Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 18
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18
NOREGUR Þrettán prósent Norðmanna
hafa á ferðum sínum erlendis séð lítil
norsk börn í fylgd með ölvuðum foreldrum
sínum síðastliðið ár. Þetta eru niðurstöður
könnunar norska tryggingafélagsins Euro-
peiske Reiseforsikring. Flestir, eða 27 pró-
sent, höfðu séð slík tilfelli í Tyrklandi, að
því er segir á fréttavef Aftenposten.
Haft er eftir presti við sjómannakirkj-
una í Alanya, Jens Bjørnsgård, að fjöldi
svokallaðra félagslegra tilfella hafi aukist
undanfarin ár. Stundum leiti einstakling-
arnir sjálfir til kirkjunnar en oft sé komið
með þá þangað. Þeir verði oft ánægðir
með að fá aðstoð og segist ekki skilja
hvernig hlutirnir hafi getað farið svona
úrskeiðis.
Í fyrra hafi tilfellin verið 50 til 60, flest
vegna geðrænna vandamála eða neyslu
vímuefna.
Aðeins fjögur til átta prósent Norð-
manna höfðu séð ölvaða norska foreldra
með börn á Ítalíu, í Þýskalandi og Frakk-
landi. Upplýsingafulltrúi ferðaskrifstof-
unnar Star Tour, Elisabeth Larsen-Von-
stett, telur að drykkjan verði meira
áberandi á stöðum þangað sem farið er í
skipulagðar ferðir. - ibs
Könnun tryggingafélags í Noregi á drykkju norskra foreldra með börn í utanlandsferðum:
Foreldrar ölvaðir með börnin í sumarfríi
Á SÓLARSTRÖND
Tyrkland er
meðal vinsælustu
sumarleyfisstaða
norskra barnafjöl-
skyldna.
NORDICPHOTOS/GETTY
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS
SVÍÞJÓÐ Þegar nemendurnir í
grunnskólanum Norrevångsskolan
í Karlshamn í Svíþjóð sluppu við
heimanám hækkuðu einkunnir
þeirra umtalsvert, að því er sænsk-
ir fjölmiðlar greina frá.
Skólastjórinn gerði í fyrra til-
raun meðal nemenda í 7. til 9. bekk
sem gekk út á að sleppa alveg
heimalexíum. Nemendum var boð-
inn morgunverður í skólanum og
þeir höfðu möguleika á að dvelja
í skólanum eftir að kennslu lauk
til þess að fá sérstaka aðstoð við
námið eða stunda íþróttir.
Haft er eftir skólastjóranum að
margt hafi ekki verið sem skyldi,
fjarvistir hafi verið miklar, árang-
ur lélegur og færri kosið að læra
tungumál. Breytingar hafi verið
nauðsynlegar. Skólastjórinn, Pat-
rik Johnsson, segir að nemendur
læri tíu sinnum meira á frjálsum
námstíma heldur en þegar þeir fái
heimalexíur. Hann segir einkunnir
aldrei hafa verið hærri.
Það sem gleður skólastjórann
mest er að nemendur hafa á orði
að þeim líði betur í skólanum. Auk
þess sé minna skemmt í skólanum.
Það er mat skólastjórans að þegar
heimanámi sé sleppt aukist kröf-
urnar á kennara um árangursrík-
ari kennslu. Þess vegna hafi árang-
urinn af breytingunum orðið svona
góður.
Hann bendir meðal annars á að
mikilvægt sé að skilja á milli vinnu
og frítíma. Nemendur hafi orðið
miklu einbeittari í skólanum. - ibs
Árangursrík tilraun meðal 7. til 9. bekkinga í sænskum grunnskóla:
Einkunnir hækkuðu þegar
heimanáminu var sleppt
HEIMANÁM Nemendum leið betur í
skólanum þegar þeir sluppu við heima-
lexíurnar. NORDICPHOTOS/GETTY
SAMFÉLAGSMÁL Samtökin Barna-
heill söfnuðu nýverið notuðum
reiðhjólum fyrir börn og unglinga
sem ekki hafa kost á að kaupa sér
reiðhjól. Fjöldamörg hjól voru í
framhaldinu afhent hjá Félags-
þjónustunni í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og Reykjanesbæ.
Enn eru nokkuð mörg reiðhjól
eftir og þau má nú nálgast fyrir
utan húsnæði Hjálparstarfs kirkj-
unnar í kjallara Grensáskirkju að
Háaleitisbraut 66 (gengið inn að
neðanverðu).
Söfnun Barnaheilla:
Notuð hjól fyrir
börn gefins
2 MILLJÓNIR PARA FARA Í GLASAMEÐFERÐ Á ÁRI
Í ÞEIM LÖNDUM ÞAR SEM FÓLK SKILUR ENSKU
2.800
Google-leitir
að ófrjósemi*
á dag *Infertility
19.000
einstaklingar á
Íslandi glíma við
ófrjósemi
570.000
krónur vantar í söfnunina
til að klára forritun á
appinu IVF-Coaching
„Þetta er rússíbani tilfinningalega,
miklar sveiflur milli vonar og von-
leysis,“ segir Gyða Eyjólfsdóttir
sálfræðingur en hún er sérhæfð í
að aðstoða pör sem kljást við ófrjó-
semi. Hún, ásamt Berglindi Ósk
Birgisdóttur hjúkrunarfræðingi,
hefur hannað smáforrit í Android-
síma sem kemur til með að hjálpa
pörum um allan heim í gegnum
glasa meðferðir, með jafna áherslu
á líffræðilegu hliðina og hina and-
legu. Gyða segist hafa gengið með
hugmyndina í maganum um árabil,
hún hefur sjálf skoðað þau andlegu
áhrif sem glasameðferð hefur á pör
í áratug en vantaði einhvern með
bakgrunn og þekkingu um meðferð-
irnar sjálfar og önnur áhrif en til-
finningaleg. „Berglind hefur hann
bæði sem hjúkrunarfræðingur og
sem manneskja sem hefur glímt
við ófrjósemi og farið í margar með-
ferðir sjálf.“
Ófrjósemi er mikið feimnismál.
Gyða segist hvetja konur sem til
hennar koma til þess að sækja kaffi-
húsahittinga og fyrirlestra þar sem
fjallað er um ófrjósemi. „En þær
mæta ekki. Þær vilja ekki að ein-
hver sjái þær, þá upplifa þær að ein-
hver sjái skömmina þeirra.“ Það var
af þessari ástæðu sem Gyða sá þörf
fyrir app sem veitir pörum ákveðna
aðhlynningu á meðan glasameðferð
stendur yfir. „Okkur langar svo að
ná til fleiri para svo fleirum geti
liðið vel,“ segir Gyða.
Um tvær milljónir para sem tala
ensku fara í glasameðferð á ári
Hámarka þungunarlíkur para sem
kljást við ófrjósemi með smáforriti
Sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur hafa tekið höndum saman við gerð smáforrits sem kemur til með að hjálpa milljónum para um allan
heim sem ganga í gegnum glasameðferð. Smáforritið er það fyrsta sinnar gerðar í heiminum. Þær segja ófrjósemi feimnismál.
DJÚP ÞRÁ Berglind Ósk Birgisdóttir og Gyða Eyjólfsdóttir segja það hafa mikil áhrif á tilfinningalíf fólks að geta ekki eignast
barn. „Þetta er svo samfélagslegt og svo bara ofboðslega djúp þrá eftir barni hjá fólki,“ segir Berglind sem sjálf hefur gengið í
gegnum glasameðferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
hverju. Talan er byggð á rannsókn
kvennanna sem segja ljóst að mark-
aður sé fyrir app af þessu tagi en
það er það fyrsta sinnar tegundar
í heiminum. Appið verður í þrem-
ur hlutum og allur texti verður á
ensku.
Fyrsta síðan er upplýsingasíða
um undirbúning og mismunandi
meðferðir, lyf, vítamín og slökun-
aræfingar. Annar hlutinn kallast
Meðferðin mín og þar er dagatal
yfir þær sex vikur sem meðferðin
tekur. Daglega kemur hjálpleg meld-
ing á símann með upplýsingum um
hvað sé að fara að gerast, við hverju
par megi búast, hvað auki líkur á
þungun, hvernig megi öðlast betri
líðan og ráð varðandi samskipti við
maka og aðra. Þriðji hlutinn er síða
sem geymir stillingaratriði.
Líkurnar á að þungun verði eftir
glasameðferð eru á milli 30 og 35
prósent og því þarf alla jafna að
endurtaka meðferð oft með tilheyr-
andi tilfinningaróti.
„Fólk er oft og tíðum að fara í
fjölda meðferða. Með því að nota
appið vonumst við til þess að hægt
sé að draga úr þeim fjölda meðferða
sem fólk þarf að fara í áður en það
fær gullmolann sinn í hendurnar,“
útskýrir Berglind. „Það sé sem sagt
hægt að hámarka þungunarlíkurnar
með þessum rannsóknarniðurstöð-
um,“ bætir Gyða við.
Þær hafa nú hafið söfnun á Karo-
linaFund.com fyrir þeirri upphæð
sem enn stendur eftir til þess að
hægt sé að greiða forritaranum, en
nú þegar hafa þær sjálfar lagt háa
fjárhæð í verkefnið auk þess sem
þær fengu styrk frá Nýsköpunar-
miðstöð. Söfnunin stendur til 8.
ágúst. „Við kunnum að meta allan
stuðning.“ nanna@frettabladid.is
Nanna Elísa
Jakobsdóttir
nanna@frettabladid.is