Fréttablaðið - 11.08.2014, Side 12

Fréttablaðið - 11.08.2014, Side 12
11. ágúst 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. Hinsegin dögum er nýlokið. Þeir voru haldnir í sextánda sinn, og gengu sem fyrr út á að draga fram fjölbreytileik- ann, fagna honum og þeim réttindum sem áunnist hafa. Gleðigangan var stór- kostleg að vanda og talið er að um 90 þúsund manns hafi safnast saman í mið- borginni. Hinsegin dagar hafa líka annað og alvarlegra hlutverk. Að minna á þau rétt- indi sem ekki hafa náðst og óréttlætið sem viðgengst bæði hér á Íslandi og úti í heimi, en ekki síður að uppræta fordóma og fáfræði gagnvart fjölbreytileika mannlífsins. Hinsegin dagar þjónuðu þessu markmiði vel í ár, m.a. með mikil- vægri fræðslu um þann fjölbreytta hóp sem rúmast undir hinsegin regnhlífinni. Hin nýstofnuðu samtök Intersex Ísland hafa vakið verðskuldaða athygli. Inter- sex fólk fellur ekki undir hefðbundna skilgreiningu á kynjunum af líffræði- legum ástæðum. Intersex hefur alltaf verið til, en það er ekki fyrr en nú þegar talsvert er liðið á 21. öldina að farið er að tala um réttindi og stöðu intersex fólks á opinberum vettvangi á Íslandi. Staða intersex fólks sýnir okkur hversu mikla áherslu við sem samfélag leggjum á að flokka fólk eftir kyni. Kyn barns er það fyrsta sem spurt er um eftir fæðingu þess, nafngift er háð kyni, opinberar skrár gera ráð fyrir tveimur kynjum og svona mætti lengi telja. En það er ekki nóg. Enn eru framkvæmdar skurðaðgerðir á heilbrigðum kynfærum nýfæddra barna til að aðlaga þau stöðl- uðum hugmyndum um útlit typpis eða píku. Intersex fólk krefst nú viðurkenn- ingar á tilvist sinni og sjálfsákvörðunar- réttar yfir eigin líkama. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa. Hinsegin dagar hafa sett brýn og graf- alvarleg mál á dagskrá, enn eina ferðina, í bland við gleði og fagnaðarlæti. Til að hægt sé að fagna fjölbreytileikanum er mikilvægt að þekkja hann og skilja. Hin- segin fólk og hinsegin dagar hafa breytt miklu hvað það varðar. Fyrir það ber að þakka. Takk. Takk! HINSEGIN DAGAR Sóley Tómas- dóttir Forseti Borgarstjórnar ➜ Til að hægt sé að fagna fjöl- breytileikanum er mikilvægt að þekkja hann og skilja. Hinsegin fólk og hinsegin dagar hafa breytt miklu hvað það varðar. Fyrir það ber að þakka. Takk. Skilningsríki þingmaðurinn Það þarf ekki að koma á óvart að rekstur Landspítalans sé aftur orðinn þrætuepli stjórnmálamanna. Við- fangsefnið er viðkvæmt og reksturinn fjárfrekur. Guðlaugur Þ. Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, sagði um helgina að allar ríkisstofnanir þyrftu að halda sig innan fjárlaga- rammans. Oddný Harðardóttir, fyrr- verandi fjármálaráðherra, benti aftur á móti réttilega á að stofnanir gegni mismikilvægu hlutverki. Ætli for- svarsmönnum Land- spítalans hafi þótt Oddný sýna rekstri Landspítalans jafn mikinn skilning þegar hún sjálf bar ábyrgð á gerð fjárlaga? Ekki langrækinn Einhver fleygustu orð Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, voru sögð í byrjun október 2008. Gjaldeyris- markaðir voru harðlæstir og ekkert vestrænt ríki var reiðubúið til þess að veita Íslendingum lán til að stækka gjaldeyrisvaraforðann þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. Fréttir bárust af því að Íslendingar hefðu sótt um fjögurra milljarða evra lán til Rússa. Geir sagði við blaðamenn að Vesturlönd hefðu ekki getað stutt Íslendinga á þennan hátt. „Í slíkum aðstæðum verða menn því að leita nýrra vina,“ sagði hann. Geir er ekki langrækinn maður. Nú sex árum seinna, þegar Geir verður sendiherra, þykir langlíklegast að hann flytji til Washington. Aftur á mót fer Árni Þór Sigurðsson líklegast til Rússlands. Vinalausasta þjóðin Þótt ekkert hafi orðið af lánveitingum Rússa til Íslands rifjast þessir sex ára gömlu atburðir upp núna þegar Rússar hafa sett viðskiptaþvinganir á Bandaríkin, Evrópusambandið og Norðmenn, en ekki Íslendinga. Óljóst er hvort Vladimír Pútin, forseti Rússlands, hafi hreinlega gleymt litla Íslandi eða hvort við fengum sér- staka afgreiðslu vegna tengsla Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Pútíns. En ætli við myndum ekki fyrst verða vinalausasta þjóð í Evrópu ef við nýttum okkur þá sérstöku stöðu sem við erum komin í? jonhakon@frettabladid.isB arack Obama Bandaríkjaforseti skipti um skoðun fyrir helgina og fyrirskipaði bandaríska flughernum að gera loftárásir á sveitir öfgasamtakanna Íslamsks ríkis, sem áður kallaði sig ISIS og hefur lagt undir sig stóran hluta Íraks. Ástæðan þar að baki er ekki sízt þau grimmdarverk sem Íslamskt ríki hefur unnið undanfarnar vikur gagnvart minni- hlutahópum í Írak; kristnum mönnum og Jasídum hefur verið slátrað miskunnarlaust ef þeir neita að snúast til íslams. Hernaðaríhlutun Banda- ríkjanna lítur því ekki lengur út eins og þau séu að blanda sér í innanlandsdeilurnar í Írak og styðja al Maliki forseta í því að berja á súnnítum, sem Íslamskt ríki segist styðja. Bandaríkin eru einfaldlega að koma í veg fyrir þjóðarmorð og greiða fyrir því að hægt sé að koma mannúðaraðstoð til þjóð- arbrotanna sem liðsmenn Íslamsks ríkis höfðu króað af. Bret- land, Frakkland og fleiri ríki hafa heitið að aðstoða Bandaríkin við að koma mat og öðrum nauðþurftum til fólksins. Obama lítur því væntanlega svo á að hann hafi betra umboð til að beita hernaðaríhlutun nú en fyrr í sumar, bæði hjá almenningi í Bandaríkjunum og á alþjóðavettvangi. Hitt er svo annað mál að það er engan veginn ljóst hvert endataflið í Írak ætti að vera. Bandaríkjamenn – og heims- byggðin öll – hafa ríka hagsmuni af því að framrás hersveita Íslamsks ríkis verði stöðvuð og komið í veg fyrir að markmið- ið, sem felst í nafni samtakanna, verði að veruleika; að stofnað verði alræðisríki öfgafullra íslamista í Mið-Austurlöndum. Til þess að það megi verða þarf hins vegar hernaðaríhlutun af þeirri stærðargráðu að það er afar vafasamt að Obama ráðist í hana. Hann var kosinn forseti á sínum tíma ekki sízt út á loforð um að draga Bandaríkin út úr stríðum sem ekki var hægt að vinna í Afganistan og Írak og hefur engan áhuga á að láta draga sig aftur inn í slík átök, með tilheyrandi mannfalli og kostnaði fyrir bandaríska skattgreiðendur. Sömuleiðis er allsendis óljóst hvernig hægt er að knýja fram nýjan pólitískan sáttmála á milli þjóðarbrotanna í Írak um að deila með sér völdum á sanngjarnan og friðsamlegan hátt, en það er algjör forsenda þess að þetta brothætta ríki eigi sér yfirleitt einhverja framtíð. Þrýstingur Bandaríkjamanna á Núrí al Maliki forsætisráðherra að mynda nýja ríkisstjórn hefur til þessa ekki borið tilætlaðan árangur. Við stöndum því í raun enn og aftur frammi fyrir sama vandamálinu; rétt eins og í Súdan, Kongó, Sýrlandi og Palest- ínu – og það væri hægt að telja upp miklu fleiri lönd – er verið að drepa saklaust fólk í stórum stíl, reka hundruð þúsunda á flótta og ógna friði og stöðugleika í heilum heimshluta. Við- brögð alþjóðasamfélagsins eru hins vegar takmörkuð og máttlaus og ekki líkleg til að leysa deiluna til frambúðar eða tryggja hag fólksins, sem á um sárt að binda. Illu heilli hefur slíkum púðurtunnum í alþjóðamálum heldur fjölgað síðustu árin. Obama heimilar loftárásir á Íslamskt ríki: Óljóst endatafl í Írak Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.