Fréttablaðið - 11.08.2014, Side 13
MÁNUDAGUR 11. ágúst 2014 | SKOÐUN | 13
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Lekamálið snýst ekki um að
undarlegt sé að sumir hælis-
leitendur séu með fölsuð skil-
ríki eins og skilja má á Brynjari
Níelssyni. Það snýst hugsanlega
um samsæri embættismanna
og fjölmiðla eins og bæjarstjór-
inn í Vestmannaeyjum lætur að
liggja – nema samsærið beinist
ekki gegn Hönnu Birnu heldur
gegn Tony Omos. Málið snýst
ekki um hótanir í garð Hönnu
Birnu, jafn hörmulegar og þær
hljóta að vera fyrir hana og
hennar nánustu. Það snýst varla
um Tony Omos. Það snýst um
stjórnsýslu, meðferð trúnaðar-
upplýsinga, sannsögli gagnvart
þingi og þjóð, trúverðugleika
stjórnmálamanna. Það snýst um
Hönnu Birnu og hennar fólk.
Það snýst um okkur: til hvers
við ætlumst af stjórnmálamönn-
um okkar og hvað við umberum
þeim.
Lekandinn
Tony Omos leitaði hér hælis.
Hann átti von á barni með konu
sem einnig beið úrskurðar um
landvistarleyfi. Umsókn hans
var hafnað og eftir að hafa verið
í felum um hríð gaf hann sig
fram og stóð til að vísa honum
úr landi. Boðað var til mót-
mæla við innanríkisráðuneytið
vegna málsins. Brugðist var við
því með því að reyna að sýna
almenningi fram á að Tony þessi
ætti ekki skilið landvist, hann
væri grunaður um glæpsam-
legt athæfi og hefði sýnt fjöl-
lyndi í ástum. Tekið var saman
af embættismönnum „óform-
legt minnisblað“ í ráðuneytinu
um mál Tonys sem ráðuneytis-
stjóri, ráðherra og aðstoðar-
menn ráðherra fengu að sjá, en
slík plögg eru trúnaðargögn.
Annar aðstoðarmaðurinn, Gísli
Freyr Valdórsson, var í sam-
skiptum við blaðamenn daginn
áður en efni þessa minnisblaðs
birtist – með viðbættum vanga-
veltum um að Tony væri hugs-
anlega ekki faðir þess barns
sem fyrrgreind kona gekk með,
og hefði beitt hana þrýstingi til
að segja svo vera. Seinna kom
á daginn að þetta átti ekki við
rök að styðjast. Gísli hafði sama
dag og hann talaði við blaða-
menn vistað minnisblaðið í tölvu
sinni, eins og maður gerir þegar
maður opnar skjal og breytir
því. Hann neitar því að hafa átt
við skjalið.
En er þetta ekki harður heim-
ur? Og er landið ekki í umsátri
glæpamanna sem hér vilja setj-
ast að og stunda sína iðju? Og
þarf ekki að verjast þeim með
öllum meðulum, jafnvel þó að
stundum séu á gráu svæði? Á
ekki almenningur heimtingu
á að vita hvers konar fólk það
er sem hér leitar hælis? Svona
kunna sumir að hugsa. Sjálfur
veit ég ekkert um Tony Omos en
við höfum ekkert leyfi til þess
að ganga út frá því sem vísu að
hann sé illmenni og glæpamað-
ur. Þvert á móti: sérhver mann-
eskja sem á vegi okkar verður
á heimtingu á því að vera talin
húsum hæf þar til annað kemur
í ljós. Og raunar hefur ekk-
ert komið fram um Tony Omos
annað en að hann virðist hafa
verið nokkuð kvensamur.
En við vitum líka hitt: Fyrir
tilverknað lekandans var birt
í fjölmiðlum nafn íslenskr-
ar konu sem átt hafði í sam-
bandi við Tony, og nafn barns-
móður Tonys er svert í leiðinni
í þessari viðleitni við að snúa
almenningsálitinu gegn Tony
Omos. Farið er inn á svæði í lífi
fólks sem við teljum til einka-
lífs. Sú iðja ein sýnir okkur við-
horf til upplýsinga og til fólks
sem eiga ekki heima í opinberri
þjónustu. Meðal þess sem við
ímyndum okkur að sé gott við að
búa hér á landi er að geta treyst
því að stjórnsýsla lúti almenn-
um reglum og fari fram með
ákveðinni festu. Við eigum öll
mikið undir því að svo sé. Með
því að senda viðkvæmar trún-
aðarupplýsingar til blaða – og
bæta slaðri við þær án þess að
aðgreina það frá skrifi sóma-
kærra embættismanna í ráðu-
neytinu – brýtur lekandinn gegn
réttum stjórnsýsluháttum. Þetta
sýnir skeytingarleysi gagnvart
einkalífi annarra, virðingarleysi
fyrir lögum og reglum, sem
fremur má vænta í alræðisríkj-
um en réttarríki, dómgreind-
arleysi, reynsluleysi, skort á
mannúð og skort á pólitískum
klókindum.
Fer þetta ekki að koma?
Hanna Birna leyfði málinu að
vaxa og vaxa án þess að bregð-
ast við – og enn þráast hún við
að grípa til aðgerða, sem sýnir
að hún virðist enn ekki átta sig
á alvöru málsins þó að afleiðing-
ar þess fyrir hana séu hægt og
rólega að renna upp fyrir henni.
Hún hlýtur að hafa hlustað á
vonda ráðgjafa. Hún gerði illt
verra þegar hún staðhæfði á
alþingi að ekkert sambærilegt
plagg við það sem birtist í fjöl-
miðlum hefði verið til í ráðu-
neytinu á þeim tíma: það var
beinlínis ósatt. Og versnaði enn
í því þegar hún reyndi að láta
liggja að því, gegn betri vitund,
að plaggið gæti hafa ratað í fjöl-
miðla frá Rauða krossinum.
Þegar ráðherra er staðinn að
því hafa sagt þinginu ósatt – og
reyna að koma sök yfir á mann-
úðarsamtök – þá hljótum við
að spyrja í hvert sinn sem við-
komandi tekur til máls: Er hún
að skrökva að okkur aftur? Við
getum ekki búið við slíkt í lýð-
ræðisríki. Við verðum að ætlast
til þess að stjórnmálamenn segi
satt.
Og við getum heldur ekki búið
við það í réttarríki að ráðherra
ræði ítrekað við undirmann
sinn, lögreglustjórann í Reykja-
vík um rannsókn sem beinist að
ráðherranum og hennar fólki. Sá
lögreglustjóri sagði af sér – og
er eini maðurinn sem enn hefur
sagt af sér eftir að lekamálið
kom upp. Hanna Birna skipaði
nýjan lögreglustjóra sem stýrir
þá rannsókn á þeim ráðherra
sem viðkomandi á starf sitt að
þakka, og hringir væntanlega af
og til, svona bara rétt að spjalla
– óformlega.
Davíð og hans menn hafa
slegið skjaldborg um Hönnu
Birnu, sem kann að skýra þá
hörmulegu ráðgjöf sem hún
virðist hafa fengið í öllu málinu
en formaður flokksins, Bjarni
Benediktsson, kom fram með
óvenju hulduhrútslega yfir-
lýsingu um að ráðherrar nytu
trausts á meðan þeir nytu
trausts og væru ráðherrar
meðan þeir væru ráðherrar –
hafi ég skilið hann rétt, sem
ég gerði sennilega ekki. Ráð-
leysi virðist ríkja en við bíðum
þess að vita hvað umboðsmað-
ur alþingis og ríkissaksóknari
gera. Allt verður þetta mál von-
andi til þess að reglur um hæfi
ráðherra til setu og afskipta
verði gerðar skýrari.
Lekamálið snýst um okkur: að
kerfið virki.
Lekamálið snýst um okkur
Hanna Birna leyfði
málinu að vaxa og
vaxa án þess að bregðast
við– og enn þráast hún
við að grípa til aðgerða,
sem sýnir að hún virðist
enn ekki átta sig á alvöru
málsins þó að afleiðingar
þess fyrir hana séu hægt og
rólega að renna upp fyrir
henni.