Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 54
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar Spurt er um ár … ÞÝSKALAND leikur til úrslita á heims- meistaramótinu í fótbolta en ekki eru allir sáttir við að Ríkissjónvarpið sýni leiki mótsins. Sumir kvarta yfir því að framleng- ingar seinki fréttatímum en aðrir eru hæst- ánægðir. Í Bandaríkjunum birta fjölmiðlar fréttir um að fótbolti sé að ná vinsældum á meðal landsmanna en besti fótboltamaður í heimi er smávaxinn Argentínumaður. …HANNES Hólmsteinn Gissurarson er á milli tannanna á fólki eftir að hann tekur að sér svokallað starf á vegum ríkis- stjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokksins. Rætt er um að heimila inn- flutning á hráu kjöti og gefa sölu á áfengi frjálsa en litlar líkur eru taldar á því að hugmyndirnar nái fram að ganga. Framsóknarfólk hefur sérstakar áhyggjur af kjöt- innflutningi á þeim forsendum að erlent kjöt muni á einhvern hátt reynast landsmönnum eitrað. …SUMARVEÐRIÐ á Íslandi mætti að margra mati vera skárra og fólk hópast í sólarlandaferðir til Spánar og fleiri heitari landa. Flugleiðir eru að mestu í eigu íslensku þjóðarinnar, rétt eins og Landsbankinn og önnur þjóðareign: Eld- fjallið Katla virðist vera að minna á sig við lítinn fögnuð landsmanna en eflaust meiri fögnuð jarðvísindamanna. …ARNOLD Schwarzenegger fer með aðalhlutverkið í nýrri hasarmynd, grín- þátturinn Fóstbræður er á meðal vinsæl- ustu dagskrárliða Stöðvar 2 og Vala Matt byrjar með nýjan þátt á stöðinni í haust. Neil Young kemur fram á tónleikum í Laug- ardalshöll, Bryan Adams er væntanleg- ur til landsins eins og hljómsveitin UB40. Annar ritstjóra Morgunblaðsins er sjálf- stæðismaður en hinn er skáld, borgarstjóri Reykjavíkur er jafnaðarmaður og Fram- sóknarflokkurinn á tvo fulltrúa í borgar- stjórn. …HLJÓMSVEITIN Nýdönsk sendi nýlega frá sér lag og fær það mikla spilun á tveimur vinsælustu útvarpsstöðvum lands- ins: Rás 2 og Bylgjunni. Hugmyndir um lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur eru á allra vörum og gætu skarast við umræðuna um flugvöllinn í Vatnsmýri en skiptar skoðanir eru um framtíðarstaðsetningu hans. „Ég hef oft sagt við manninn minn að ég ætti að reyna að græða eitthvað á þessu,“ segir kennarinn Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir hlæjandi. Hún er sláandi lík knattspyrnukappanum Mesut Özil en hún uppgötvaði það fyrir algjöra slysni. „Ég var að kenna fyrir nokkr- um árum þegar Özil var að spila með Real Madrid. Nokkrir strák- ar byrjuðu að benda á mig í tím- anum og ég spurði þá hvað væri í gangi. Þeir þorðu ekki að segja það við mig fyrst því þeir héldu að ég myndi móðgast. Síðan sögðu þeir mér að ég væri lík fótbolta- manni sem héti Mesut Özil. Ég hafði aldrei heyrt þetta nafn. Ég ákvað að gúggla hann og sá strax líkindi með okkur,“ segir Sig- ríður, sem oftast gengur undir nafninu Sigga Lísa. Í kjölfarið setti Sigga Lísa mynd af Özil á Facebook og fékk vægast sagt góð viðbrögð. „Það fannst öllum þetta sjúk- lega fyndið. Mig skiptir þetta engu máli og mér sjálfri finnst þetta mjög fyndið. Sérstaklega finnst mér fyndið að fólk hafi gaman af þessu og ég tek þessu létt,“ segir Sigga Lísa glöð í bragði. Hún hefur snúið þessu upp í grín. „Ég er aðdáandi hans á Face- book og Instagram og kalla hann alltaf bróður minn. Á öskudag- inn ákvað ég að vera Özil og það sáu allir að ég var hann þótt ég væri ekki með nafnið hans aftan á treyjunni. Hann er samt örugglega ekki eins stoltur af þessu og ég.“ En eru engar líkur á að Sigga Lísa og Özil séu í raun skyld? „Ég hef spurt mömmu og hún segir nei. En hvað veit maður?“ Özil spilar með þýska landslið- inu sem keppir um heimsmeist- aratitilinn í knattspyrnu næstu helgi. Sigga Lísa er að sjálfsögðu stolt af „bróður“ sínum. „Ég held með Þýskalandi af því að bróðir minn er í liðinu.“ liljakatrin@frettabladid.is Ég kalla hann Özil alltaf bróður minn Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir er sláandi lík knattspyrnukappanum Mesut Özil. TEKUR LÍKINDUNUM LÉTT Siggu Lísu finnst mjög fyndið að henni sé líkt við knattspyrnukappann. MYND/ÚR EINKASAFNI HÖRKULEIKMAÐUR Özil spilar með Arsenal og þýska landsliðinu. NORDICPHOTOS/GETTY Síðan sögðu þeir mér að ég væri lík fótbolta- manni sem héti Mesut Özil. Ég hafði aldrei heyrt þetta nafn. Ég ákvað að gúggla hann og sá strax líkindi með okkur. BYGGÐ Á FRÁSÖGN LÖGREGLUMANNS Í NEW YORK EITT STÆRSTA ÆVINTÝRI SUMARSINS DELIVER US FROM EVIL DELIVER US FROM EVIL LÚXUS EARTH TO ECHO THE SALVATION AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL AÐ TEMJA DREKANN 2 3D ÍSL. TAL 22 JUMP STREET VONARSTRÆTI VONARSTRÆTI LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.35 KL. 8 - 10.35 KL. 3.40 - 5.45 KL.10.30 KL. 3.30 - 5.45 KL. 3.30 - 5.45 KL. 8 - 10.45 KL. 8 - 10.40 KL. 5 DELIVER US FROM EVIL EARTH TO ECHO AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL TRAIN. . . DRAGON 3D ENS. TAL ÓTEXT. 22 JUMP STREET X-MEN 3D FAULT IN OUR STARS VONARSTRÆTI Miðasala á: KL. 8 - 10.35 KL. 5.50 KL. 5.45 KL. 8 KL. 10.40 KL. 10.10 KL. 5.20 - 8* - 10.40 KL. 5.20 - 8 *GÆÐASTUND -T.V., BIOVEFURINN.IS-H.S.S., MBL -D.M.S., MBL -DV S.R.S SHORT TERM 12 SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK CHICAGO SUN TIMES PORTLAND OREGONIAN LOS ANGELES TIMES TOTAL FILM EARTH TO ECHO 4, 6, 8 DELIVER US FROM EVIL 10 TEMJA DREKANN SINN 2D 5 22 JUMP STREET 8, 10:20 MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:10 VONARSTRÆTI 4:30, 7:30 ÍSL TAL www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.