Fréttablaðið - 29.05.2014, Side 42

Fréttablaðið - 29.05.2014, Side 42
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 30 Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina. Halla Hrund Pétursdóttir, landslags- arkitekt FILA, hjálpar þér við að skipuleggja garðinn þinn. Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Steypustöðin býður upp á mikið úrval af fallegum hellum og mynstursteypu fyrir heimili, garða, göngustíga og bílaplön. Skoðaðu úrvalið á www.steypustodin.is 20 YFIR TEGUNDIR AF HELLUM BÍÓFRÉTTIR Kvikmyndin Edge of Tomorrow var frumsýnd á Íslandi í gær, níu dögum áður en hún verður tekin til sýninga í Bandaríkjunum. Myndin er byggð á japönsku skáldsögunni All you need is kill eftir Hiroshi Sakurazaka. Í myndinni eru hættu- legar geimverur búnar að gera árás á jörðina og fljótt er ljóst að mann- kynið býr ekki yfir tækni til að verjast þeim til lengdar. Hermaðurinn Bill Cage er sendur í eina orrustu en hann er reynslu- lítill og er drepinn eftir nokkrar mínútur. Honum til mikillar furðu rankar hann um leið við sér degi áður en hann er kallaður til orrust- unnar og þarf að endurtaka leikinn. Þessi endurtekna reynsla Bills af þessum sama degi og þessum sama bardaga gerir það smám saman að verkum að hann fer að læra inn á hvernig hann fer að því að lifa af og ekki nóg með það heldur gefur þetta honum tækifæri til að átta sig á veik- leikum geimveranna. Myndin var tekin upp nær ein- göngu í Leavesden-stúdíóinu nálægt London þar sem allar Harry Potter- myndirnar voru teknar upp. Talið er að framleiðslukostnaðurinn sé 178 milljónir dollarar, rúmir tuttugu milljarðar króna. Fjölmiðlum vestan hafs þykir hins vegar afar ólíklegt að myndin geri góða hluti í miðasölu. Box Office Mojo ber myndina saman við aðrar myndir aðalleikarans Tom Cruise, Valkyrie, Knight and Day, Jack Reacher og Oblivion, sem náðu ekki að afla meira en hundrað milljónum dollara í Bandaríkjunum og Kanada. Spáir vefsíðan Edge of Tomrrow sömu örlögum þótt myndin hafi hlotið góða dóma. Auk Toms Cruise fara Emily Blunt, Bill Paxton, Jeremy Piven, Lara Pulver og Charlotte Riley með aðalhlutverkin. Leikstjóri er Doug Liman sem er þekktur fyrir myndir á borð við The Bourne Identity, Mr & Mrs. Smith og Fair Game. liljakatrin@frettabladid.is Heimsfrumsýnd á Íslandi Kvikmyndin Edge of Tomorrow með Tom Cruise og Emily Blunt í aðalhlutverkum var tekin til sýninga á Íslandi níu dögum áður en hún er sýnd í Bandaríkjunum. Myndin er byggð á japönsku skáldsögunni All you need is kill. AFTUR OG AFTUR Tom leikur hermanninn Bill Cage í myndinni. Tom Cruise planaði gríðarlega veglegt partí í London þegar tökum lauk á Edge of Tomorrow. Talið er að veislan hafi kostað stjörnuna um hundrað þúsund pund, tæpar nítján milljónir króna. Það hefði allt verið gott og blessað nema fyrir þær sakir að Tom komst ekki í partíið því hann tafðist á setti. Tom bókaði sal í Millbank Tower í London og sá til þess að nóg af mat og drykk væri til fyrir þau fjögur hundruð sem komu að gerð myndarinnar. Um 350 flöskur af kampavíni voru drukknar þetta kvöld. Næstum því flaska á mann! HÉLT PARTÍ EN MÆTTI EKKI Í myndinni er notað svokallað „time loops“ sem er vel þekkt í kvik- myndum með vísindaskáldsöguþema. Það felst í því að ákveðinn tími, nokkrir klukkutímar eða dagar, endurtekur sig aftur og aftur. Aðrar myndir sem nota „time loops“: 12 Monkeys (1995) The Butterfly Effect (2004) Donnie Darko (2001) Frequency (2000) Groundhog Day (1993) Looper (2012) Primer (2004) The Time Travelers (1964) ÞEKKT FYRIRBÆRI 8,2/10 70/100 92/100 Framleiðslufyrirtækið Gold Circle og HBO Films hafa hafið þróun á fram- haldsmynd rómantísku gamanmynd- arinnar My Big Fat Greek Wedding frá árinu 2002. Nia Vardalos og John Corbett léku aðalhlutverkin í fyrri myndinni og munu koma saman aftur í framhalds- myndinni. Framhaldsmyndin heldur áfram að fylgjast með Portokalos- fjölskyldunni sem snýr aftur þegar fjölskylduleyndarmál er afhjúpað og stærra brúðkaup sameinar fjöl- skylduna á ný. Nia Vardalos skrifaði handrit fyrri myndarinnar og sest aftur í hand- ritsskrifarastólinn fyrir framhalds- myndina. „Nú er ég að upplifa það að vera móðir og er tilbúin að skrifa næsta kafla í fjölskyldusögu minni. Auð- vitað munu einhverjir fjölskyldumeð- limir halda því fram að ég sé blönk og hafi bara viljað kyssa John Corbett aftur. Annað af þessu tvennu er satt,“ segir Nia. ★ My Big Fat Greek Wedding var upprunalega einleikur sem Nia skrifaði og lék í. Það var byggt á sögu hennar eigin fjölskyldu í Winnipeg í Kanada og byggir á því þegar hún giftist manni sem var ekki grískur. ★ Myndin varð óvæntur smellur og fékk tilnefningu til Óskarsverð- launanna fyrir besta handritið. ★ Myndin varð tekjuhæsta rómantíska gamanmynd allra tíma og halaði inn 241,4 milljónum dollara í Norður-Ameríku, rúmum 27 milljörðum króna. FEITARA GRÍSKT BRÚÐKAUP Framhaldsmynd í bígerð SJARMERANDI Nia og John unnu hjörtu heimsbyggðarinnar. Leikkonan Annette Bening er 56 ára í dag Helstu myndir: American Beauty, Being Julia, The Kids Are All Right, The Siege. AFMÆLISBARN DAGSINS Sérstakar söngsýningar á teiknimynd- inni Frozen verða haldnar aftur um næstu helgi í Egilshöll og Kringlunni en sýningarnar vöktu mikla lukku um síðustu helgi. Á sýningunum verður sem sagt sungið með lögunum úr teiknimyndinni sem hefur farið sigur- för um heiminn og er orðin fimmta tekjuhæsta mynd sögunnar. SUNGIÐ MEÐ FROSIN Töfralandið Oz: Dórótea snýr aftur teiknimynd A Million Ways to Die in the West, gamanmynd AÐALHLUTVERK: Liam Neeson, Charlize Theron og Seth McFarlan 50/100 FRUMSÝNINGARSLÆMIR DÓMAR Stikla úr kvikmyndinni Lost River var sýnd í Cannes í síðustu viku. Myndin er frumraun Ryans Gosling í leikstjóra- stólnum en eins og kunnugt er sá Val- dís Óskarsdóttir um að klippa hana. Myndin féll ekki í kramið hjá gagnrýnendum í Cannes og hafa margir þeirra bent á að Gosling ætti frekar að einbeita sér að leik en leik- stjórn. 6,7/10 25/100 15/100

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.