Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 32
FÓLK|
Kate Middleton, eiginkona Vilhjálms Bretaprins, vekur athygli hvar sem hún kemur. Föt sem hún hefur klæðst hafa selst upp þegar konur vilja feta í tískuspor hennar. Til dæmis jókst sala á gulum kjólum gríðarlega í Ástralíu eftir að hún klæddist tveimur slíkum í opinberri heimsókn í landinu.
GLÆSILEGA KATE
TÍSKUFYRIRMYND Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, hefur lengi
verið mikil tískufyrirmynd. Kate er óhrædd við að klæðast litríkum flíkum og
virðast flestir litir regnbogans fara henni vel eins og sjá má á myndunum.
LJÓSBLÁ Kápan frá Alexander McQueen er sérstaklega hönnuð
á Kate og gerð í þessum lit aðeins fyrir hana. Hún klæddist henni
í júní síðastliðnum á minningarhátíð í Normandí. RAUÐ Kate var glæsileg í
þessum fallega, rauða kjól
sem hún klæddist í júní 2012
þegar haldið var upp á krýn-
ingarafmæli drottningarinnar.
SVARTHVÍT Hér er hertogaynjan í svarthvítri kápu frá Michael
Kors sem kostar litlar 360 þúsund krónur. Myndin er tekin í apríl
síðastliðnum þegar hjónin voru á ferð um Nýja-Sjáland og Ástralíu.
GRÆN Kate klæddist þessari fallegu grænu ullarkápu frá Erdem
þegar hjólreiðakeppnin Tour de France hófst.
MOST READERS WILL RECOGNIZE TODAY’S COAT, IT IS
BLEIK Hér er Kate í glæsi-
legum, bleikum kjól frá ítalska
tískufyrir tækinu Goat. Kjóllinn
fór henni vel en hún klæddist
honum þegar hún heimsótti
fyrir stuttu skóla fyrir börn fíkla.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Sumarútsalan
hafin
50% afsláttur
Smart föt , fyrir
smart konur
Stærðir 38-52
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Kjólar og jakkar
frá OPHILIA
TÍSKA