Fréttablaðið - 29.05.2014, Síða 26
FÓLK|TÍSKA
SVÖL Í SVÖRTU Rebekka var að útskrifast úr hárgreiðsluiðn en hárgreiðsla hefur
verið áhugamál hennar frá því hún var lítil. MYND/GVA
Rebekka Hinriksdóttir var í svörtum jakka með silfur-skrauti, svörtu pilsi og
svörtum sokkabuxum þegar hún
var við útskrift sína úr hársnyrtiiðn
í Eldborgarsal Hörpu í gær. Hún er
að fara að vinna á nýrri hárgreiðslu-
stofu, Reykjavík Hair, en hárgreiðsl-
an hefur verið áhugmál hjá henni
frá því hún var barn. „Ég var í öllu
svörtu í gær þótt ég sé yfirleitt
í skærum litum. Stíllinn minn er
klassískur og ég er yfirleitt í galla-
buxum eða leggings og skyrtu við
eða bara í íþróttafötum. Þegar ég
fer út á lífið er ég svipað klædd en
bara fínni.“
Rebekka segist fylgjast ágæt-
lega með tískunni og hafa gert það
frá því hún var barn. „Ég skoða
bæði blöð og hvað er í búðunum.
Ég kaupi mér alltaf eitthvað nýtt í
hverjum mánuði og versla þá aðal-
lega í Sautján en kíki líka stundum
í Júník og Vero Moda. Ég versla líka
svolítið í Ameríku. Veski og skór eru
það sem ég kaupi mér alltaf þrátt
fyrir að eiga nóg fyrir. Fyrir sumarið
langar mig helst í einhvern flottan
jakka,“ segir Rebekka og brosir.
Henni finnst ómissandi að vera
með fylgihluti og fer ekki út án þess
að vera með úrið sitt og hringi.
„Þegar ég er komin heim finnst
mér best að fara í íþróttabuxurnar
mínar og hafa það kósí.“
KLÆDDIST SVÖRTU Á
ÚTSKRIFTARDAGINN
ÚTSKRIFTARTÍSKA Rebekka Hinriksdóttir útskrifaðist úr hársnyrtiiðn í gær.
Hún var í svörtu við útskriftina þrátt fyrir að vera yfirleitt litaglöð í fatavali.
BUXUR OG KJÓLL
HJÁ MARC JACOBS
HAUST Hinn frægi tískuhönnuður Marc Jacobs vakti mikla athygli þegar hann
kynnti haust- og vetrartísku sína. Þetta var fyrsta sýning hans eftir að hann
hætti að hanna fyrir Louis Vuitton. Svo virðist sem Marc Jacobs vilji sjá konur
í síðum kyrtlum yfir buxur, sagði tískusérfræðingur hjá Vogue, en slíkur fatn-
aður var fyrirferðarmikill á sýningunni. Litir voru haustlegir og sniðin einföld,
eins og sjá má á myndunum.
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
Save the Children á Íslandi
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r
20
12
–
h
öf
uð
bo
rg
ar
sv
æ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU