður
hjá Sjávarleðri
á Sauðárkróki.
BLEIKUR Ragna
segir bleikan lit
óvænt hafa orðið
ráðandi í línunni.
Það hafi verið áskor-
un að útfæra hann
þannig að hann yrði
ekki væminn.
MYND/VALLI
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10-15.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
4 litir: rautt, svart,
camel, grátt
Stærð 34 - 48 (50)
Verð 12.900 kr.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Smart föt, fyrir smart konur
Stærðir 38-52