Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 10
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SJÁVARÚTVEGUR „Öðruvísi mér áður brá,“ segir Skjöldur Pálma- son, framleiðslustjóri Odda á Pat- reksfirði, en nú er svo komið að sjómenn fá orðið skömm í hattinn ef mikið af aflanum er stórþorskur en ekki er langt síðan slíkt þótti hinn mesti happafengur. „Þeir eru farnir að krossa fing- ur og vona að minni fiskurinn fáist til að taka áður en sá stóri bítur á,“ segir hann. Guðbergur Rúnarsson, hjá Sam- tökum fiskvinnslustöðva, segir að fyrir nokkrum árum hafi þorskur- inn verið mun minni. „Og markað- urinn er bara búinn að stilla sig inn á það,“ segir hann. Stórþorsk- urinn er því orðinn erfiður viður- eignar, til dæmis í pakkningar- og skömmtunarkerfum hjá dreifing- araðilum og verslunum. Einnig segir Guðbergur að stór þorskur sé óhentug eining fyrir flesta kaupendur. Skjöldur segir enn fremur að mokfiskirí sé á miðunum. Til að mynda hafi átta tonn veiðst á hand- færabát á einum sólarhring. „Það er eins hjá línubátunum,“ segir framleiðslustjórinn. Hann segir að þess vegna hafi það komið útgerð- armönnum á óvart að ekki skyldi hafa verið úthlutað meiri þorsk- kvóta fyrir komandi fiskveiðiár. Stórþorskur orðinn til stórvandræða Þorskur er orðinn mjög stór á miðum. Markaðurinn er hins vegar orðinn vanari minni þorski svo mikið framboð af þeim stóra er til vandræða. Sjómenn eru farnir að krossa fingur og óska þess að tittirnir taki við sér, segir framleiðslustjóri. SKJÖLDUR PÁLMASON LORENZO ALESSIO MEÐ EINN STÓRAN Það kom Patreks- firðingunum ekk- ert á óvart þegar ítalski landsliðs- kokkurinn dró einn risastóran enda þekkja þeir vel vandann sem hlotist hefur af offramboði risa- þorsksins. RÚSSLAND Þrefalt fleiri deyja af völdum of stórs skammts af fíkniefnum í Rússlandi nú miðað við árið 2012, segir The Moscow Times. Hundrað þúsund manns gætu dáið af þessum sökum í ár, að sögn yfirmanns fíkniefnadeildar rússnesku lögreglunnar. -ih Eiturlyfjaneysla í Rússlandi: Fleiri deyja SPÁNN Par nokkurt gerði sér lítið fyrir árla morguns í vikunni og synti út að fleka við ströndina í bænum Javea, norður af Alicante, og hafði þar samfarir. Spænski vefurinn Levante sagði frá þessu. Athöfnin fór ekki fram hjá bæjarbúum, en einn þeirra tók myndir af parinu. -jse Kynlíf í morgunsárið: Nutust á fleka Íslandsstofa og Samband fisk- vinnslustöðva standa nú í miklu markaðsverkefni til að festa íslenskar sjávarafurðir í sessi sem hágæðavöru í Suður-Evrópu. Hluti af því verkefni var að fá ítalska landsliðskokkinn Lorenzo Alessio hingað til lands til að gera kynn- ingarmyndbönd með íslensku hrá- efni. Fór meistarakokkurinn í lok síðasta mánaðar vestur á Patreks- fjörð og eldaði ofan í starfsmenn Odda og Þórshamars frá Tálkna- firði. Síðan var farið með hann á sjóstöng. Það kom Patreksfirð- ingunum alls ekki í opna skjöldu þegar sá ítalski dró einn risaþorsk- inn enn. jse@frettabladid.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Guoren hitastýrð blöndunartæki Málm handföng. Rósettur og hjámiðjur fylgja. GÆÐAVA RA Guoren 1L Hitastýrt baðtæki standard kr.17.990 Guoren TLY Sturtusett kr. 47.990 Guoren-BO Hitastýrt tæki með niðurstút kr.14.990 Guoren-AL Hitastýrt tæki með uppstút kr.14.990 Guoren 4F Hitastýrt baðtæki Exclusive kr.19.990 EN 1111:1997
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.