Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 28
KYNNING − AUGLÝSINGIðnmeistarar FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 20142
Ábyrgðarsjóði Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins (MSI) er
ætlað að skapa traust á milli verkkaupa og verktaka.
Einnig að tryggja viðskiptavinum félagsmanna MSI að
vinna framkvæmd af félagsmönnum sé í samræmi við
skriflegan verksamning og góð fagleg vinnubrögð.
Í MSI eru Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Málarameistarafélagið,
Meistarafélag Suðurlands, Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði,
Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi, Meistarafélag húsa-
smiða, SART – samtök rafverktaka, Félag dúklagninga- og vegg-
fóðrarameistara, Múrarameistarafélag Reykjavíkur, Meistarafélag
byggingarmanna á Suðurnesjum og Félag blikksmiðjueigenda.
Allir félagsmenn MSI og aðilar að Ábyrgðasjóði MSI eru löggiltir
iðnmeistarar. Standist vinna af einhverjum ástæðum ekki þær
kröfur sem viðskiptavinur gerir til verksins getur hann lagt málið
fyrir úrskurðarnefnd MSI. Þá er viðeigandi eyðublað frá SI fyllt út og
lagt fram ásamt skriflegum gögnum kvörtuninni til stuðnings.
Eftirfarandi reglur gilda um Ábyrgðarsjóðinn:
● Skriflegur verksamningur milli verkkaupa og verksala er skilyrði þess
að verkkaupi geti vísað máli sínu til úrskurðarnefndar MSI.
● Sjóðurinn tekur ekki á málum vegna efnisgalla eða galla sem stafa af
röngum upplýsingum framleiðenda. Einungis einstaklingar og hús-
félög geta notið bóta úr Ábyrgðarsjóði MSI.
● Ágreiningi vegna reikningagerðar, verktíma og álíka atriða er ekki
hægt að vísa til úrskurðarnefndar MSÍ. Einungis er úrskurðað um meint
ófagleg vinnubrögð.
● Úrskurðarnefnd MSI tekur ekki fyrir mál gagnvart fyrirtækjum.
● Hámarks bótafjárhæð er tvær milljónir króna. Úrskurðarnefnd MSI
fjallar ekki um mál þar sem samningsupphæð er lægri en 100.000 kr.
né hærri en 25.000.000 kr. með vsk.
● Málskotsgjald er 15.000 kr. Til þess getur komið að sá sem tapar máli
greiði útlagðan kostnað að hámarki 100.000 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á www.si.is
Skapar traust milli verk-
kaupanda og verktaka
Fyrirtækið H. Árnason er al-hliða tölvuþjónustufyrir-tæki sem fagnar 20 ára af-
mæli í ár. Það hefur alla tíð verið
rekið af hjónunum Hirti Árna-
syni og Elínu Guðmundsdóttur
og lagt ríka áherslu á að þjónusta
fyrirtæki þar sem aðaláherslan
hefur verið á þjónustu og rekst-
ur tölvukerfa.
Hjörtur segir fyrirtækið búa
yfir mikilli sérþekkingu á net-
stýrikerfum og uppsetningu þeirra
á netþjónum og borðtölvum við-
skiptavina. „Auk þjónustu okkar
seljum við einnig vélbúnað og
hugbúnaðarlausnir til viðskipta-
vina okkar. Nýjasta viðbótin þar er
sala og uppsetning á Office 365 ský-
lausnum frá Microsoft sem hefur
verið vel tekið.“
Sjálfur er Hjörtur rafeindavirkja-
meistari frá Iðnskólanum í Reykja-
vík og hefur starfað við tölvuvið-
gerðir og rekstur tölvukerfa í yfir 30
ár. Hjá fyrirtækinu starfa að með-
altali þrír til fjórir starfsmenn og
er einn þeirra rafeindavirki með
sveinspróf í iðngreininni.
Hann segir að viðgerðir á við-
kvæmum tölvuíhlutum á móður-
borðum, spennugjöfum, tölvu-
skjáum og öðrum íhlutum krefj-
ist þekkingar og að réttur fagaðili
þurfi að vinna þær. „Á sama tíma
þarf tölvufyrirtækið að hafa fag-
aðila á sviði tölvutækninnar með
yfirgripsmikla þekkingu á hug-
búnaðarsviði, uppsetningar á net-
stýrikerfum og stýrikerfum al-
mennt. Fyrirtæki okkar er vel statt
að þessu leyti.“
Hjörtur lauk einnig f jög-
urra ára háskólanámi í kerfis-
og tölvunarfræði frá HR. „Kerf-
is- og tölvunarfræðingar vinna
meira á hugbúnaðarsviðinu en
það sem við sjáum um er að allt
annað utanum hald kerfisein-
inga sé í lagi áður en tölvunar-
fræðingarnir mæta á staðinn.
Það má ekki gleyma því að öll
viðgerðarvinna á vélbúnaði sem
krefst sérþekkingar er lögvernd-
uð með iðnnáminu og leita þarf
til fagaðila í greininni.“
Viðskiptavinir fyrirtækisins
eru úr öllum geirum viðskipta-
lífsins, iðnfyrirtæki, lögfræði-
stofur, endurskoðendur og fyrir-
tæki í matvælaiðnaði. „Nálægð-
in við viðskiptavini er mikilvæg.
Lítið fyrirtæki eins og okkar
nýtur ágætrar sérstöðu að þessu
leyti og tel ég að við séum í mun
nánari tengslum við viðskipta-
vininn en stóru fyrirtækjastofn-
anirnar í tölvugeiranum að þessu
leyti.“
Allar nánari upplýsingar um
f yrirtækið má finna á w w w.
harna son.is.
Alhliða tölvuþjónusta
Tölvuþjónustufyrirtækið H. Árnason sinnir fjölbreyttum hópi fyrirtækja úr öllum
geirum viðskiptalífsins. Aðaláherslan hefur verið á þjónustu og rekstur tölvukerfa.
Hjónin Elín Guðmundsdóttir og Hjörtur Árnason hafa rekið H. Árnason í 20 ár. MYND/GVA
Meistaradeild Samtaka iðn-aðarins (MSI) var stofn-uð árið 2009 en tilgang-
urinn með stofnun hennar var að
skapa öflugan þverfaglegan um-
ræðuvettvang og auka samstarf
félagsmanna í byggingargrein-
um innan samtakanna. Upphaf-
lega komu fimm meistarafélög í
byggingariðnaði að stofnun henn-
ar en í dag inniheldur hún ellefu
meistarafélög sem samanstanda
af um 600 iðnmeisturum og fyrir-
tækjum. Friðrik Á. Ólafsson, for-
stöðumaður byggingarsviðs Sam-
taka iðnaðarins (SI), segir einnig
hafa vakað fyrir stofnendum að
búa til samnefnara allra meist-
arafélaga sem eru aðilar að SI og
tengjast byggingariðnaði. „SI eru
stór og fjölmenn samtök og með
stofnun Meistaradeildarinnar
vildu menn búa til vettvang þar
sem eingöngu væru til umfjöll-
unar málefni sem tengjast bygg-
ingariðnaði og engu öðru. Þar er
að finna öll meistarafélög í bygg-
ingariðnaði á landinu, alls ellefu
félög, utan eins félags sem ekki
er enn búið að ganga í SI eins og
staðan er í dag.“
Ýmsar breytingar hafa átt sér
stað að sögn Friðriks á þeim
fimm árum sem liðin eru. „Öll
v inna iðnmeistara og f yrir-
tækja er orðin mun markviss-
ari en áður. Mikil áhersla hefur
til dæmis verið lögð á gerð verk-
samninga milli verkkaupa og
verktaka. Slíkir samningar eru
hagsmunamál fyrir báða aðila
og skipta miklu máli. Einnig
má nefna Ábyrgðarsjóð MSI en
ef verkkaupi er ósáttur við fag-
leg skil á verki getur hann leit-
að þangað ef gerður hefur verið
skriflegur samningur milli aðila.
Sérstök úrskurðarnefnd vinnur
úr þeim málum, ef upp koma, en
úrskurðanefndin er skipuð í sam-
vinnu við Húseigendafélagið og
Neytendasamtökin.“
Starfsemi meistaradeildarinn-
ar snýr einnig að því að samhæfa
vinnubrögð og reglur iðnmeist-
ara. „Við aðstoðum líka félags-
menn við að uppfylla lög og regl-
ur, sbr. mannvirkjalög og bygg-
ingarreglugerðir. Við leiðbeinum
félagsmönnum líka við að tileinka
sér notkun gæðakerfa en í mann-
virkjalögum segir að allir starf-
andi iðnmeistarar sem skrifa upp
á nýframkvæmdir skuli hafa til-
einkað sér notkun gæðakerfa 1.
janúar 2015. Öll starfsemi meist-
aradeildarinnar er því til mikilla
hagsbóta fyrir löggilta iðnmeist-
ara og ekki síður verkkaupa sem
skipta við félagsmenn meistara-
deildar SI.“
Mikið framfaraskref
Miklar breytingar hafa orðið á starfsumhverfi iðnmeistara í byggingariðnaði
eftir að Meistaradeild Samtaka iðnaðarins var sett á fót á vormánuðum 2009.
„Mikil áhersla hefur til dæmis verið lögð á gerð verksamninga milli verkkaupa og
verktaka,“ segir Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumaður byggingarsviðs Samtaka iðnaðarins.
MYND/VILHELM
Ljósberi
til í mörgum litum
www.djuls.is