Fréttablaðið - 29.05.2014, Side 27
IÐNMEISTARAR
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Kynningarblað
Málarameistarafélagið,
Meistaraskólinn, H.
Árnason og Meistaradeild
Samtaka iðnaðarins.
Það er mikilvægt fyrir húseig-endur að huga að reglulegu viðhaldi fasteigna sinna til
þess að rýra ekki verðgildi þeirra og
koma í veg fyrir varanlegar skemmd-
ir. Bjarni Þór Gústafsson, málara-
meistari og formaður Málarameist-
arafélagsins, segir mikilvægt að fá
málarameistara til liðs við sig þegar
þarf að mála. „Fólk þarf að kynna sér
hvort sá sem fenginn er í verkið sé
með öll réttindi og tryggingar sem
á þarf að halda. Ef eitthvað gerist þá
er verkkaupi ábyrgur ef viðkomandi
málari er ekki tryggður. Með því að fá
fagmann í verkið er verið að tryggja
sér gæði, málarameistarinn getur
leiðbeint við val á efni og litasam-
setningu og hefur fagkunnáttu til
að mæta öllum séróskum. Það er þó
ekkert endilega ódýrara að nota ófag-
lærða menn en þetta snýst ekki bara
um verð. Málarameistarar eru með
menntun í sínu fagi og vinna fag-
mannlega og snyrtilega.“
Málarameistarar
í félagatali á malarar.is
Með því að fá löggiltan málarameist-
ara í verkið getur fólk verið visst um
að hann geri ígrundaðar kostnaðar-
áætlanir og verðtilboð, noti einungis
efni og málningu sem stenst íslenska
veðráttu og vinni góða sprungu- og
undirvinnu sem tryggir betri end-
ingu. „Það er auðvelt að ganga úr
skugga um hvort viðkomandi hafi
tilskilin réttindi en á heimasíðu Mál-
arameistarafélagsins er félagatal
þar sem allir okkar félagsmenn eru
skráðir.“
Erfitt að sækja réttinn
Bjarni Þór segir gott að hafa ákveðin
atriði í huga áður en hafist er handa
við að fá einhvern til að mála fyrir
sig. „Eins og áður segir ætti alltaf að
ganga úr skugga um að sá aðili sem
skipt er við hafi tilskilin réttindi. Á
hverju ári leitar fjöldi fólks til Mál-
arameistarafélagsins sem orðið hefur
fyrir fjárhags- og eignatjóni vegna
óvandaðra vinnubragða í viðhaldi
fasteigna. Samkvæmt Iðnaðarlög-
um skulu löggiltar iðngreinar ávallt
reknar undir forstöðu meistara en
alltaf er þó nokkuð um að réttinda-
lausir verktakar bjóði þjónustu sína.
Erfitt getur reynst fyrir viðskiptavin-
inn að sækja rétt sinn ef vandkvæði
koma upp við verkið þegar réttinda-
lausir menn eru annars vegar. Gott
er að fá skriflegt tilboð í verk áður en
hafist er handa þar sem kemur fram
hvaða verkþættir eru innifaldir í
samningsverðinu, hvernig greiðslum
skuli háttað og hvort efniskostnaður
sé innifalinn. Einnig er góð regla að
gera verksamninga á milli verktaka
og verkkaupa þar sem fram koma
helstu atriði varðandi verkið.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Málarameistarafélagsins,
malarar.is.
Mikilvægt að hafa fagmenn í vinnu
Fólk ætti hiklaust að hafa samband við Málarameistarafélagið þegar það ákveður að ráða til sín málara, sama hvort verkið er lítið
eða stórt. Mikilvægt er að kynna sér hvort viðkomandi hafi þau réttindi sem til þarf því erfitt getur reynst að sækja rétt sinn ef
réttindalausir „verktakar“ vinna verkið og eitthvað fer miður. Gott er að fá tilboð áður en verk er hafið og gera svo verksamning.
Bjarni Þór Gústafsson, formaður Málarameistarafélagsins, mælir með að fólk kynni sér réttindi þeirra sem skipt er við áður en
verk hefjast. MYND/STEFÁN
Í Meistaraskólanum er boðið upp á réttindanám fyrir iðn-aðarmenn með sveinspróf í
löggiltum iðngreinum. „Þetta er
stjórnunar- og rekstrarnám sem
miðar að því að gera fólk hæft
til að vera með nema og kenna
þeim. Einnig að það geti verið
með eigin rekstur og vitað út á
hvað það gengur,“ segir Áslaug
Maack Pétursdóttir, skólastjóri
Meistaraskólans.
Mikill fjöldi námsbrauta er við
skólann enda allar löggiltar iðn-
greinar kenndar þar nema mat-
vælaiðngreinar. „Við kennum
samkvæmt námsskrá frá 1986.
Starfsgreinaráð hverrar iðn-
greinar ákveður hvað kennt er í
þeirri iðn en námsbrautirnar eru
mislangar, til dæmis taka hár-
greiðslu- og snyrtifræðinemar
sautján einingar en múrarar og
húsasmiðir taka 68 einingar og
svo er allt þar á milli. Fagtengd-
ir áfangar eru kenndir á sumum
brautum en öðrum ekki. Í til
dæmis pípulagningum og vél-
virkjun er ætlast til að fólk taki
verklega áfanga sem eru tengd-
ir faginu. Íslenska, stærðfræði og
enska er kennd yfir línuna. Það
er gerð krafa um meiri þekk-
ingu í þessum greinum en gert
er í sveinsprófi. Þeir sem eru með
stúdentspróf eða aðra mennt-
un geta fengið hana metna. Svo
bíðum við eftir að fá samþykki
til að fá að byrja að kenna sam-
kvæmt nýrri námsskrá sem verð-
ur hugsanlega eitthvað breytt,“
segir Áslaug.
Hún segir Meistaraskólann
hafa ef lst í gegnum tíðina og
kröfurnar aukist. „Við útskrif-
um alltaf yfir hundrað nemend-
ur á ári. Tækniskólinn er gæða-
vottaður og Meistaraskólinn er
hluti af honum. Við erum allt-
af að herða reglur hér innan-
húss og gæðakerfið virkar allt-
af betur og betur. Áður fyrr var
þetta kvöldskóli en undanfar-
in fjögur ár höfum við verið með
svokallað dreifnám, það er fjar-
kennsla með staðlotum. Fyrst
fundum við fyrir mikilli óánægju
með þetta fyrirkomulag en núna
eru nemendur almennt ánægð-
ir og ég hef meira að segja fengið
bréf frá fyrrverandi nemendum
sem þakka fyrir námið og tala um
hvað það er hagnýtt. Í upphafi
annar eru kennsluáætlanir gefn-
ar út þannig að það liggur fyrir
þá hvenær öll verkefnaskil, próf
og f leira eru. Nám eins og þetta
krefst mikils sjálfsaga en með
þessu veit fólk fyrirfram hvenær
á að gera hvað og getur skipulagt
sig. Tilhneigingin hefur verið
sú að fólk fer út á vinnumarkað-
inn eftir sveinspróf og skilar sér
seinna í meistarann. Þetta er hins
vegar aðeins að breytast og nem-
endur hér að yngjast, fólk er að
átta sig á því að til þess að geta
skrifað upp á ákveðin verk, aðal-
lega í byggingagreinunum, þarf
að hafa meistararéttindi.“
Margvíslegt nám til meistararéttinda
Í Meistaraskólanum er fjöldi námsbrauta en þar er réttindanám fyrir allar löggiltar iðngreinar nema matvælaiðngreinar kennt. Námið
er dreifnám en þá er kennt í fjarnámi með staðlotum. Yfir hundrað nemendur á ári útskrifast frá Meistaraskólanum.
M
Y
N
D
/PJETU
R
Áslaug Maack Péturs-
dóttir skólastjóri segir
Meistaraskólann hafa
eflst í gegnum tíðina
og gæði námsins þar
aukist.