Fréttablaðið - 10.07.2014, Side 24

Fréttablaðið - 10.07.2014, Side 24
10. júlí 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Fanney Birna Jónsdóttir fanney@365.is Einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsi með hagsmuni allra stétta fyrir augum eru þeir hornsteinar sem farsælt er að byggja öflugt samfélag á. Aukið frelsi í viðskipt- um bætir ekki aðeins möguleika atvinnu- lífsins til að vaxa og þróast heldur leiðir einnig af sér aukna samkeppni, neytend- um til hagsbóta. Á undanförnum áratug- um hafa margir jákvæðir áfangar náðst í átt að auknu viðskiptafrelsi og heyrir nú til undantekninga ef ríki eða sveitarfélög standa í verslunarrekstri. Sá þáttur sem mest áhrif hefur haft í íslensku samfélagi í átt til aukins viðskiptafrelsis er aðild Íslands að EES-samningnum. Í kjölfar hans má segja að frelsi í viðskiptum hafi átt sviðið. Við sem aðhyllumst frelsi í viðskipt- um hljótum öll að fagna þeirri umræðu sem skapast hefur um sölu áfengis, lyfja og landbúnaðarafurða í kjölfar frétta af áhuga verslanakeðjunnar Costco á að opna verslun á Íslandi. Ég tel að afnema eigi einkasölu ríkisins á áfengi og heimila öðrum en apótekum að selja lyf í smásölu en ljóst er að breytingar í átt til aukins viðskiptafrelsis verða alltaf almennar en ekki sértækar fyrir eina verslanakeðju. Hvað landbúnaðinn varðar þá er hollt fyrir okkur að taka umræðu um kosti og galla núverandi fyrirkomulags. Ef við teljum rétt að viðhalda því óbreyttu þá þarf að rökstyðja það vel. Matvælaöryggi er mikilvægt sem og byggðasjónarmið og auðvitað eigum við að gera ákveðnar gæðakröfur til þeirra matvæla sem flutt eru til landsins. Í nútímanum gengur hins vegar ekki að halda því fram að allt sem komi frá útlöndum leiði af sér heilsubrest og hörmungar. Ef við teljum íslenskar afurðir margfalt betri og hollari en aðrar hvers vegna teljum við þá sjálfgefið að þær vörur fari halloka í samkeppni við erlenda vöru af margfalt minni gæðum? Ein er þó sú hindrun sem yfirskyggir allar aðrar hindranir í íslensku viðskipta- lífi. Það eru gjaldeyrishöftin. Forsenda þess að fyrirtæki og einstaklingar í land- inu geti skapað aukin verðmæti er afnám þeirra. Þess vegna er stærsta verkefni okkar Íslendinga á næstu mánuðum að afnema gjaldeyrishöftin. Frjáls úr þeim höftum eru okkur allir vegir færir. Frjáls úr höftum EFNAHAGSMÁL Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður ➜ Ef við teljum íslenskar afurðir margfalt betri og hollari en aðrar hvers vegna teljum við þá sjálfgefi ð að þær vörur fari halloka í sam- keppni við erlenda vöru af margfalt minni gæðum? Karlar ráða karla Frjáls verslun útnefnir 100 áhrifa- mestu konur Íslands í nýjasta tölublaðinu. Rætt er við þær sem taldar eru hafa mest áhrif og líkt og í flestum viðtölum sem birtast við konur eru þær spurðar um jafn- réttismál. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, segir að jafnréttið komi ekki af sjálfu sér og það taki tíma. Stjórnendur hafi alltaf tilhneigingu til að ráða einhvern sem líkist þeim sjálfum. Rannveig segir að meðan karlar séu jafnmargir í stjórnunar- stöðum séu mestar líkur á að þeir ráði annan karl, konur þá aftur konu. Nú er búið að fjölga konum í stjórn fyrirtækja og vonandi að kvenkyns stjórnendum innan fyrirtækjanna fjölgi í kjölfarið. Eina konan Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, svarar því í Frjálsri verslun hvernig það að sé að vera kona í fjarskiptageiran- um. Hún segist oft hafa verið eina konan í hópnum þegar hún var yngri. Það gerist sjaldnar í dag. Hlutirnir séu að breyt- ast. Liv segist hafa fundið fyrir því að umræða um jafnara kynjahlutfall hafi haft áhrif á viðskiptalífið og raunar víðar á samfélagið. Af hverju Stefán? Það væri ekki úr vegi að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, útskýrði hvers vegna hann skipaði Stefán Eiríksson, lögreglu- stjóra á höfuðborgarsvæðinu, sem formann nefndar sem á að meta hæfi umsækjenda um stöðu banka- stjóra Seðlabanka Íslands. Bent hefur verið á að Stefán hafi hvorki reynslu af störfum við stjórn efnahagsmála né sé hann hagfræðingur. En einhverja kosti hlýtur maðurinn að hafa í starfið og það væri því ekki úr vegi að ráð- herrann útskýrði hverja og hvers vegna hann skipaði Stefán. johanna@frettabldid.is Í grein sem birtist í Fréttablaðinu á þriðjudag skoraði Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á stjórnvöld að aflétta gjaldeyrishöftum hið snarasta. Fjármagnshöftin væru stærsta ógnin við efnahagslegan stöðugleika hér á landi. Fréttablaðið birti í gær fréttaskýringu um efnahagslega áhættu gjaldeyrishafta. Þar kom meðal annars fram að höftin fældu í miklum mæli burt erlenda fjárfesta, sem vildu ekki festast innan þeirra. Vitað er af ófrá- víkjanlegum kröfum fjárfesta þess efnis að fyrirtæki séu flutt inn á svæði þar sem ekki þurfi að hafa áhyggjur af reglubreyt- ingum stjórnvalda heldur séu þau staðsett í umhverfi sem hægt sé að treysta á. Íslensk fyrirtæki og frumkvöðlar þurfa því í auknum mæli að færa alla sína starfsemi, eða hluta hennar, til útlanda með tilheyrandi afleiðingum fyrir íslenskt efnahagslíf. Nærtækasta dæmið er nýsköpunarfyrirtækið Mint Solutions, sem tilkynnti nýlega að það þyrfti að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi vegna viðræðna um erlenda fjárfestingu. Þetta er langt í frá eina dæmi þess að tilvist gjaldeyrishaftanna hafi komið í veg fyrir fjármögnun á fyrirtæki af því að það er staðsett hérlendis. Íslensk fyrirtæki sem eru í samkeppni við erlenda aðila geta ekki boðið alþjóðlegum fjárfestum upp á nægi- lega öruggt umhverfi þannig að áhættan sé réttlætanleg. Í krafti stærðar fá stórfyrirtæki á borð við Marel, Össur og CCP undan- þágu frá gjaldeyrishöftum. Minni fyrirtæki til dæmis í nýsköpun fá ekki sömu tækifæri enda ljóst að lögin væru nánast marklaus ef allir fengju undanþágu. Þetta hefur í för með sér gífurlega mis- munun þegar kemur að rekstrarumhverfi fyrirtækja hér á landi. Annars vegar fámennur hópur sem nýtur velvildar Seðlabankans en hins vegar meginþorri fyrirtækja sem þarf að þjást í höftum. Í grein sinni bendir Þorsteinn á að aðstæður til að ráðast í afnám gjaldeyrishaftanna séu nú eins hagstæðar og kostur er á en ekki sé sjálfgefið að þessar aðstæður verði viðvarandi. Efna- hagsleg áhætta afnáms hafta nú sé mun minni en hættan sem fylgi áframhaldi þeirra. Vandamálið við höftin er að óþægindin við að afnema þau koma fram mjög hratt, eins og þegar plástur er rifinn af, en eins og þegar sýking í sári fær að malla óáreitt kemur kostnaðurinn við að hafa höftin hins vegar fram mjög hægt. Það er því freistandi og hugguleg staða fyrir stjórnvöld að leyfa skaðanum að gerast hægt í stað þess að taka á sig óþægindin strax, með tilheyrandi tímabundinni óánægju frá almenningi. Sá hængur er á áskorun Samtaka atvinnulífsins að í henni er ekki tekið tillit til þess að fáir virðast hallast að því að krónan verði aftur frjáls gjaldmiðill þótt höftum verði aflétt. Fyrir- sjáanlegt ástand eftir afnám gjaldeyrishaftanna er haftaástand í breyttri mynd. Bæði seðlabankastjóri og sérfræðingar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins hafa rætt um að þegar höftum sleppi þurfi að koma til „þjóðhagsvarúðarreglur“ eða „hraðahindranir“ á vegi útflæðis gjaldeyris úr landinu. Það er ljóst að íslenska krónan er ekki nothæfur gjaldmiðill í alþjóðaviðskiptum og um leið ónothæf fyrir íslenskt atvinnulíf. Þannig má telja að hér verði gjaldeyris- höft í einhverri mynd þar til tekinn verður upp annar gjaldmiðill. Það er áskorunin sem réttast væri að senda stjórnvöldum. Það er plásturinn sem ríður á að rífa af. Ný gjaldeyrishöft taka við af gjaldeyrishöftunum: Rífa plásturinn af VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ GRANDA OG MJÓDD DAG SEM NÓTT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.